Þjóðlíf - 01.02.1988, Síða 65
VIÐSKIPTI O G FJÁRMÁL
Fjárfestingar
í Argentínu
ítalski þingmaöurinn og pornó-
stjarnan Ilona Staller hefur nú
tekið að sér verkefni fyrir ítalska
bankaheiminn. Hún á að taka
þátt í opnun nýrrar hótelkeðju,
svokallaðra „ástarhótela", þar
sem væntanlegir gestir eiga
einnig að geta fengið gistingu í
nokkra klukkutíma. Hótelkeðj-
an er fjármögnuð af einum
stærsta banka Ítalíu, Banca
Nazionale del Lavoro, eftir að-
ferð sem notuð hefur verið upp
á síðkastið til erlendra fjárfest-
inga í löndum sem skulda mikið
og búa við óðaverðbólgu. Sá
sem fjármagnar kaupir fyrir
galdeyri argentísk skuldabréf
með gífurlegum afföllum, síðan
er bréfunum skipt og fjármagn-
ari fær andvirði bréfanna í arg-
entískri mynt á nafnvirði...
Búðargluggi með Reebok-
skóm.
Mestur gróði
Meðal 880 hlutafélaga sem hafa
hluti til sölu í kauphallarvið-
skiptum í Bandaríkjunum hefur
bandaríska viðskiptatímaritið
„Forbes" útnefnt fyrirtækið
„Reebok International-1 sem
ábatasamasta firmað síðustu
misseri. Reebok framleiðir
íþróttaskó og er breskt að upp-
runa. Á síðustu þremur árum
jók firmað ágóða sinn um 200%
að meðaltali á ári. Árangur
þessa bandaríska fyrirtækis hef-
ur aðallega verið á kostnað
þýsku sportfyrirtækjanna Adi-
das og Puma....
Ikona Staller þingmaður á
ítalska þinginu tekur þátt í
fjárfestingaævintýrum landa
sinna í Argentínu.
Ford í fjórða lið
Nýlega komust afkomendur
Henrys gamla Fords í fjórða Iið í
aðalstjórn bílaverksmiðjanna.
Þeir Edsel B. Ford 2, 39 ára
gamall og frændi hans William
Clay Ford jr. þrítugur að aldri
urðu þessarar náðar aðnjótandi,
sá fyrrnefndi er sölustjóri fyrir
Lincoln og Mercury en sá síðar-
nefndi er forstöðumaður Ford-
miðstöðvarinnar í Sviss. Áður
en til þessa kom var var fjöl-
skyldumeðlimur Ford síðast í
stjórn hringsins árið 1980. Það
var Henry Ford 2., sem lýsti því
yfir að í þessum hring væri eng-
inn krónsprins og átti þar við að
ekki væri sjálfgefið að meðlimir
Fordfjölskyldunnar rykju upp á
toppinn í fyrirtækinu...
Tuborg leggur undir sig lönd
Fyrirtækjahringurinn Reemt-
sma, sem hefur aðallega verið í
tóbaksframleiðslu og á bjór-
verksmiðjur víða um Þýskaland
hefur nýverið selt dönsku Tu-
borg / Carlsberg-verksmiðjun-
um bjórfyrirtækið Hannen í
Rínarlöndum. Reemtsma
hringurinn varð verulega vold-
ugur í sígarettuframleiðslu en
hefur þegar þurft að selja undan
sér nokkrar bjórverksmiðjur
víða um Þýskaland. Stærstu
hluthafarnir Michael og Gunter
Herz, sem einnig eiga kaffi-
brennslufyrirtækið Tchibo og
kallaðir kaffi-kóngar þykja eiga
vissa sök á stöðugum samdrætti
hringsins á umliðnum árum ....
SLANGUR
Nokkrar feitar
Menn í íslenska viðskiptalíf-
inu nota ýrniss konar slangur-
yrði eins og aðrir þjóðfélags-
hópar og í orðanotkun þeirra
eru sams konar tískusveiflur
og þekkjast meðal unglinga.
Þegar talað er urn miljónir
króna er oft talað um „mill-
ur" og er það orð klárleg af-
bökun af miljón. Um sömu
upphæð er einnig talað um
„feita". Þetta eða hitt kosti
„nokkrar feitar". Þá er einnig
talað um „kúlur" í nf. et.
„kúla" en ekki er uppruni
orðsins ljós. Um vel heppnuð
viðskipti er oft notað orðið
„púsl", væntanlega vegna
þess að menn hafi „púslað"
saman dæmi þannig að lausn
fengist; „púsl". Þar af leið-
andi geta menn fengið nokkr-
ar kúlur út úr vel heppnuðu
púsli — en viðbúið að þeir
hafi þurft að leggja nokkrar
millur í púkkið áður ...
Kaffidrykkja
í rénum
Kaffibrennslufyrirtæki á megin-
landi Evrópu óttast nokkuð um
sinn hag, þar sem kaffineysla
dregst stöðugt saman. Að vísu
jókst gróði verksmiðjanna lítil-
lega á síðasta ári t.d. í Þýska-
landi, en vitað er að kaffineyt-
endum fækkar stöðugt. Á síð-
ustu árum er talið að
kaffifjendum hafi fjölgað úr því
að vera 13% í 17% fullorðinna
Þjóðverja. í Bandaríkjunum er
þróunin komin enn lengra, og
talið að tveir þriðju hlutar full-
orðinna láti blessaðan sopann
alveg eiga sig. Jacobs kaffi-
verksmiðjurnar í Þýskalandi
bregðast við með markaðsátaki
og höfða til unglinga. Tilað-
mynda byrjar fyrirtækið með
nýtt merki, „Swing" og með
Kaffidrykkjumenn.
gjörbreyttri auglýsingataktik. í
stað vingjarnlegra kvenna á
miðjum aldri eiga auglýsinga-
myndir að sýna frjálslega ungl-
inga í léttum fötum og með
snaggaralegt orðfæri....
65