Bæjarins besta - 22.12.2010, Side 25
MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 2010 25
Auglýsing um deiliskipulag,
Dagverðardalur, Ísafjarðarbæ
Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar auglýsir hér með tillögu að deiliskipu-
lagi í Dagverðardal, Ísafjarðarbæ skv. 25. gr. skipulags- og byggingar-
laga nr. 73/1997 með síðari breytingum.
Deiliskipulagstillagan er tæpir 23 ha. að stærð, liggur í vestur af Hníf-
um í mynni Dagverðardals. Svæðið er í 15-100 m h.y.s. og hallar til suð-
vesturs. Gott útsýni er yfir Eyrina og Djúpið. Svæðið er ætlað fyrir íbúð-
arbyggð, sumarhúsabyggð og léttan iðnað. Gert er ráð fyrir nýrri íbúð-
arbyggð með 60 lóðum og fjölgun sumarhúsalóða um 22. Einnig er
gert ráð fyrir 10 nýjum lóðum fyrir léttan iðnað í nágrenni við lóð Vega-
gerðarinnar.
Deiliskipulagstillagan verður til sýnis á bæjarskrifstofum í Stjórn-
sýsluhúsinu, Hafnarstræti 1, Ísafirði og á heimasíðu Ísafjarðarbæjar
www.isafjordur.is frá og með 23. desember 2010 til og með 20. janúar
2011. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn
kostur á að gera athugasemdir við deiliskipulagstillöguna. Frestur til
að skila inn athugasemdum rennur út 3. febrúar 2011. Skila skal inn
athugasemdum á bæjarskrifstofur Ísafjarðarbæjar, Stjórnsýsluhúsinu,
Hafnarstræti 1, Ísafirði. Þeir sem ekki gera athugasemdir við skipulags-
tillöguna fyrir tilskilinn frest teljast samþykkir henni.
Ísafirði 14. desember 2010.
Jóhann Birkir Helgason, sviðstjóri
framkvæmda- og rekstarsviðs.
Skoða flutning verkefna vegna
heilsugæslu til sveitarfélaganna
skráðir sem skjólstæðingar tiltek-
ins heilsugæslulæknis á heilsu-
gæslustöð í heimabyggð. Sérhver
heilsugæslulæknir verði ábyrgur
fyrir þeirri læknisþjónustu sem
þeim einstaklingum er veitt sem
eru á hans lista. Þessu fyrirkomu-
lagi skuli komið á í áföngum
sakir þess skorts sem enn er á
heilsugæslulæknum.“
Ein tillagan í skýrslunni er sú
að rafræn sjúkraskrá verði komin
í fulla notkun á landsvísu innan
þriggja ára. Heilbrigðisstofnun-
um og starfsstofum heilbrigðis-
starfsmanna, tveimur eða fleir-
um, er nú þegar heimilt að færa
og varðveita sjúkraskrár sjúkl-
inga í sameiginlegu sjúkraskrár-
kerfi. Tengdar hafa verið saman
sjúkraskrár í Vesturlandsum-
dæmi, Norðurlandsumdæmi, Aust-
urlandsumdæmi, Suðurlandsum-
dæmi og innan Heilsugæslu höf-
uðborgarsvæðisins.
