Þjóðlíf - 01.05.1986, Side 52
að hún hafði neitað. Þegar hún
klæddi sig sagði hún blákalt: „Ég
ætti að kæra þig fyrir nauðgun."
Þetta var eins og köld vatns-
gusa. Ég hafði ekki upplifað
þetta á þennan hátt og fannst ég
ekki finna í fari hennar þennan
ímugust á athöfninni meðan á
henni stóð. Samband okkar stóð
ekki lengi.
Mér virðist sem svo að margir,
einkum konur, líti á samfarir að
morgni til sömu augum og að
fara til tannlæknis. Þær vilja
flestar gera eitthvað annað á
morgnana (mér er hins vegar
hulin ráðgáta hvers vegna þær
þurfa heilan klukkutíma í að búa
sig í vinnuna á hverjum morgni).
Þá hafa þær margar hverjar
áhyggjur af hreinlætinu, að þurfa
að fara i bað eða sturtu á eftir,
og það tekur auðvitað sinn tíma.
En kannski er þetta bara bundið
við ákveðnar menningarheildir.
Ég spurði eitt sinn argentískan
kunningja minn, sem ég kynntist
erlendis, að því hvernig honum
Efkona vill mann ekki á morgn-
ana — þá það.
gengi með konur á morgnana.
Hann rak upp stór augu og
spurði hvað ég ætti við. Hann
hafði greinilega aldrei lent í
neinum vandræðum.
Hins vegar vil ég benda á, að
flestir karlmenn virðast líta svo á,
að þeir einir hafi gaman af sam-
förum að morgni dags. Ég vil
benda á bókina Rabbit Run eftir
bandaríska rithöfundinn John
Updike máli mínu til stuðnings,
en þar kemur hann einmitt inn á
þetta öryggisleysi karlmanna:
„Aftur elskuðust þau í morgun-
skímunni. . . Þetta er næstum of
nakið; funi hans virðist lítilfjör-
legur í samanburði við bjart
hörund þeirra, og hann veltirþví
fyrirsér hvort hún sé ekki að
látast. “
Ég er sjálfur fylgjandi samför-
um að morgni dags - eingöngu
af sjálfselskuhvötum. Fyrsta
ástkonan mín naut samfara í öll-
um stellingum, hvar sem var og
hvenærsem var. Kannski eyði-
lagi hún mig fyrir lífstíð - en
þetta var yndislegt! En auðvitað
hef ég síðan leitað þess sama í
fari annarra kvenna, einfaldlega
vegna þess að mér finnst þetta
gott, heilbrigt og fallegt, einkum
ef elskendur hafa átt góða daga
saman.
Ég veit að margir karlmenn líta
þetta öðrum augum en ég.
Margir halda því fram, að þeir
verði að hafa samfarir á tiltekn-
um tímum dags eða nætur - og
á morgnana vegna þess að þeir
vakna með standpínu. Þessu er
ég ekki sammála. Það getur ver-
ið að þeir vilji og að þeir njóti
þess, en að þeir verði eru engin
rök. Standpínan á morgnana
tengist að líkindum einungis
þeirri þörf að kasta af sér vatni.
Og svo eru til mjög hagsýnir karl-
menn. Kunningi minn sagði mér
eitt sinn frá því að hann hefði
haft samfarir við konu sína morg-
un einn þrátt fyrir bráða þörf fyrir
að pissa. Hann vildi ekki eiga
það á hættu að honum hætti að
standa eftir að hafa pissað!
En nú er komið að þætti
kvenna í málinu. Ekki get ég tal-
ist fjölfróður um þarfir þeirra, en
þykist þó hafa rekið mig á ýmis-
legt í fari þeirra sem sjálfsagt er
að taka tillit til (þótt ég tali hér
aðeins um konur má ekki
gleyma því að ekki verða allir
karlmenn settir undir sama hatt-
inn, sumir og eflaust margir hafa
litla löngun á morgnana. En ég
þekki aðeins konur sem rekkju-
nautal). Morgnarnir eru sá tími
dagsins þar sem tíminn er hvað
knappastur og dagurinn bíður
okkar, með margs kyns ákvarð-
anatöku og erfiðleikum. Það ætti
því engan að undra þótt einhver
hafi ekki beina löngun til kyn-
maka á þessum tíma dags. Og
svo má ekki gleyma hinu, að
þegar samförum er lokið á
morgnana er strax staðið á fætur
og báðir aðilar halda á braut.
