Þjóðlíf - 01.05.1986, Page 69

Þjóðlíf - 01.05.1986, Page 69
Hér viröist líka veraá ferðinni raunverulegur unglingur þar sem sögu- hetjan er bólugrafin og þjökuð af minnimáttar- kennd. er lesin. Þessi bók gæti einmitt opnað augu margra fyrir því feiknalega innrætingarkerfi sem hún ber í sér og beinist gegn unglingum til að gera þá sem fyrst að þægum tannhjólum I þjóð- félagsvélinni. Rædd frá því sjónarmiði efast ég ekki um að hún yrði gagnlegri til slíks en margar greinar um þjóðfé- lagsmál. Því ferlið er þarna allt. En gall- inn er hins vegar bara sá hve óvenju leiðinleg bókin er aflestrar. Belgingsleg lágkúra er megineinkenni stílsins (bls. 103): Mamma gerði það viljandi að láta mig sofa bæði í fötunum og ælunni svo að ég áttaði mig betur á hvað ástand mitt var slæmt. Hún ræddi þessi mál ítarlega við mig og síðan hefég ekki bragðað áfengi. .. Árni hafði aldrei fundið löngun hjá sér til að bragða vín. Sennilega varþað vegna áhuga hans á íþróttum. Hann vissi að áfengi og íþróttir eiga ekki sam- an. Menn náðu ekki eins góðum árangri ef þeir drukku . .. Áramótaskaupið var eins og oft áður um atburði sem gerst höfðu á árinu sem var að líða. Þeir voru rifjaðir upp í spaugsömum dúr og blandaðir hæfi- legu kryddi. Töff týpa á föstu Bókin Töff týpa á föstu eftir And- rés Indriðason er frábrugðin Sextán ára ísambúð. Hún er í fyrsta lagi ekki leiðinlega skrifuð. I öðru lagi verður í henni vart við persónusköpun, þar sem eru móðirsöguhetju og bróðir. Vissu- lega eru þessar persónur einfaldar, en þær eru sjálfum sér samkvæmar í tali og hegðun og hvor með sínu sniði. Móðirin hefur mestan áhuga á skemmtanalífinu, og sést átali hennar að hún er með sektarkennd gagnvart syninum (bls.74); Hann eltir mömmu sína fram í eld- hús; hún er í sæluvímu. - Þú ert farin að reykja! - Æ, Elli minn, segir hún og er að flýta sér, þetta erbara fikt. Ekki vera hneykslaður á mömmu þinni, ekki vera það, elskan. - Þú ert búin að reykja eins og strompur í allt kvöld. Það var eins og Áburðarverksmiðjan væri komin inn í stofu. Og hvaða græna gums er íþess- ariflösku? - Þetta?Æ, hún Gússíkom með þetta. Þetta erbara létt vín, voðalega létt. Ætlar þú ekki bara að fara að sofa, elskan ? Ég sé nú að þú er orðinn þreyttur. Lási bróðir talar um sambúð sína við konuna og dregur úr öllu, talar almennt (bls.173): - Elli minn . . . eins og maður sé ekki alltaf að reyna. Það er svo margt sem spilar inn í þetta. Þetta er ekki bara mér að kenna hvernig komið er. Við erum ferlega ólík við Heiða, það ernú gall- inn ... og svo eru það hjónin á efri hæðinni (tengdaforeldrar hans).. . það eralveg óþolandi að hafa þetta ofan í séröllum stundum .. . það er fylgst með hverri hreyfingu manns, hvers konar líf heldurðu að þetta sé ? Hér virðist líka vera á ferðinni raun- verulegur unglingur þar sem söguhetj- an er bólugrafin og þjökuð af vanmátt- arkennd. í sögunni er dregin upp ágæt mynd af því hve einmana hann er og vesæll í eigin augum í samanburði við skólabræðurna sem eru töff, með stelp- um og í klíkunni. Hann leitar huggunar í því að hugsa um draumadísina handan við flóann (bls. 46-7): Það var bara einn galli við þetta. Eva er alveg hætt að láta heyra í sér. Efhún hringir ekki þá erþað vegna þess að hún er búin að afskrifa hann . . . Hún hlýtur að hringja. Það er kannski búið að vera mikið að gera hjá henni... eins og hjá hon- um... hann veit að hún á eftir að hringja, finnurþað á sérog reynirað hafa ekki áhyggjur afþessu. Hann sér Ijósin á Akranesi út um gluggann í herberginu sínu, blikandi Ijósahaf þegar kvöldar. Þá hugsarhann til hennar. . . Það er mynd af henni á korktöflunni fyrir framan skrifborðið, það mega allir sjá hana sem vilja. Hann klippti þessa mynd út úr blaði í sumar. Fyrst faldi hann hana niðri í skúffu, nú er hún komin upp á korkinn og farin að gulna afþvísólin skín á hana stundum en það gerir ekkert til, hún erjafn sæt þó hún gulni, ístuttbuxum og bol á íþróttavell- inum, veifandi og brosandi. Það er svört nótt úti og kyrrð. Hér segja andstæður litanna mikið: sólskin á gulnandi mynd stúlkunnar, fjarlæg Ijóstýra í svartnættinu sem ríkir. Faðir drengsins er dáinn og hann býr einn með móður sinni. Hann er afbrýði- samur út í eldri bóður sinn og karlmann sem móðirin kemst í kynni við. Ekki hugsar hann mikið um annað en þetta, og svo laglega, vinsæla bekkjarsystur sem er að manga til við hann, en hann er alltof feiminn til að þora að taka það alvarlega - hleypur bara burt. Vídeó- klám leiðist honum. Nema hvað - allt í einu umturnast okkar maður. Það var eins og hann hefði skáldað upp kærustuna á Akra- nesi til að vera mannalegri, en þá birtist hún bara einn daginn og vinurinn lendir í sleik og gælum. Annað eins getur nú skeð - og er einmitt alltaf að ske á unglingsárunum: Ijóti andarunginn verður að fallegum svani. En söguhetj- an ummyndast bara alveg umhugsun- arlaust - og vandalaust. Stekkur allt í einu út á gólf í félagsmiðstöðinni og ÞJÓÐLÍF 69

x

Þjóðlíf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.