Þjóðlíf - 01.05.1986, Síða 60
Loksins hefur
iekist að semja um
síúdeníafargjöld
til Bandaríkjanna
NÝTT NÝTT NÝTT NÝTT
Verð aðra leið aðeins kr.
7.900
Flogið er:
márwdaga,
þriðjudaga
og
miðvikudaga
FERÐA
SKRIFSTOFA
STÚDENTA
Hnngbraut. siml 16850
Fallegt, vandað og óendanlegir
uppstillingarmöguleikar
3 viöarlitir
30 teg.
borðstofustóla
m}
símar 685153 —32035
nefndin hafa, eftir nánari fyrirmælum ráðuneytisins og í umboði þess,
yfirumsjón með framkvæmdum við jarðgufuvirkjunina. Alvarlegur
orkuskortur var talinn vofa yfir Norðurlínu, sem var lokið 1977.
Var nú veitt fé til framhaldsrannsóknar við Kröflu, og sumarið 1974
voru fyrstu tvær rannsóknarholurnar boraðar þar, um 1100 m djúpar.
Hugmyndir höfðu verið uppi um að bora fremur eina 2000 m djúpa
holu með gufubor, en hann var ekki valinn. í staðinn voru boraðar
tvær grynnri holur með minni bor. Skýrsla um niðurstöður þessara
borana birtist í febrúar 1975 og var afhent og kynnt fulltrúum iðnað-
arráðuneytis, Kröflunefndar og Náttúruverndarráðs á sérstökum
fundi á Hótel Loftleiðum 26. febrúar 1975. í skýrslunni segir:
„Niðurstaða borana og annarra rannsókna á Kröflusvæðinu ersú,
að það standi undir 50-60 MW gufuvirkjun og hugsanlegri stækkun
síðar. Mælt er með því að hafist verði handa um að bora vinnsluholur
í Kröflu þegar sumarið 1975.. .
Bein reynsla liggur ekki fyrir um eiginleika 300°C heits vatns með
tilliti til útfellinga í holutoppi og skiljum. Því er lagt til, að fyrstu
vinnsluholur verði boraðar á svæðinu kringum holu 2 þar sem vænta
má vatns með meðalhita undir300°C. Enn ein reynsluhola verður
boruð nálægtholu 1, þarsem vænta má vatns með hærri meðalhita
en 300°C."
Fram til þessa tíma hafði verið fylgt rannsónaáætluninni frá 1969
um könnun Kröflusvæðisins, en á fundi samstarfsnefndar aðila um
Kröfluvirkjun í byrjun mars 1975 komu í Ijós um þau áform Kröflu-
nefndar að byggja orkuverið samhliða borframkvæmdum og það
jafnframt, að pantaðar hefðu verið túrbínur tveimur mánuðum áður.
Lýstu fulltrúar Orkustofnunar þegar því áliti, að þetta væri mjög
óvenjulegur og áhættusamur framkvæmdamáti, enda þá fyrst vissa
um fáanlegt orkumagn þegar það væri raunverulega komið upp á
yfirborðið í fullreyndum vinnsluholum.
Þrátt fyrir þetta sýnist Ijóst að yfirmenn Orkustofnunar hafi látið
undan þrýstingi að ofan. Stefán Arnórsson jarðefnafræðingur, sem
þá var deildarstjóri rannsókna háhitasvæða á Orkustofnun, skrifaði
grein í Morgunblaðið 24. maí 1978, vegna umræðna um skýrslu
iðnaðarráðherra um Kröflu á Alþingi og í fjölmiðlum. Þar ræðir hann
samskipti jarðvísindamanna við yfirmenn Orkustofnunar, Kröflunefnd
og verkfræðinga. í greininni segir m.a.:
„ Þess verður sjálfsagt langt að bíða, að umræðu um hina umdeildu
Kröfluvirkjun Ijúki. Eitt virðast menn þó sammála um nú. Mistök hafa
átt sér stað við Kröfluvirkjun. Hitt erþó enn deilt um hvers eðlis þau
mistök séu og hver sé valdur að þeim. Mistökin eru einfaldlega þessi:
Ráðist varí framkvæmdir, áðuren jarðhitasvæðið við Kröflu var
tilbúið til virkjunar. Ráðist varí að reisa orkuver, sem varmiklu stærra
en svaraði markaðsþörfinni. Það var Kröflunefnd með tilstyrk iðnað-
arráðuneytisins og ráðgjafa sinna, sem hafði það frumkvæði, sem
mistökunum olli. Orkustofnun virðist ekki hafa haft þá festu til að
bera, sem afstýra mætti ógæfunni í upphafi. “
Þríþætt mistök
Hin þríþættu mistök sem gerð voru við Kröflu eiga sér einn
samnefnara: ekki var tekið tillit til álits rannsóknarmanna færi það á
skjön við vilja stjórnvalda og framkvæmdarmanna. Þá voru þeir
kallaðir „úrtölumenn" og stjakað til hliðar. Mistökin voru þessi:
1
Hlaupið var út í framkvæmdir áður en búið varað rannsaka
svæðið. Þær mælingar, sem þá lágu fyrir, bentu til þess að Kröflu-
svæðið líktist Námafjallssvæðinu; tvær tiltölulega grunnar rann-
sóknarholur höfðu verið boraðar, og djúphiti áætlaður út frá efnasam-
setningu hveragufu. Þó var Ijóst, að búast mætti við erfiðleikum
vegna kísilútfellinga. Þegar dýpri vinnsluholur voru boraðar á árunum
1975 og 1976 kom í Ijós, að jarðhitakerfið í Kröflu er tvískipt: í efra
kerfinu, sem nafer niður á 1100 m dýpi, er hitastig kringum 200°C, en í
neðra kerfinu, sem tekur við neðan við um 1500 m dýpi, er hitastig
300-350°C. Vel má vera, að hefði ekki komið til Kröfluelda, hefðu
Kröflunefnd og framkvæmdarmenn „sloppið fyrirhorn", þráttfyrir
það að hér væri um hróplega skammsýni og áhættu að ræða, ekki
síst með tilliti til þess, að Ijóst var að engin þörf væri fyrir 60 MW
Kröfluvirkjun á þeim tíma sem Kröflunefnd einsetti sér að Ijúka
verkinu.
September 1977. (Ljósmynd: Sigurður Þórarinsson)
ÞJÓÐLlF 61