Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.07.2013, Side 41

Læknablaðið - 15.07.2013, Side 41
UMFJÖLLUN O G GREINAR Þvagfæraskurðlæknirinn Hrafn Sveinbjarnarson Eiríkur Jónsson I sögu Hrafns segir af læknislist hans. Hann læknar meðal annars sjúka með aðferðum sem kuklarar allra alda gætu verið stoltir af. Þá stekkur allt í einu fram, eins og skrattinn úr sauðarleggnum, full- sköpuð aðgerðarlýsing. Hún er einstök í íslenskum fornbókmenntum og þótt víðar væri leitað. Hrafn sker til þvagblöðrusteins sem hann hefur áður fært niður og skorð- að af í þvagrás karlmanns sem þjáðist af steinsótt. Aðgerðarlýsingin er nákvæm og fylgir bestu þekkingu þess tíma. Steinsótt hefur fylgt mannkyninu og ráð við henni verið kunn meðal elstu siðmenninga. Hippókrates tekur það til að mynda sér- staklega fram, að engir nema þeir sem hafa þar til bæra þekkingu skeri til steins. Fram eftir öldum var skorið eftir steinum um þvagrás eða með spangarskurði sem verður að teljast mjög torfarin leið til þvag- blöðrunnar enda lágu margir sjúklinganna í valnum eftir slíka meðferð. Steinskurðar- menn voru því sérhæfðir farandlæknar í evrópskum borgum á miðöldum og hurfu gjarnan af vettvangi í skjóli nætur af aug- ljósum ástæðum. Um síðir hugkvæmdist læknum að skera ofan lífbeins (sectio alta) til þess að ná í blöðrusteina enda er sú leið greiðari til þvagblöðrunnar. í samanburði við spangarskurð er þvagrásarskurður mun auðveldari og hættuminni. Það varð þó að tryggja að steinninn færðist ekki upp til þvagblöðrunnar eftir að hann var skorðaður af og því ráð að hnýta fyrir ofan hann. Einnig var húð limsins áður dregin niður með því að toga forhúðina fram og hnýta þar einnig. Sú hnýting var gerð til þess að húðin á skurðsvæðinu drægist til baka eftir skurðinn sem tryggði betri lokun skurðsársins. Hjá umskornum karl- mönnum varð hins vegar að hnýta framan við steininn á sjálfum limnum. Hvaðan kom Hrafni eða söguritara hans þessi þekking? Smáatriði í aðgerðarlýsingunni, svo sem niðurfærsla á steininum frá blöðru til þvagrásar, aðgerðarlýsing sem Höfðingi nýrra tíma. Hrafn Sveinbjarnarson í samtíð sinni Torfi H. Tulinius Hrafn Sveinbjarnarson var höfðingi á sunnanverðum Vestfjörðum á áratugunum kringum 1200. Þá urðu miklar breytingar á skipan valds í íslensku samfélagi. Héraðs- ríki höfðu smám saman orðið til á Suður- landi, þar sem Haukdælir réðu vestan Þjórsár en Oddaverjar fyrir austan. Svín- fellingar virtust hafa öll völd á Austur- landi. Ásbirningar stýrðu Skagafirði, um leið og þeir seildust til áhrifa í Eyjafirði. Þórður Sturluson skapaði sér veldi á Snæ- fellsnesi og Snorri bróðir hans í Borgar- firði, en komst líka yfir staði og goðorð annars staðar. Þriðji bróðirinn, Sighvatur, hafði farið með erfðaveldi þeirra bræðra í Dölunum en lét Sturlu syni sínum það eftir þegar hann flutti norður í Eyjafjörð til að hasla sér völl á nýtilkomnu valdasvæði mága sinna af Ásbirningaætt. Þessar breytingar í átt að héraðsríkjum höfðu áhrif á stöðu rótgróinna goðaætta á Vest- fjörðum, þeirra Vatnsfirðinga með Þorvald Snorrason í broddi fylkingar, og Seldæla sem lutu forystu Hrafns. Þessa nýju tíma ber að hafa í huga til að skilja átökin sem leiddu til dauða Hrafns fyrir átta hundruð árum. Margt bendir til þess að Hrafn hafi ætlað að feta svipaða slóð og reyna að breyta erfðagoðorði sínu í héraðsríki. Eins og margir höfðingjar, fær hann annað goð- orð að gjöf og líkt og þeir reynir hann að fyrirbyggja að líklegir keppinautar komist til áhrifa á því svæði sem hann hefur helgað sér. Vaxandi spenna milli þeirra Þorvalds skýrist vafalítið af því að sá síðarnefndi taldi veldi sínu ógnað af upp- gangi Hrafns. Sennilega gerir Hrafns saga minna úr ágengni Seldælsins í frásögninni af deilum þeirra Þorvalds. Að minnsta kosti er ekki ólíklegt að Hrafn hafi gerst nærgöngulli við þingmenn Vatnsfirðings- ins en sagan greinir frá til að sýna hver væri valdamestur á Vestfjörðum. Hrafn var líka höfðingi nýrra tíma í samskiptum sínum við kirkju og kristni. virðist eiga við aðgerð á umskornum karl- manni, og vera Hrafns á Norður-Spáni leiða hugann til hins mikla Albucasis af Cordóba. Sá var uppi þremur öldum fyrr og skrifaði þrjátíu binda verk um læknis- fræði. Verkið var þýtt á latínu um miðja tólftu öld og hafði mikil áhrif á evrópska læknisfræði næstu aldirnar. í einu binda þess, um skurðlæknisfræði og skurðáhöld, er nær samhljóða aðgerðarlýsing og Hrafn er sagður hafa framkvæmt. Jafnframt því að lýsa fyrstur niðurfærslu þvagblöðru- steins til þvagrásar fann Albucasis upp áhald og aðferð til þess að bora í steininn um þvagrásina og brjóta sundur án skurð- ar en sú aðferð barst til íslands tæpum 800 árum eftir daga Hrafns. Skurðlæknisfræði er farsælust í réttum hlutföllum fræða og færni. Fór hvort tveggja saman forðum daga á Eyri og þá undir áhrifum márans Albucasis? Hafi svo verið þá var Arnfirðingurinn Samúel í Selárdal ekki fyrstur þeirra héraðsbúa að leita í smiðju Andalúsíumanna. Hann vingaðist við biskupinn í Orkneyjum og þá af honum verðmæta gripi. Hrafns saga segir einnig frá ferðum hans til helgra staða í Evrópu. Síðast en ekki síst er mikið gert úr vináttu Hrafns og Guðmundar Hóla- biskups. Hrafn var því af þeirri tegund leikra höfðingja sem unnu náið með kirkj- unni. Höfundur sögunnar dregur jafn- framt fram að Hrafni var í mun að þjóna vel þeim sem undir hann voru settir. Hann sá þurfamönnum fyrir mat, greiddi fyrir samgöngum á valdasvæði sínu og stundaði lækningar án endurgjalds. Um leið og hann aflaði sér vinsælda styrkti það ímynd hans sem trúrækinn höfðingi sem lifði í góðri sátt við guð og fulltrúa hans á jörðinni, heilaga kirkju. Þótt sókn Hrafns til valda virðist í mót- sögn við þessa ímynd, var það varla svo í hugum samtímamanna hans, þegar kirkjan og leikir höfðingjar hvarvetna í Evrópu tömdu sér nýja samskiptahætti. LÆKNAblaðið 2013/99 361

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.