Bæjarins besta - 22.12.2010, Síða 19
MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 2010 19
Bæjarstjórn Ísafjarðar-
bæjar hefur samþykkt að
auglýsa sjö fasteignir bæjar-
ins til sölu eða leigu. Eign-
irnar eru staðsettar á Ísafirði,
Þingeyri og í Hnífsdal.
Þær eru Skólagata 10 á
Ísafirði, leikskólinn Bakka-
skjól í Hnífsdal, Kaupfé-
lagshúsið á Ísafirði, áhalda-
húsið á Þingeyri, bæjarskrif-
stofurnar á Þingeyri, Silfur-
gata 5 á Ísafirði sem kallað
er Straumshús í daglegu tali
og íbúð að Sundstræti 14 á
Ísafirði eða svokölluð Kálfa-
vík. Var tillaga um að leitast
eftir sölu eða leigu eignanna
samþykkt samhljóða á síð-
asta bæjarstjórnarfundi.
Vill selja og
leigja sjö
fasteignir
Skólagata 10.
Frystihúsi breytt í listahús
Hópur listamanna er að koma
upp listahúsi í húsnæði Norður-
tangans á Ísafirði. Félagarnir leita
nú að fólki sem vill deila þessu
verkefni með þeim og segja
möguleikana fyrir nýtingu húss-
ins vera óendanlega. „Það sem
rak okkur af stað var skortur á
vinnustofum og húsnæði fyrir
hljómsveitir,“ segir Matthildur
Helgadóttir Jónudóttir, einn lista-
mannanna sem hefur aðsetur í
húsinu. Meiningin er að aðstaða
verði leigð til listamanna í húsinu
gegn sanngjörnu verði.
„Fólk sem hefur listina sem
áhugamál á að geta staðið undir
þessu. T.d. ef einhver er einn
heima að mála getur hann komist
inn með stæði í sal hér. Það er
mikið skemmtilegra og meira
gefandi að vera innan um aðra,“
segir Matthildur. Áhugasamir eru
hvattir til að hafa samband en fyrst
um sinn verður leigan í formi
vinnu við að gera upp húsið.
Húsið er ætlað listamönnum
af öllum stærðum og gerðum.
„Mjög gaman verður að fá ólíka
listamenn undir sama þak og
þannig leiða saman leikarana,
ljósmyndara og listmálara og
hvað eina. Það gætu komið nýir
og spennandi hlutir út úr því,“
segir Matthildur.
Meðal þess sem nú þegar er
komið með fast aðsetur í húsinu
er Kómedíuleikhúsið, eina at-
vinnuleikhús Vestfjarða. Elfar
Logi Hannesson segist telja að
verið sé að auka verðmæti húss-
ins með því að fylla það lífi og
menningu. „Hér getur fólk komið
saman til að skapa menningu í
sátt og samlyndi. Það vantaði
aðstöðu fyrir einyrkjana sem eru
að dútla heima í stofu en eru
samt að gera mjög áhugaverða
hluti.“
– thelma@bb.is
Meðal þess sem hýst er í Norðurtangahúsinu er fyrsti leiklistarskóli
Vestfjarða sem rekinn er af Kómedíuleikhúsinu. Mynd: Ágúst G. Atlason.