Frjáls verslun - 01.08.2014, Page 148
148 FRJÁLS VERSLUN 8-9 tbl. 2014
„Hagtölur bera merki þess að við
erum að upplifa góða tíma og
stór þáttur í því er m.a. vöxtur í
ferðaþjónustu.“
Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans:
óNógAr FjÁRFESTIngAR
1. Hvar finnst þér hafa tekist best til í
viðskiptalífinu undanfarið ár?
Markmið kjarasamninga hafa náðst fram,
betur en flestir áttu von á, með vaxandi
kaupmætti, minnkandi atvinuleysi og á
sama tíma lágri verðbólgu. Hagtölur bera
merki þess að við erum að upplifa góða
tíma og stór þáttur í því er m.a. vöxtur í
ferðaþjónustu. Hvað varðar Landsbankann
þá vil ég sérstaklega nefna tvennt; arð
greiðslu bankans upp á 20 milljarða króna
sem hjálpar til við að laga stöðuna á þeim
bænum sem er mikilvægt fyrir viðskipta
lífið, og svo samkomulagið við LBI hf. um
lengingu skuldabréfanna sem er að okkar
mati mikilvægur áfangi á leið okkar til
afnáms hafta.
2. Hverjir eru helstu veikleikar íslensks
viðskiptalífs?
Ónógar fjárfestingar og fábreytni koma
upp í hugann. Við þurfum að marka skýrari
sýn og móta leiðir til að byggja upp öflugar
og fjölbreyttar útflutningsgreinar þannig að
hagsæld vaxi hér á landi á komandi árum.
3. Hvaða þrír lykilþættir í stjórnun finnst
þér mikilvægastir?
Skýr sýn, koma hlutunum í framkvæmd og
treysta öðrum. Það er mikilvægt fyrir stjórn
endur að hlusta vel og láta bestu rökin ráða.
4. Finnst þér lífeyrissjóðir vera orðnir of
áhrifamiklir í viðskiptalífinu?
Bæði já og nei. Lífeyrissjóðir hafa þann
kost að þeir eru í eigu almennings og
þar liggur mikill sparnaður sem nýtist
öllu hagkerfinu. Á móti liggur ábyrgð á
ákvörð unum nokkuð fjarri eigendum.
Lífeyris sjóðir þurfa að vera meðvitaðir
um sína stöðu og mega ekki haga sér sem
einn hópur. Aðilar sem hafa þar áhrif, s.s.
verkalýðshreyfingin, mega ekki falla í þá
gryfju að gera kröfu um og reyna að stýra
þannig að þeir verði einsleitur hópur.
5. Hyggst fyrirtæki þitt fjárfesta á næstu
sex mánuðum og/eða bæta við sig
starfsfólki?
Fyrirtækið hyggst fjárfesta í innviðum
en reiknar ekki með að starfsfólki fjölgi.
Ýms um verkefnum er að ljúka og áherslan
verður áfram á hagræðingu.
6. Einhver erlendur leiðtogi – lífs eða
liðinn – sem hefur hrifið þig vegna
stjórnkænsku?
Nelson Mandela.
7. Á að selja áfengi í matvörubúðum?
Já, en það þarf samt sem áður að vera háð
ákveðnum skilyrðum. Hlusta þarf á mótrök
og taka tillit til varnaðarorða.
Steinþór Pálsson, bankastjóri landsbankans.
OPNI HÁSKÓLINN Í HR
Endurmenntun fyrir sérfræðinga og
stjórnendur í íslensku atvinnulífi
LENGRI NÁMSLÍNUR
• APME verkefnastjórnun
• Ábyrgð og árangur stjórnarmanna
• Markþjálfun
• Stjórnendur framtíðar -
PMD stjórnendanám HR
• Rekstrar- og fjármálanám
• Rekstrarnám fyrir hönnuði
• Stafræn markaðssetning
• Straumlínustjórnun
• Vörustjórnun, í samstarfi við AGR
• Verðbréfamiðlun
• Viðurkenndir bókarar
SÉRSNIÐIN NÁMSKEIÐ FYRIR
FYRIRTÆKI OG STOFNANIR
Opni háskólinn í HR sérsníður námskeið
fyrir fyrirtæki og stofnanir í samvinnu
við akademískar deildir háskólans.
Námskeiðin eru byggð á áskorunum
fyrirtækja hverju sinni. Efnistök eru
einkum sótt til sérfræðinga HR,
sérfræðinga í íslensku atvinnulífi og til
erlendra samstarfsaðila.
Upplýsingar um námslínurnar
eru á vefnum opnihaskolinn.is
Guðmundur Arnar Þórðarson
Vörustjóri hýsingar og rekstrar hjá Reiknistofu bankanna
Námskeið: PMD stjórnendanám HR
„Kennsluformið hentar mjög vel, þar sem unnið er í
lotum með eitt viðfangsefni í einu tvo daga í senn, en
ég á unga fjölskyldu og er í krefjandi starfi og það tókst
mjög vel að láta það ganga upp. Það var einnig mjög gott
að fara í skólann einu sinni í mánuði, því þó ég væri að
innbyrða mikið af þekkingu á þeim tíma þá kom ég alltaf
endurnærður aftur til vinnu með nýjar hugmyndir og
áskoranir til að láta reyna á.“
Hvernig MEtA ÞAU stöðuna?