Bæjarins besta - 22.12.2010, Qupperneq 4
4 MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 2010
Gistinætur á hótelum á Vestur-
landi og Vestfjörðum voru rúmar
2.600 í október sem er 15% aukn-
ing miðað við sama mánuð í
fyrra. Á landinu öllu fækkaði gisti-
nóttum um rúm 4% en samdrátt-
urinn náði eingöngu til höfuð-
borgarsvæðisins þar sem gisti-
nóttum fækkaði um 10% milli
ára, en í öllum landshlutum var
aukning á gistinóttum milli ára.
Hlutfallslega fjölgði gistinóttum
mest á Norðurlandi eða um 35%.
Fyrstu tíu mánuði ársins hefur
gistinóttum á landinu öllu fækk-
að um rúm 3% milli ára en á
Suðurnesjum, Vestfjörðum og
Vesturlandi fjölgaði þeim um
sömu prósentu tölu. Annars stað-
ar á landinu var um samdrátt að
ræða.
Af þeim 2.635 gistinóttum á
Vestfjörðum í október sl., áttu
Íslendingar 1.694 nætur og út-
lendingar 941. Fjöldi útlendingar
stóð nánast í stað á með gisti-
nóttum Íslendinga fjölgaði um
nær fjórðung. Gistinóttum yfir
sumartímann, þ.e. frá maí til sept-
ember, fjölgaði um 2.118 milli
ára á Vestfjörðum og Vestur-
landi, sem er ríflega 6% aukning.
Hagstofan birtir talnaefni um
gistinætur og á vef stofnunar-
innar er athygli vakin á því að
tölurnar taka eingöngu til gisti-
nátta á hótelum, þ.e. hótelum sem
opin eru allt árið. Til þessa flokks
gististaða teljast hvorki gisti-
heimili né hótel sem eingöngu
eru opin yfir sumartímann.
– kte@bb.is
Gistinóttum fjölg-
ar á Vestfjörðum
„Þetta lítur afskaplega vel út.
Nú þegar hafa 35 skip staðfest
komu sína næsta sumar sem er
nokkuð meira en á síðasta ári
þegar skipin voru 30 talsins,“
segir Guðmundur M. Kristjáns-
son hafnarstjóri Ísafjarðarbæjar.
„Síðasta sumar komu 28 skip til
Ísafjarðar, en af þeim 30 sem
höfðu pantað forfallaðist eitt vegna
veðurs og annað vegna bilunar.
Ég veit að eitt skipafélag, sem
boðað hefur komu sína næsta
sumar með tvö skip, er í rekstrar-
erfiðleikum. Félagið hefur ekki
afpantað en ekki er loku fyrir
það skotið. Á móti kemur að ég
veit um skip sem ekki hafa pantað
en ætla engu að síður að koma
hingað næsta sumar, þannig við
getum áætlað að þessar 35 bók-
anir standi, plús/mínus tvö skip,“
segir Guðmundur.
Nýlega greindi Morgunblaðið
frá því að útlit væri fyrir að færri
skemmtiferðaskip myndu koma
til Reykjavíkur en greinilega nær
sá samdráttur ekki til Vestfjarða.
Guðmundur var nýlega á ráð-
stefnunni Sea Trade Europe sem
haldin var í Cannes í Frakklandi
og þar hitti hann marga forsvars-
menn skipafélaga. „Það eru nátt-
úrulega sveiflur í þessum geira
eins og öðrum. Það er greinlegt
að það efnahagsástandið í Evrópu
hefur haft áhrif og nokkur þýsk
félög eru í erfiðleikum. En það
eru líka góða fréttir. Til dæmis
byrjaði ítalska skipafélagið MSC
að sigla til okkar síðasta sumar
og það hefur bókað komu sína
aftur næsta sumar, en þar að auki
hefur það bókað tvö skip fyrir
sumarið 2012. Þetta er mjög stórt
félag sem hóf í fyrsta sinn að
sigla til Norður Evrópu á þessu
ári, þannig þetta gefur góð fyrir-
heit um það sem koma skal,“
segir Guðmundur og bætir bætir
við að bókanir fyrir sumarið 2012
gangi mjög vel. „Nú þegar liggja
fyrir bókanir á 13 skipum sem
miðað við árstíma er mjög gott.“
Aðspurður segir Guðmundur
skemmtiferðaskipin skipti höfn-
ina miklu máli. „Já, þau gera það
svo sannarlega. Nú kemur um
þriðjungur af tekjum hafnarinnar
frá skemmtiferðaskipum og mun-
ar um minna, sér lagi í ljósi þess
að vertíðin stendur yfir í aðeins
tvo og hálfan mánuð. Fyrir utan
alla tekjurnar sem farþegarnir
skapa fyrir samfélagið og þá fyrst
og fremst í ferðaþjónustu.“ Hann
segir þó að Ísafjörður gæti gert
meira til að laða til sín umferð
skemmtiferðaskipa. „Þróunin er
sú að skipin fara stækkandi og
við þurfum að bæta aðstöðu okk-
ar til þess að geta tekið á móti
stærstu skipunum. Okkar fram-
tíðarsýn er sú að hægt verði að
taka móti öllum skipum á nýupp-
gerðum Ásgeirsbakkanum sem
er 270 metra langur. En til þess
þarf fjármagn svo hægt sé að
dýpka sundin og breikka þau,“
segir Guðmundur.
– kte@bb.is
Stefnir í metár skemmtiferðaskipa