Lítill eða enginn tími gefst til að
njóta návista hvors annars - og
mörgum kann að reynast það
þungur baggi, kannski einkum
og sérílagi konum.
Konur hafa einnig meiri
áhyggjur af sjálfsmynd sinni en
karlar. Þær fáu konur sem ég hef
rætt þetta við hafa lýst yfir
áhyggjum sínum yfir því að lykta
'*!
Ég vil svara þessu með því
fyrst að lýsa minni eigin reynslu
og þá með lýsingu á því hvernig
mér líður á morgnana. Ég ligg í
rúminu, nývöknuð og kúri mig
illa á morgnana. Þetta finnst mér
hryggileg afstaða til kynlífs.
Manneskja sem baðar sig á
hverjum degi getur blátt áfram
ekki lyktað illa. Vissulega hefur
nóttin haft sín áhrif á líkams-
vessa okkar, en lyktin getur með
engu móti talist ógeðfelld. Við
lifum hins vegar í þjóðfélagi sem
hefur komið sér upp mjög skringi-
legri afstöðu til eðlilegrar lyktar.
Við erum sífellt að þvo okkur,
stökkva á okkur ilmvötnum, bað-
olíum, svitalyktareyðum og Guð
má vita hverju - eingöngu til
þess að lykta ekki eins og fólk!
Lyktarskynið er okkur hins vegar
nauðsynlegt. Ég vil nefna dæmi.
Minningar okkar um fólk og við-
burði eru mjög nátengdar lyktar-
skyninu. Prófið að stinga nefinu
ofan í litakassa barnanna ykkar
og athugið hvað þið upplifið. Ég
sé alltaf fyrir mér gamla og góða
sjö ára bekkinn minn þegar ég
finn þessa lykt.
Sennilega er þessi spurning,
þ.e. hvort fólk vill hafa samfarir
fyrir morgunmat, tengd tveimur
vandamálum. Fyrra vandamálið
er ósköp einfalt: annað hvort er
fólk morgunhanar eða morgun-
svæft. Ég tilheyri t.d. fyrri hópn-
um. Þegar ég vakna verð ég
beinlínis að taka mér eitthvað
fyrir hendur. Hitt vandamálið er
hins vegar öllu djúpstæðara.
John Updike kom inn á það í bók
sinni sem nefnd var hér að ofan.
Það tengist þeirri útbreiddu til-
hneigingu okkar að líta á kynlífið
sem næturathöfn fyrst og fremst.
Sumt fólk þolir ekki að láta horfa
á sig við þessa athöfn, finnst
þetta ekki rétt eða siðlegt eða
Guð má vita hvað. Og svo má
vel vera að sumum finnist ein-
faldlega öruggara að stunda
kynlíf á kvöldin eða á nóttunni
því þá er ekki eins líklegt að mót-
aðilinn hafi sig strax á brott.
Mér hefur skilist æ betur með
árunum að maður á aldrei að
reyna að breyta fólki. Ef kona vill
mann ekki á morgnana, þá það.
[ mínum huga er þó kynlífið það
mikilvægt að mér finnst rétt að
bjóða konum upp á þetta. Annað
fyndist mér ókurteisi. En það er
heldur engin ókurteisi að neita.
Aðalatriðið er þó að fólk njóti
þess að vera saman.
niður undir sængina. Mér líður
notalega og langar ekkert á fæt-
ur. Mig langar bara til að liggja
aðeins áfram. En skyndilega er
einhverju potað í bakið á mér.
52 ÞJÓÐLÍF