Bæjarins besta - 22.12.2010, Qupperneq 2
2 MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 2010
Gert er ráð fyrir því að útsvars-
prósenta ársins 2011 í Súðavík-
urhreppi verði 13,28% sem er
lögbundið hámark og að útsvars-
tekjur ársins verði 55 milljónir
samanborið við 56,1 milljónir á
árinu 2009. Þetta kemur fram í
minnisblaði með fjárhagsáætlun
sveitarfélagsins sem samþykkt
var fyrir helgi. Þar er gert ráð
fyrir að fasteignaskattur á íbúðar-
húsnæði (A) hækki um 11,9%
milli ára og verði 0,47% af fast-
eignamati húss og lóðar, Fast-
eignaskattur á opinbert húsnæði
í eigu ríkisins (B) verður óbreytt,
1,32% og fasteignagjöld á iðn-
aðar-, skrifstofu- og verslunar-
húsnæði (C) verður einnig óbreytt
1,65%.
Vatnsgjald verður óbreytt
0,30% og holræsagjald óbreytt
0,22% af fasteignamati húss og
lóðar. Lóðarleiga í (A) flokki
fasteigna hækkar úr 1,25% í
1,50% og lóðarleiga í (B) flokki
fasteigna hækkar úr 1,25% í
1,60% af fasteignamati lóðar fyr-
ir íbúðarhús. Sorphreinsigjald á
hverja íbúð verður 11.898 kr. og
sorpeyðingargjald er 14.872 kr.
á hverja íbúð og hækkar þau gjöld
um 10% á milli ára.
Sorphreinsi- og eyðingargjöld
á sumarhús í Álftafirði og lögbýli
í Djúpi hækkar úr 13.520 kr. í
17.576 kr. sem er 30% hækkun
milli ára og sorphreinsi- og eyð-
ingargjöld á sumarhús með tak-
markaða íveru hækkar úr 7.666
kr. í 13.385 kr. sem er 74,60%
hækkun milli ára. Rotþróagjald
verður 15.500 kr. og hækkar um
24,0% milli ára.
Veittur er 5,0 % staðgreiðslu-
afsláttur ef öll fasteignagjöldin
eru greidd fyrir 4. mars 2011.
Veittur er afsláttur af fasteigna-
gjöldum til handa elli- og ör-
orkulífeyrisþegum samkvæmt
tekjuviðmiðun. Gert er ráð fyrir
79,8 millj. frá jöfnunarsjóði sem
er 3,6% hækkun frá árinu 2010.
Skýrist það að mestu vegna
hækkunar á útgjaldajöfnunar-
framlagi milli ára.
Þjónustutekjur (A) hluta sam-
kvæmt áætlun er áætlaðar 17,1
milljónir sem er 1,3 milljónum
krónum lægra en áætlað var á
árinu 2010. Þjónustutekjur (A)
og (B) hluta samkvæmt áætlun
er áætlaðar 34,1 milljónir sem er
3,3 milljónum kr.lægra en áætlað
var á árinu 2010. Veltufé frá (A)
hluta reksturs er áætlað 11,8
milljónir en af samstæðunni (A)
og (B) hluta 25,5 milljónir.
Flestir gjaldskrárliðir hækka
um 5,0% milli áranna 2010 og
2011, en engar hækkanir urðu á
árinu 2010 frá árinu á undan. Á
sama tíma, þ.e. árin 2009 og 2010
hefur vísitala neysluverðs hækk-
að um 13,3%. Tekjur vegna húsa-
leigu er tengd við vísitölu neyslu-
verðs en var húsaleigan aftengd
við vísitöluna um mitt árið 2009
vegna mikilla hækkana hennar.
Gert er ráð fyrir að húsaleiga
verði tengd við vísitölu neyslu-
verðs eftir áramót og taki hækk-
unum frá þeim tímapunkti. Afla-
gjald sem reiknast af heildarverð-
mæti afla hækkar úr 1,30% í 1,60%.
55 milljónir í útvarstekjur
Sjö nemendur voru brautskráðir frá Menntaskólanum á Ísafirði við hátíðlega athöfn í
Ísafjarðarkirkju á laugardag. Nemendur fengu afhent prófskírteini og viðurkenningar og kór
MÍ söng undir stjórn Bjarneyjar Ingibjargar Gunnlaugsdóttur. Þau sem brautskráðust að
þessu sinni voru Hilmar Örn Þorbjörnsson úr A-námi vélstjórnar, Ásrún Lárusdóttir og Krist-
ín Úlfarsdóttir af sjúkraliðabraut, Erla Pálsdóttir og Sigríður Ágústa Finnbogadóttir af fé-
lagsfræðabraut og Erla Sighvatsdóttir og Snorri Karl Birgisson af náttúrufræðibraut. Þær Ás-
rún og Kristín fengu viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur í hjúkrunargreinum og
Erla Sighvatsdóttir fékk verðlaun fyrir góðan árangur í náttúrufræðigreinum og á stúdentsprófi.
