Þjóðlíf - 01.02.1988, Blaðsíða 3
BRÉF FRÁ LESENDUM
Til lesertda
Þjóðlíf vill benda lesendum sínum á að þeir
geta sent okkur bréf til birtingar svo framar-
lega sem fjallað er um efni Þjóðlífs eða því
tengdu á einhvern hátt. Einnig geta lesendur
hringt inn í sama skyni. í þessu sambandi og
að gefnu tilefni vill Þjóðlíf taka fram, að
tímaritið áskilur sér rétt til að stytta bréf, en
mun kappkosta að breyta ekki merkingu
þeirra.
Bréf skulu stíluð þannig:
Fréttatímaritið Þjóðlíf
Bréf frá lesendum
Pósthólf 1752
121 Reykjavík
Þjóðlífstölur
í Þjóðlífstölum segir að könnun hafi leitt í
ljós að framhaldsskólakennarar hafi 109 þús-
und krónur í laun fyrir októbermánuð sl..
Samkvæmt mínum heimildum var úrtakið 2
kennarar og segir sig sjálft að það getur tæp-
ast verið marktækt. Einnig skora ég á ykkur
að nefna heimildir fyrir Þjóðlífstölunum,
sem eru yfirleitt mjög merkar og forvitnileg-
ar. í þessu tilfelli var engra heimilda getið.
Þorvaldur
Meira erlent efni
Má ég allra vinsamlegast benda ykkur
Þjóðlífsmönnum á að það gerist fleira frá-
sagnarvert í heiminum en í Evrópu og
Bandaríkjunum. Ég les alltaf erlendu frétta-
skýringarnar og viðtölin sem fréttaritararnir
ykkar skrifa í blaðið en óneitanlega mætti
greina frá málefnum fjarlægari heimshluta.
Getið þið ekki nælt íeinhverja góða fréttarit-
ara í einhverju Asíu- eða Afríkulandi?
Með fyrirfram þökk fyrir birtinguna.
Sigurjón. Vestmannaeyjum.
Fróðleg úttekt
Greinin um fyrirtíðarspennu var einkar fróð-
leg og í þessu tilfelli gagnleg úttekt. Út af
þessu vil ég líka biðja ykkur um að taka oftar
svona ítarlega fyrir ýmislegt um heilbrigðis-
málin, sem vekja mikinn áhuga manns.
Esther í Breiðholtinu.
ÞJDDÍH
af því að fá þessa ýmsu söfnuði til að rífast
dálítið á síðum blaðsins, svoleiðis rifrildi eru
alltaf skemmtileg.
Bjartur Reykjavík.
Þökkfyrir Evrópu
Um leið og ég vil þakka fyrir ítarlega um-
fjöllun um Evrópubandalagið vil ég lýsa yfir
furðu minni á tregðu íslenskra ráðamanna
gagnvart Evrópu. Ekki veit ég hvort það er
vegna þess hversu háðir við erum Banda-
ríkjamönnum, t.d. að SÍS og SH fái að ráða
algerlega ferðinni eða af öðrum ástæðum. þá
er hræðslan við að nálgast Evrópubandalag-
ið með skynsamlegum hætti ótrúlega mikil.
Þjóðlíf hefur nú riðið á vaðið með þessa
umfjöllun og fyrir það á tímaritið þökk skil-
ið. Kveðjur
Gylfi.
Skemmtilegur þáttur
Bílasíðurnar í Þjóðlífi eru með skemmtilegra
tímaritaefni á hinum íslenska markaði. Þátt-
urinn er sérstæður vegna þess, að hann gerir
okkur, sem ekki eru einu sinni með bílpróf
kleift að fylgjast með þessum heimi, og jafn-
vel hafa gaman af honum. Maður nennir
ekki einu sinni að hamast gegn bíladellunni
sem tröllríður öllu þegar kostur gefst á jafn
skemmtilegum skrifum. Bíllinn verður
ásættanlegt fyrirbæri þegar hann er með-
höndlaður á þennan hátt.
Lárus, Kópavogi.
Spiritisminn
útdauður
Sú gleðifrétt barst um heimsbyggðina fyrir
nokkrum árum, að spiritisminn væri útdauð-
ur. Ég þakkaði mínum sæla, þar sem amma
mín hafði tæpast látið okkur í friði í marga
mánuði 1965, og kom fram á öllum miðils-
fundum. þannig að það var ekki flóafriður
fyrir hringingum með kveðjunt allra handa
frá blessaðri gömlu konunni. En með hnign-
andi gengi spiritismans hættu þessar kveðjur
og ég hef ekki verið plagaður lengi af sím-
hringingum eftir miðilsfundi. En nú eruð
þið. frjálslyndir með öllu. að reyna að endur-
vekja þennan déskota. Þetta er misskililið
frjálslyndi og vildi ég nú biðja um meira
raunsæi og efnishyggju. Það var samt dálítið
gaman af þessu með verurnar frá öðrum
hnöttum. og í sjálfu sér ekki ástæða til að
agnúast út af því. Það væri samt meira gaman
Gerið enn betur
Þær breytingar sem þið hafið verið að gera á
Þjóðlífi síðustu mánuði eru vissulega til
bóta. en betur má ef duga skal, eins og kerl-
ingin sagði. Mér finnst að þið gerið lands-
byggðinni ekki nógu hátt undir höfði, þó ég
vissulega verði var við viðleitni. Sem fjöl-
skyldumaður vildi ég gjarnan að þið hefðuð
barnaþátt í blaðinu og sem Húnvetningur
geri ég blátt áfram kröfu um vísnaþátt og
umfjöllun um hestamennsku. Með kveðju
að norðan.
Kristinn Húnvetningur.
3