„Mikilvægt er að ráðist verði í
að ljúka því að tengja saman öll
sjúkraskrár- og upplýsingakerfi
innan heilbrigðiskerfisins, að
uppfylltum þeim skilyrðum sem
sett hafa verið varðandi færslu
rafrænna sjúkraskráa, varðveislu
þeirra, aðgengi að þeim, að-
gangsstýringu og takmörkunum
Lagt hefur verið til að forsend-
ur fyrir flutningi verkefna heilsu-
gæslu til sveitarfélaga verði skoð-
aðar. Þessar tillögur og fleiri eru
settar fram í skýrslu um leiðir til
að efla heilsugæsluna sem fyrsta
viðkomustað fólks í heilbrigð-
iskerfinu. „Áhugi á flutningi
heilsugæslu og jafnvel annarra
þátta heilbrigðisþjónustu frá ríki
til sveitarfélaga hefur vaxið í
kjölfar sameiningar sveitarfélaga
og vilja til þess að treysta sveit-
arstjórnarstigið. Góð reynsla af
þjónustusamningum ríkisins við
Akureyrarbæ og Hornafjörð hef-
ur sýnt að heppilegt er að flétta
saman skipulag heilsugæslu og
félagslegra þjónustu. Samband
íslenskra sveitarfélaga er því
fylgjandi að heilsugæsla fylgi
með flutningi málefna fatlaðra
og aldraðra til sveitarfélaga.
Ganga verður úr skugga um hvort
forsendur séu fyrir því að hrinda
þessum flutningi í framkvæmd
innan næstu fimm ára,“ segir í
skýrslunni.
Þar er einnig lagt til að heilsu-
verndarstarf verði eflt á lands-
vísu. „Heilbrigðisþjónustan hef-
ur lagt vaxandi áherslu á for-
varnir, heilsuvernd og fræðslu í
því skyni að fyrirbyggja sjúk-
dóma og stuðla að heilbrigðum
lífsháttum. Til þess að heilsu-
gæslan geti sinnt hlutverki sínu
verður hún að taka þátt í marg-
þættri samvinnu og þverfaglegu
samstarfi við fjölda aðila utan
lands sem innan. Nýlega hefur
verið komið á fót Þróunarstofu
heilsugæslu á höfuðborgarsvæð-
inu. Mikilvægt er að þessi starf-
semi nýtist allri heilsugæslu-
þjónustu í landinu,“ segir einnig
í skýrslunni.
Þá skal komið á fót miðlægri
skráningu sjúklinga á heimilis-
lækna með það fyrir augum að
allir íbúar landsins hafi ákveðinn
heimilislækni að snúa sér til.
„Meginreglan verði sú að ein-
staklingar eigi rétt á að vera
á aðgengi. Með slíkum ráðstöf-
unum væri unnt að tryggja meiri
samfellu í meðhöndlun sjúklinga
og draga úr tvíverknaði og end-
urtekningu á ónauðsynlegum rann-
sóknum. Markmiðið er að innan
þriggja ára verði rafræn sjúkra-
skrá og víðtækt heilbrigðisnet
komið í fulla notkun á landsvísu,“
segir í skýrslunni sem nálgast
má í heild á vef heilbrigðisráðu-
neytisins. – thelma@bb.is
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á Ísafirði.
Kómedíuleikhúsið hefur gefið
út nýja þjóðlega hljóðbók sem
hefur að geyma sögur frá Horn-
ströndum og Jökulfjörðum. Þetta
er jafnframt sjötta þjóðlega hljóð-
bókin sem leikhúsið gefur út.
Fyrstu hljóðbækurnar voru upp-
seldar en nú eru þær allar fáan-
legar á nýjan leik. Þær eru: Þjóð-
sögur úr Vesturbyggð, Þjóðsögur
úr Ísafjarðarbæ, Þjóðsögur úr
Bolungarvík, Þjóðsögur af Strönd-
um, Þjóðsögur frá Súðavík og sú
nýjasta Þjóðsögur frá Horn-
ströndum og Jökulfjörðum.
Sjötta hljóðbókin hefur að
geyma sögur úr safni Arngríms
Fr. Bjarnasonar. Þar segir af
draugum, tröllum og fleiri furðu-
verðum í þjóðsagnaheiminum.
Þjóðsögur frá Hornströndum og
Jökulfjörðum er vegleg og vönd-
uð útgáfa á hinum magnaða þjóð-
lega sagnarfi. Þjóðlegu hljóð-
bækurnar fást hjá Kómedíuleik-
húsinu og í verslunum um land allt.
Þjóðsögur frá Hornströndum