Bæjarins besta - 22.12.2010, Síða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 2010
Sendum okkar bestu óskir um gleðilega
jólahátíð og þökkum árið sem er að líða
Sendum okkar bestu óskir um gleðilega
jólahátíð og þökkum árið sem er að líða
Sendum okkar bestu óskir um gleðilega
jólahátíð og þökkum árið sem er að líða
Sendum okkar bestu óskir um gleðilega
jólahátíð og þökkum árið sem er að líða
Sendum okkar bestu óskir um gleðilega
jólahátíð og þökkum árið sem er að líða
Sendum okkar bestu óskir um gleðilega
jólahátíð og þökkum árið sem er að líða
Grundarstígur 5 · Bolungarvík
Sindragötu 11 · Ísafirði
TH ehf.,
Suðurtangi 6 · Ísafirði
TAXI
Leigubílar Ísafirði
Sími 456 3518
Gamla sjúkrahúsið
Safnahúsið
Sólgata 9 · Ísafirði
„Við verðum sýnilegir og
stöndum fyrir kröftugu eftir-
liti yfir jólahátíðina að venju,“
segir Önundur Jónsson, yfir-
lögregluþjónn hjá lögregl-
unni á Ísafirði.
„Lögreglumenn verða
mikið á ferðinni og munu
hafa vakandi auga með öku-
mönnum. Þá verður vel
fylgst með umferð til og frá
bænum bæði úr lofti, láði
og legi. Við gerðum þetta
líka á síðasta ári og ég verð
að hrósa ökumönnum á
svæðinu sem virðast vera
vel meðvitaðir um hættuna
sem felst í því að blanda
saman áfengi og akstri. Það
sem af er ári hefur líka
brotum tengdum ölvunar-
akstri dregist stórlega saman
og vil ég koma þakklæti á
framfæri til ökumanna fyrir
það,“ segir Önundur.
– kte@bb.is
Aukið eftir-
lit um jólin
Fíkniefnabrotum hefur fækkað á Vestfjörðum undanfarin þrjú
ár. Á síðasta ári fækkaði þeim úr um 50 niður í 9 samkvæmt árs-
skýrslu ríkislögreglustjóra um afbrotatölfræði ársins 2009. Þá
lækkaði tíðni eignaspjalla töluvert á Vestfjörðum milli ára en þau
voru 53 talsins í fyrra. Í skýrslunni kemur fram að umferðarlaga-
brot á hverja 10.000 íbúa voru flest á Vestfjörðum og Vesturlandi
eða 5.197, þar af 617 á Vestfjörðum, sem er fjórðungur umferðar-
lagabrota var framinn var á árinu.
Fjöldi tilkynntra líkamsmeiðinga var 37 í umdæminu og kyn-
ferðisbrot voru níu og hafði þeim fækkað frá undanförnum tveimur
árum. Auðgunarbrot voru 68 og áfengislagabrot 19. Einungis eitt
skjalafalsbrot var skráð í umdæminu á síðasta ári og fjögur til-
felli um nytjastuld. Brotum gegn friðhelgi einkalífsins fækkaði
töluvert á Vestfjörðum og voru þau 16 talsins á síðasta ári. Fæst
brot gegn valdstjórninni voru á Vestfjörðum eða fjögur.
Fjöldi hegningarlagabrota miðað við 10.000 íbúa var 201 á
Vestfjörðum á síðasta ár. Þá var 7% kærðra einstaklinga vegna
hegningarlagabrota á Vestfjörðum og Vesturlandi. Fjöldi sérrefsi-
lagabrota á sama mælikvarða var 88. Í skýrslunni kemur m.a.
fram að niðurskurður fjárveitinga og fækkun lögreglumanna
birtist í því að skráðum afbrotum sem byggja á miklu leyti á
frumkvæðisvinnu lögreglu hefur fækkað.
Frá árinu 2001 hefur ríkislögregluembættið gefið út sérstaka
skýrslu um afbrotatölfræði auk mánaðarlegrar skýrslu með
bráðabirgðatölum í samanburði við sömu mánuði undanfarinna
ára. Enn fremur hefur embættið staðið fyrir því að gerðar eru
ítarlegar rannsóknir á einstaka afbrotum þar sem skyggnst er
enn betur í gögn lögreglunnar. „Með því móti er varpað ljósi á
þróun afbrota í samfélaginu en jafnframt birt mynd af störfum
lögreglumanna við oft erfiðar og vandasamar aðstæður,“ segir í
ársskýrslunni.
– thelma@bb.is
Fíkniefnabrotum fer fækkandi