Læknablaðið - 15.07.2013, Side 25
Ú R PENNA STJÓRNARMANNA LÍ
Nýr ráðherra og gamlir
Orri Þór
Ormarsson
Höfundur er
barnaskurðlæknir á
Landspítala og í stjórn
Læknafélags Islands.
otormarsson@hotmail.com
Nú kveðjum við vinstristjórnina og Guð-
bjart Hannesson með henni. Eg ætla ekki
að dæma störf fráfarandi ráðherra enda tel
ég að sá dómur yrði réttari með aukinni
fjarlægð í tíma. Það er þó ljóst að ytri að-
stæður hefðu getað verið honum hagstæð-
ari.
Við tekur hægristjórn með Kristján Þór
Júlíusson sem heilbrigðisráðherra. Nýja
stjórnin fer af stað með það að leiðarljósi
að það verður að eyða peningum til að
eignast þá og ætlar að lækka skatta á fjöl-
skyldur og fyrirtæki til þess að auka tekjur
ríkissjóðs. Það verður síðan að koma í ljós
hvort þessar lækkanir gefi af sér auknar
skatttekjur sem nýst geta til að styrkja heil-
brigðiskerfið. Vinstrimenn, sem nú eru enn
og aftur komnir á hliðarlínuna, benda á
leiðindastaðreyndir eins og að það þarf að
eiga peninga til að byrja með til þess að
geta síðan eytt þeim.
Nú er aftur komið eiginlegt heilbrigðis-
ráðuneyti með sérstökum heilbrigðis-
ráðherra og af því tilefni leit ég stuttlega
yfir farinn veg í stjórnun heilbrigðismála.
Leiðin lá á veraldarvefinn.
Frá því að lög um Stjórnarráð Islands
frá 1969 gengu í gildi í janúar 1970 hefur
verið starfandi heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðuneyti. Málefni þessa ráðu-
neytis höfðu áður verið vistuð á ýmsum
stöðum, heilbrigðismálin aðallega í
dóms- og kirkjumálaráðuneytinu. Frá
1970 hafa verið 16 ráðherrar heilbrigðis-
og tryggingamálaráðuneytisins og seinna
heilbrigðisráðuneytisins í alls 24 ríkis-
stjórnum allt þar til velferðarráðuneytið
var stofnað í janúar 2011. Framsóknar-
flokkurinn hefur farið með málaflokkinn í
16 ár, Sjálfstæðisflokkurinn í 10 ár, Alþýðu-
bandalagið í 7 ár, Alþýðuflokkurinn í 5 ár,
Vinstri grænir í 2 ár og Samfylking í 1 ár, en
við það bætast svo árin hans Guðbjarts sem
velferðarráðherra.
Matthías Bjarnason gegndi lengst allra
starfi heilbrigðis- og tryggingamálaráð-
herra, í rúm 6 ár, en Ingibjörg Pálmadóttir
átti lengstan samfelldan feril sem heilbrigð-
is- og tryggingamálaráðherra í tæp 6 ár.
Menntun ráðherranna hefur verið af
ýmsum toga. Það hafa verið verkfræðingar,
múrarar, símvirkjar, menn með samvinnu-
skólapróf (alltaf traust) og menn með stúd-
entspróf. Þeir sem hafa haft menntun á heil-
brigðissviði eru tvær konur, þær Ingibjörg
Pálmadóttir hjúkrunarfræðingur og Siv
Friðleifsdóttir með BS-próf í sjúkraþjálf-
un. Með þeim er rétt að minnast á þriðju
konuna, sem gegndi þessu starfi, Ragn-
hildi Helgadóttur lögfræðing (ráðherra
1985-7). Hún er dóttir Helga Tómassonar
fyrrverandi yfirlæknis á Kleppspítala en
margir þekkja hann af einlægu og opin-
skáu áliti hans á Jónasi frá Hriflu.
Lengsta námið erlendis á Magnús Kjart-
ansson (ráðherra 1971-4) að baki en hann
var við verkfræðinám í Danmarks Tekniske
Hojskole og Polyteknisk Læreanstalt 1938-
40, við norrænunám í Hafnarháskóla
1940-3 og síðar við háskólana í Lundi og
Stokkhólmi. Flestir aðrir hafa meira svona
skroppið úr landi, til dæmis var Álfheiður
Ingadóttir við nám í þýsku og fjölmiðlun
við Freie Universitát í Vestur-Berlín 1976-7
og fyrir þá sem undrast, já það var Vestur-,
ekki Austur-Berlín. Það er áberandi að fáir
hafa dvalist lengi erlendis en sú víðsýni og
reynsla sem við það fæst er gott veganesti
fyrir hvern sem er.
Það er ljóst að fólk með fjölbreyttan
bakgrunn hefur verið við stjórnvölinn í
þessum málaflokki. Það sem að endingu
ræður hversu vel hverjum tekst til mótast
sennilega, eins og svo oft, meira af mann-
kostum en bakgrunni.
í ágætri grein sem Þröstur Haraldsson
skrifaði í síðasta Læknablað er farið yfir
stöðuna í dag með nýrri ríkisstjórn. Það er
sumar í lofti þó að það sé veðurfræðilegt
haust þegar þetta er skrifað og með nýjum
ráðherra koma nýjar væntingar.
Á landsleik Islendinga og Slóvena um
daginn gerðist það snemma í seinni hálf-
leik að margir áhorfendur byrjuðu að
klappa ákaft án þess að ég sæi neitt sérstakt
tilefni til þess inni á vellinum. Það var ekki
fyrr en mér var litið á hliðarlínuna að ég sá
ástæðuna fyrir klappinu, Eiður Smári var
að hita upp. Væntingarnar voru miklar.
Undirritaður fór nýverið á fund nýs ráð-
herra ásamt Þorbirni Jónssyni formanni LI
og Sólveigu Jóhannsdóttur framkvæmda-
stjóra LÍ. Við áttum við hann stutt spjall,
kynntum honum helstu áherslumál okkar
auk þess sem við stungum að honum ítar-
efni. Við, eins og aðrir, höfum væntingar.
Þær lúta að því að því sem hefur þróast
á verri veg síðustu ár verði snúið við og
sé að marka stefnuyfirlýsingu nýrrar
ríkisstjórnar stendur það til. Gallinn á gjöf
Njarðar er að hluti af viðsnúningnum er
að auka þarf fjármagn til málaflokksins og
þar eins og áður stendur hnífurinn í kúnni.
Því ætla ég, eins og á landsleiknum, að bíða
með að klappa og gefa nýjum ráðherra að
minnsta kosti færi á að klára upphitun.
Stjórn LÍ
Þorbjörn Jónsson, formaður
Orri Þór Ormarsson, varaformaður
Magnús Baldvinsson, gjaldkeri
Salome Á. Arnardóttir, ritari
Björn Gunnarsson
Guðrún Jóhanna Georgsdóttir
Magdalena Ásgeirsdóttir
Ólöf Birna Margrétardóttir
Þórarinn Ingólfsson
(pistlunum Úrpenna stjórnarmanna Ll birta þeir sínar eigin
skoðanir en ekki félagsins.
LÆKNAblaðið 2013/99 345