Bæjarins besta - 22.12.2010, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 2010
Útgefandi: Gúttó ehf., kt. 680501-2620, Sólgötu 9, 400 Ísafjörður, sími 456 4560, fax 456 4564. Ritstjóri: Sigurjón J. Sigurðsson, sími 892
5362, bb@bb.is. Blaðamenn: Thelma Hjaltadóttir, símar 456 4693 og 849 8699, thelma@bb.is. · Kristján Torfi Einarsson, sími 456 4560,
kte@bb.is · Ritstjóri netútgáfu bb.is: Sigurjón J. Sigurðsson. Ljósmyndari: Halldór Sveinbjörnsson, sími 894 6125, halldor@bb.is.
Ábyrgðarmenn: Sigurjón J. Sigurðsson og Halldór Sveinbjörnsson. Lausasöluverð er kr. 400 eintakið með vsk. Veittur er afsláttur
til elli- og örorkulífeyrisþega. Einnig sé greitt með greiðslukorti. Önnur útgáfa: Ferðablaðið Á ferð um Vestfirði. ISSN 1670 - 021X
Ritstjórnargrein
Jólaljós
Lítill drengur starir hugfanginn á kertaljósin á jólatrénu sem faðir
hans smíðaði og móðir hans vafði marglitum pappír. Á einni rúðu
stofugluggans mótar fyrir útlínum jólatrés sem hann hefur dregið í
hrímið á glerinu innanverðu og reynt að líkja eftir frummynd föð-
urins. Oft dundar hann sér við þá iðju að teikna á hélaðar rúðurnar.
Fyrr um daginn hafði hann farið út í geitakofa með föðurnum,
drukkið spenvolga mjólk úr emeleraða málinu sínu, eins og hann
var vanur, og fundið kuldabola bíta í kinnarnar á leiðinni milli húsa.
Nú nýtur hann ylsins og birtunnar frá kertaljósunum: Jólin eru kom-
in.
***
Gamall maður horfir aðdáunaraugum á fagurskreytt jólatré úti
fyrir reisumiklu, skrautlegu og gömlu húsi við steinlagða götu í
litlum bæ í framandi landi, sem er því líkastur sem hann hafi allur
verið klipptur út úr aldagömlu ævintýri. Ljósin á trénu sindra í ný-
föllnum snjónum á greinum þess líkt og stjörnurnar á himinhvolfinu.
Ysinn og þysinn í mannhafinu á torginu gleymist. Umhverfið er ein
ljósadýrð og kuldinn minnir ekki lengur á sig. Þótt aðventan sé enn
aðeins á næsta leyti fyllir dýrð jólatrésins út í það sem á vantar að há-
tíðin sé gengin í garð.
Tvisvar verður gamall maður barn. Við hlið mannsins, nýkomnum
af kaffihúsi, þar sem honum var skenkt sjóðheitt súkkulaði með
hjartastyrkjandi fyrir fullorðna útí, stendur allt í einu lítill drengur.
Saman horfa þeir á jólatréð. Gleðin flýtur um augu drengsins.
Hljóðlátt rennur tár niður vanga mannsins.
***
,,Í gullnum ljóma,
hver gjöf mér skín.
En kærust voru mér
kertin mín.“
Bæjarins besta sendir lesendum sínum nær og fjær sem og lands-
mönnum öllum hugheilar óskir um björt og gleðirík jól.
s.h. – Stefán frá Hvítadal: Jól.
Spurningin
Verður árið 2011 erf-
iðara fyrir Íslendinga
en árið 2010?
Alls svöruðu 541.
Já sögðu 370 eða 68%
Nei sögðu 171 eða 32%
Netspurningin er birt viku-
lega á bb.is og þar geta
lesendur látið skoðun sína
í ljós. Niðurstöðurnar eru
síðan birtar hér.
Helgarveðrið
Horfur á föstudag
(Þorláksmessu), laug-
ardag (aðfangadag) og
sunnudag ( 2 í jólum):
Líkur á austlægum áttum
með éljum í flestum
landshlutum. Dregur
smám saman úr frosti.
Rekstrarniðurstaða sam-
stæðureiknings Súðavíkur-
hrepps er jákvæð um 9,6
milljónir króna. Þetta kom
fram er fjárhagsáætlun sveit-
arfélagsins var samþykkt
samhljóða í síðustu viku.
Með áorðnum breytingum á
fjárhagsáætlun eru tekjur
samstæðureiknings Súðavík-
urhrepps, (A og B hluta),
áætlaðar 181,5 milljónir króna
og útgjöld áætluð 156 millj-
ónir króna. Niðurstaða rekst-
urs án fjármagnsliða og af-
skrifta er því jákvæð um 25,5
milljónir. Fjármagnsgjöld
umfram fjármagnstekjur eru
áætlaðar 6,4 milljónir og
afskriftir eru áætlaðar 9,5
milljónir. Áætlað er að fram-
kvæma fyrir 3,6 milljónir á
árinu 2011.