Sjö brautskráðir frá MÍ
Vinnslu á mjólk hætt frá ein-
um bæ í Engidal í Skutulsfirði
MS á Ísafirði hefur hætt vinn-
slu á mjólk frá einum bæ í Engi-
dal í Skutulsfirði í öryggisskyni.
Við sérstakar mælingar á vegum
MS á Ísafirði sem gerðar voru á
mjólkursýnum frá lögbýli í Skut-
ulsfirði kom í ljós í mælingu á
einu sýni þaðan að þrávirk að-
skotaefni voru lítillega yfir við-
miðunarmörkum. Mjólkin frá
þessu lögbýli nemur um 3% af
innvigtaðri mjólk á Ísafirði og
því er talið nær útilokað að þessi
efni hafi verið yfir leyfilegum
mörkum í afurðum stöðvarinnar.
Af öryggisástæðum var vinnsla
mjólkur frá framangreindum bæ
stöðvuð og dreifing stöðvuð á
afurðum sem rekja mátti þangað.
Heilbrigðisyfirvöldum og bæj-
aryfirvöldum á Ísafirði var gert
viðvart um mæliniðurstöðuna.
Bærinn sem hér um ræðir er ná-
lægt sorpbrennslustöðinni Funa
í Engidal. Mælingar á þrávirkum
efnum eru á hendi opinberra eftir-
litsstofnana sem láta gera mæl-
ingarnar erlendis.
Á vegum Matvælastofnunar
eru gerðar reglubundnar mæling-
ar á efnum af þessu tagi í slembi-
úrtökum á bæjum þar sem mjólk
er framleidd. Í þeim mælingum
hafa mæligildi alltaf verið langt
undir viðmiðunarmörkum. Mjólk-
ursamsalan telur því að þessi að-
skotaefni séu bundin við þennan
eina bæ.
Aðgerðir MS eru fyrst og
fremst í öryggisskyni. Útþynning
mjólkur frá þessum tiltekna bæ
er slík í framleiðslunni að útilok-
að er talið að efnamengun hafi
verið nálægt viðmiðunarmörkum
í nokkrum framleiðsluvörum á
Ísafirði. Mjólkurvinnslustöðin á
Ísafirði framleiðir eingöngu neyslu-
mjólk og rjóma fyrir heimasvæð-
ið á Vestfjörðum.
Mjólkursamsalan gerir á hverj-
um degi ítarlegar efnamælingar
á mjólk frá öllum bændum á inn-
vigtunarsvæði félagsins. Þær
mælingar fela ekki í sér rannsókn
á þrávirkum efnum, sem þarf eins
og fyrr segir, að gera erlendis.
Mælingar og eftirlit með slíkum
efnum í umhverfinu eru á hönd-
um opinberra eftirlitsstofnana.
MS Ísafirði lét engu að síður
gera slíka mælingu og hefur þeg-
ar komið í veg fyrir að vörur
með mjólk frá framangreindu
býli komist á markað. Félagið
hefur þegar komið upplýsingum
um niðurstöður mælinga á fram-
færi við opinbera aðila sem hafa
með málið að gera. Framhald
málsins og frekari mælingar eru
í höndum þeirra í samvinnu við
hlutaðeigandi aðila.
Yrsa hlaut
Tindabikkjuna
Glæpafélag Vestfjarða Tinda-
bikkjuna veitti í fyrsta sinn á
föstudag, fyrir bestu glæpasögu
ársins 2010, á barnum Langa
Manga á Ísafirði. Tindabikkju-
hafi ársins 2010 er Yrsa Sigurðar-
dóttir og hlýtur hún verðlaunin
fyrir skáldsöguna Ég man þig.
Að launum hlýtur Yrsa viðeig-
andi verðlaunagrip, sem mynd-
listarkonan Marsibil Kristjáns-
dóttir hannaði, bókina Vestfirðir
í máli og myndum eftir Hjálmar
R. Bárðarson sem Eymundsson
á Ísafirði gefur, auk tveggja kílóa
af skötu í soðið. Yrsa er stödd í
Chile þessa dagana og gat því
ekki veitt verðlaununum viðtöku
en vinkona hennar á Ísafirði,
Halldóra Hreinsdóttir, tóku við
þeim fyrir hennar hönd. Glæpa-
félaginu þótti vissara að verð-
launaafhendingin sjálf væri í
öruggum höndum og fékk Önund
Jónsson yfirlögregluþjón á Ísa-
firði til að afhenda verðlaunin.
Í umsögn dómnefndar segir:
„Dómnefnd glímdi við það erfiða
verkefni að velja eina bók úr
hópi fjölmargra íslenskra glæpa-
sagna ársins 2010 sem eru hver
annarri meira spennandi. Verð-
launin, Tindabikkjan, sem nú eru
veitt í fyrsta sinn, hlýtur Yrsa
Sigurðardóttir fyrir bókina Ég
man þig sem bókaforlagið Ver-
öld gefur út. Þetta er sjötta glæpa-
saga Yrsu.