Þjóðlíf - 01.05.1986, Blaðsíða 77
Saumakonur eru stór hluti fé-
lagsmanna i Iðju - og sá virk-
asti. Listi Bjarna Jakobssonar
naut ekki vinsælda meðal þeirra
stöðunum eru einmitt saumastofur. Og
það var öðru fremur frá saumastofun-
um sem úrslitin í kosningunni réðust.
Bjarni Jakobsson skilaði inn lista sín-
um á síðasta degi. Mörgum kom á
óvart hvað listi hans var veikur, en að
meirihluta til var á honum fólk sem
sjaldan eða aldrei hafði mætt á fundi í
félaginu og enginn þekkti nein deili á.
Sú saga gengur í félaginu, að ein kona
hafi komið á listann fyrir tilstilli Þor-
steins Pálssonar, formanns Sjálfstæð-
isflokksins, og einn maður fyrir tilstilli
yfirmanns síns. Erfitt er að sanna þetta,
en með það í huga að flokkurinn tók
þátt í baráttu Bjarna af heilum hug er
þessi saga ekki ósennilegri en margar
aðrar.
Fólkið á listanum, sem Bjarni Ja-
kobsson bar fram, hittist aldrei áður en
listinn var kunngerður. Hann mun hafa
hist einu sinni eða tvisvar, en þetta var
ákaflega ósamstæður hópur, sem lítt
virtist vita hvað hann var að gera. Til
marks um þetta er fundur sem haldinn
var daginn fyrir kosninguna um kjara-
og félagsmál. Guðmundur Þ. Jónsson
reið á vaðið með að ræða kosninguna,
sem framundan var. Margir komu í
pontu og lýstu yfir stuðningi við A-list-
ann, lista stjórnarfélagsins. Enginn
lýsti hins vegar yfir stuðningi við lista
Bjarna Jakobssonar, að Bjarna und- .
anskildum. Nokkrir af lista hans voru þó
mættir á fundinn, en enginn þeirra tók
til máls. Fundurinn þróaðist því skjótt
upp í það að verða ein allsherjar
leiksýning fyrir A-listann.
Sú spurning vaknar hvers vegna
Bjarni og félagar hans reyndu ekki
meira til að vekja upp stuðning við
Bjarna í félaginu með því m.a. að bjóða
fram fólk sem var tilbúið til að berjast
fyrir lista hans. Skýring eins Iðjumanns
er þessi: „Flokkurinn átti að vinna kosn-
inguna fyrir Bjarna, það er eina skýring-
in. Bjarni gerði sér góða von um að
vinna þessa kosningu - og það gerði
Sjálfstæðisflokkurinn líka, svo slitinn
var hann úrtengslum við veruleikann.
En engin önnur skynsamleg skýring er
áþessu.“
Þáttur Morgunblaðs-
ins og Sjálfstæðis-
flokksins
Báðir aðilar héldu vinnustaðafundi
fyrirkosninguna. Bjarni og Ragnar
Breiðfjörð fóru saman á vinnustaði og
tókst að ná upp nokkurri stemningu á
ákveðnum vinnustöðum, svo sem í
Hampiðjunni, Plastprenti og Álafossi.
Guðmundur Þ Jónsson og Hildur Kjart-
ansdóttirfóru einnig á vinnustaði. Báðir
aðilar gáfu út kosningablöð. Blað lista
stjórnar og trúnaðarmannaráðs var ein-
blöðungur, svart/hvíturog heldurfá-
tæklegur, enda hafði listinn ekki digra
sjóði eða fjársterka aðila á bak við sig.
Blað Bjarna Jakobssonar var heldur
veglegra. Það var vandaður fjórblöð-
ungur og kostaði greinilega drjúgan
skilding. Blaði Bjarna var ekið út af
snyrtilegum ungum mönnum, sem ber-
sýnilega voru ekki félagsmenn í Iðju.
Hvaðan voru þeir, þessi snyrtilegu
menn? ÚrSUS?
Miklar hringingar fóru í gang fyrir
kosninguna og báða kjördagana. Þar
var á ferðinni fólk, sem hringdi í félags-
menn Iðju til að minna á kosninguna -
og lista Bjarna Jakobssonar. Meðal
þeirra sem hringdu fyrir Bjarna var
Guðjón Sigurðsson , fyrrverandi for-
maður Iðju. Guðmundur Þ Jónsson og
stuðningsmenn hans hringdu ekkert -
fyrr en síðari dag kosninganna en þá
skipulagslaust. Stuðningsmenn Bjarna
Jakobssonar báðu um kjörskrá Iðju - í
tölvutæku formi - sem þeirfengu ekki.
Getgátur vöknuðu um að nú ætti að
keyra skrána saman við flokksskrá
Sjálfstæðisflokksins.