Helstu verkefni eru fram-
kvæmdir við uppsátur á Lang-
eyri, í endurbyggingu Eyr-
ardalsbæjar og í göngustíga-
gerð. Verða framkvæmdir
fjármagnaðar af eigin fé.
Jafnframt er gert ráð fyrir að
1,5 milljónum verði varið í
atvinnumálastyrki á árinu
2011 vegna nýrra starfa sem
til urðu á árinu 2010. Í fjár-
hagsáætlun er ekki reiknað
með tekjum og gjöldum
vegna yfirfærslu á málefnum
fatlaðra til sveitarfélaga um
n.k. áramót og gengið út frá
því að tekjur vegna mála-
flokksins verði jafnar út-
gjöldum og hafi því ekki áhrif
á heildarniðurstöðu rekstrar.
– thelma@bb.is
Jákvæð
rekstrar-
niðurstaða
Gjaldþrotaskiptum lokið eftir 17 ár
Gjaldþrotaskiptum á útgerðar-
fyrirtækinu Einari Guðfinnssyni
ehf. í Bolungarvík er loks lokið
eftir 17 ára uppgjörsferli. Grein
var frá þessu í vefútgáfu Lög-
birtingarblaðsins í síðustu viku.
Tæplega 56% greiddust upp í
tæplega 1,8 milljarða króna kröf-
ur. Einar Guðfinnsson hf. var
upphaflega stofnað af Einari
Guðfinnssyni útgerðarmanni og
afa Einars Guðfinnssonar alþing-
ismanns þann 1. nóvember árið
1924. Var dagsetningin miðuð
við kaup Einars á eignum Nathan
& Olsen í Bolungarvík. Varð fé-
lagið fljótlega mjög öflugt og
starfaði nánast á öllum sviðum
atvinnulífs í Bolungarvík um ára-
tuga skeið. Átti m.a. stóran hlut í
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna
og Tryggingamiðstöðinni. Í
kjölfar erfiðleika sem urðu í
rekstrinum á níunda áratugnum
voru gerðar skipulagsbreytingar
á félaginu 1. janúar árið 1991 en
það dugði þó ekki til að forða því
frá gjaldþroti. Hafði gjaldþrotið
því víðtæk áhrif á allt atvinnulífið.
Einar Guðfinnsson ehf., var
tekið til gjaldþrotaskipta með úr-
skurði héraðsdóms Vestfjarða
uppkveðnum 15. febrúar 1993.
Lýstar kröfur námu samtals
1.757.928.018 krónum. Skiptum
á búinu var ekki lokið fyrr en 23.
mars 2010. Greiddust 1.012.904.
274 krónur upp í kröfur eða
55,692%. Af þeim voru sam-
þykktar veðkröfur 1.500.392.155
krónur og upp í þær greiddust
894.045.837 krónur eða 59,587%.
Samþykktar forgangskröfur í
búið voru 86.701.836 krónur og
upp í þær fengust 84.972.425
krónur eða 98,006%. Ekkert
fékkst hinsvegar upp í lýstar
almennar kröfur.
Greiddi útgerðarfélagi Guð-
jóns Arnars fyrir ráðgjöf
Sjávarútvegs- og landbún-
aðarráðuneytið hefur greitt
útgerðarfélaginu Ískrók ehf.
um 6,8 milljónir króna vegna
ráðgjafar við fiskveiðistjórn-
un. Félagið er í eigu Guðjóns
A. Kristjánssyni, fyrrverandi
alþingismanns. Þetta kemur
fram í svari Jóns Bjarnason,
sjávarútvegs- og landbúnaðar-
ráðherra, við fyrirspurn frá
Kristjáni Þór Júlíussyni al-
þingismanni. Hann sagði í
samtali við mbl.is að þessi
ráðstöfun væri afar óeðlileg.
„Það er spurning hvers
vegna ráðherra ræðir ekki við
Samherja, Granda eða
Vinnslustöðina eða einhvern
annan og borgar þeim kaup
fyrir. Þetta er auðvitað ekki í
lagi,“ sagði Kristján. Í svarinu
kemur fram að ráðuneytið
greiddi Ískrók ehf. 2 milljónir
í fyrra fyrir „ráðgjöf vegna
fiskveiðistjórnunar“ og 4,7
milljónir það sem af er þessu
ári. Samkvæmt upplýsingum
frá sjávarútvegs- og landbún-
aðarráðuneytinu er Ískrókur
félag í eigu Guðjóns Arnars
Kristjánssonar og fjölskyldu
hans. Guðjón Arnar hafi sinnt
verkefnum í ráðuneytinu og
þegið verktakagreiðslur fyrir.
Guðjón Arnar Kristjánsson.