Kunnugir segja, að Bjarni Jakobsson
hafi ekki leitað stuðnings hjá sínum
flokki fyrr en um áramótin síðustu og þá
hafi hann farið til formanns flokksins.
Hilmar Guðlaugsson, framkvæmda-
stjóri verkalýðsráðs Sjálfstæðisflokks-
ins, og fleiri áhrifamenn innan flokksins
beittu sér t.d. ekki fyrir Bjarna fyrr en
Ijóst var að til kosninga kæmi. Annað
hvort hefur Bjarni sagt þeim að allt væri
í lagi og hann þyrfti ekki á flokknum að
halda - eða Sjálfstæðisflokkurinn hef-
ur týnt niður gömlu verklagi á sviði
verkalýðsmála eins og aðrir flokkar,
enda ekki verið kosið lengi. Sagt er að
Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæð-
isflokksins, hafi ásamt öðrum þing-
mönnum og ráðamönnum flokksins,
beitt sér í kosningunni, m.a. með því að
tala við „sína“ menn í stjórn og trúnað-
armannaráði. „Þeirra" menn voru hins
vegar flestir á því að Bjarni væri von-
laus og skipta þyrfti um formann. Skila-
boðin komust hins vegar ekki nægilega
skýrt á framfæri til flokksforystunnar,
því hún ákvað að styðja Bjarna með
ráðum og dáð.
Þáttur Morgunblaðsins var allnokkur
í sambandi við kosninguna. Blaðið birti
viðtal við Bjarna Jakobsson þegar
hann hafði lagt fram lista sinn. Hildur
Kjartansdóttir bað um viðtal sem henni
var neitað um, en fékk að leggja inn
grein sem birt var. Nokkrir stuðnings-
menn Bjarna skrifuðu í Morgunblaðið.
Listi Bjarna var kynntur með myndum.
Eitthvað mun þetta samt hafa farið fyrir
brjóstið á Morgunblaðsmönnum, því
tvívegis var tekið fram þegar listakynn-
ing Bjarna fór fram að þetta væri frétta-
tilkynning. Þessi tilkynning birtist hins
vegarekki í öðrum blöðum. En blaðið
gerði heldur ekkert annað fyrir Bjarna
Jakobsson. Skynjuðu ritstjórar Morgun-
blaðsins e.t.v. það sem forystumenn
Sjálfstæðisflokksins skynjuðu ekki -
að kosningin snerist ekki um pólitík
heldur persónu Bjarna Jakobssonar
sem flestir töldu hafa setið of lengi?
Gamall Iðjufélagi kom fyrri kosninga-
daginn á skrifstofu Iðju með plögg sem
sett höfðu verið í póstkassa hans.
Plöggin innihéldu Ijósrit úr blaði með
lista Bjarna Jakobssonar og einnig var
þar tölvukeyrð kjörskrá Iðjufélaga þar
sem fólki var raðað eftir póstnúmerum.
Kjörskráin varekki frá Iðju komin, því
Bjarna hafði verið neitað um tölvutæka
kjörskrá. Búið var að krossa við
ákveðnar götur í Þingholtunum, en Iðju-
félaginn bjó einmitt í þeim bæjarhluta.
Sennilega hefur alnafni hans átt að fá
þessi plögg en fyrir misskilning hafa
þau ekki ratað rétta boðleið. Greinilegt
var, að Bjarni og stuðningsmenn hans
áttu einhvers staðar sterkan hauk í
horni.
Afrakstur Sjálfstæð-
isflokksins
Greinilegt var á öllu að á bak við
Bjarna Jakobsson stóð ekki sundrað
stuðningsmannalið, heldur flokksmask-
ína í öllu sínu veldi. Flokksmaskína
Sjálfstæðisflokksins. Bjarni leitaði einn-
ig til verkalýðsráðs Alþýðuflokksins
með stuðning, en á lista hans var að
finna fimm alþýðuflokksmenn, að hans
eigin sögn. Verkalýðsráð flokksins
fundaði um málið en tók ekki formlega
afstöðu til þess. Bjarni mun þó hafa átt
stuðningsmenn í ráðinu. A-listinn, listi
stjórnar Iðju, leitaði hins vegar hvergi
stuðnings. Framboðið var ekki flokks-
pólitískt - og því var ekkert að leita. Þá
telja aðilar innan Iðju sig hafa rök-
studda vitneskju um, að áhrifamenn
innan raða atvinnurekenda hafi stutt
Bjarna og beitt sér í kosningunni.
Blíðskaparverður var báða kjördag-
ana og því urðu margir Iðjufélagar til
þess að leggja leið sína á kjörstað. Um
3.300 manns greiddu félagsgjöld til Iðju
ÞJÓÐLÍF77