Bæjarins besta - 22.12.2010, Qupperneq 27
MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 2010 27
lýsti í viðtali við Bæjarins besta.
Fjórir kokkar takast á
„Það sem við erum að taka
upp hér er fyrir sérstakan þátt
sem verður sýndur á Channel 4 í
janúar,“ sagði Blumenthal. Hann
hóf sjónvarpsferil sinn á BBC á
sínum tíma, en hefur síðan flutt
sig yfir á sjónvarpsstöðina Chann-
el4, sem sýnir þætti með fjölda
stjörnukokka, svo sem þeim
Jamie Oliver og Gordon Ramsay.
Blumenthal hefur áður gert
nokkrar þáttaraðir fyrir Channel
4, en sú þekktasta er væntanlega
Heston’s Feasts, eða Veislur
Hestons. Fyrri þáttaröðin var
sýnd í fyrra en sú seinni nú í vor.
„Í þáttunum leitaði ég mér
innblásturs frá sögulegum upp-
skriftum. Við bjuggum til veislur
með rómversku þema, miðalda-
veislu og veislu frá Tudor-árun-
um,“ útskýrði Blumenthal.
„Þættirnir fengu mjög góðar
viðtökur, og seinni þáttaröðin,
sem kom út núna í ár, var vin-
sælasta matreiðsluþáttaröð síð-
ustu ára. Þá vorum við svolítið
nostalgísk og gerðum veislur í
anda Willy Wonka og í anda
ýmissa ævintýra, eins og húsið
úr Hans og Grétu.“
Þátturinn sem sýndur verður í
janúar er hins vegar með öðrum
hætti. „Fjórir kokkar, sem sagt
Jamie Oliver, Gordon Ramsay,
Hugh Fearnly-Whittinstall og ég,
fá það verkefni að gera einn þátt
þar sem fiskur er í aðalhlutverki.
Ég veit að Gordon ætlar að gera
eitthvað um skelfisk, en ég ætla
að gera sérstakan Feast-þátt. Ég
mun elda fjögurra rétta veislu-
máltíð fyrir sex fræga einstakl-
inga, sem Channel 4 velur, og
einn þeirra rétta verður með stein-
bíti,“ sagði Blumenthal.
Íslands. Við vildum varpa ljósi á
hversu mikilvægar náttúruvænar
og sjálfbærar veiðar eru, í stað
þess að það sé mokveitt án þess
að hugsa um afleiðingarnar,“
sagði Blumenthal.
Hann fór sjálfur á steinbíts-
veiðar, sem hann segir hafa tekist
vel þrátt fyrir að hann sé alræmd-
ur fyrir slæma veiðilukku. „Ég
hef farið á veiðar áður fyrir þætt-
ina, en ég er alveg hrikalega
óheppinn, algjört ólukkudýr.
Þetta var sem betur undantekning
frá reglunni, þeim tókst að veiða
allt sem þeir þurftu,“ sagði Blum-
enthal, sem hélt til sjós með
Hrefnu ÍS.
„Við fórum snemma um morg-
un og veiddum vel, en fiskarnir
voru allir frekar litlir. Það góða
við það var hins vegar að þá
getur maður tekið þá upp, sem
ég gerði, og ég fann hann hrein-
lega reyna að bíta mig – ég fann
hvað hann var sterkur. Sjómenn-
irnir sögðu mér að maður geti
ekki einu sinni snert þá stóru,
þeir fari bara beint í dallinn,“
sagði Blumenthal.
Sæbjúgnasamloka
og þorskkaka
Í anda tilraunastarfseminnar
sem hann er svo frægur fyrir mun
hann framreiða fjöldan allan af
réttum. „Við ætlum að gera alls
konar bilaða hluti,“ sagði hann
og hló við. „Annar rétturinn á
seðlinum verður eins konar síð-
degiste. Í Bretlandi er mjög frægt
fyrirtæki, Mr. Kipling, sem gerir
alls konar kökur. Við ætlum að
leika okkur með það og gera Batt-
enberg köku úr laxi, Fondant
Fancy köku úr krabba og Bake-
well köku úr þorski,“ útskýrði
Blumenthal, en kökurnar eru allar
vel þekktar í Bretlandi. Hann
hyggst sömuleiðis bjóða upp á
gúrkusamloku með sæbjúga, sem
heitir einmitt „sea cucumber“,
eða sægúrka, á ensku.
„Aðalrétturinn mun svo líta út
eins og sandur en hljóma eins og
sjórinn. Steinbíturinn verður hluti
af þeim rétti. Það gæti verið að
við látum matargestina snæða
hann neðansjávar, í kafbáti. Þetta
er allt frekar klikkað,“ sagði
Blumenthal kíminn.
Blumemthal var staddur á
Tjöruhúsinu þegar blaðamaður
náði tali af honum, þar sem hann
og hjálparlið hans matreiddu afl-
ann og prófuðu sig áfram. Næst
á dagskrá var hins vegar ferð í
Arnardal, þar sem hans beið
víkingablót og veisla. „Ég hlakka
til þess, mér skilst að ég fái hákarl
þar,“ sagði Blumenthal, sem
hafði þó áður fengið að gæða sér
á íslenskum hákarli. Einn af und-
irkokkum hans, eða Sous Chef,
er hinn íslenski Stefán Cosser,
sem færði Blumenthal eitt sinn
íslenskan hákarl.
Pylsurnar gómsætar
Hákarl er þó ekki eini hefð-
bundni íslenski maturinn sem
Blumenthal hefur fengið að
bragða á. „Við lentum í Reykja-
vík og keyrðum vestur. Á leiðinni
sagði Stefán mér að Ísland væri
frægt fyrir pylsurnar sínar, og að
ég yrði að smakka þær. Ég fékk
mér pylsu, og hún var frábær –
með lauknum og öllu, hún var
gómsæt. Og á bátnum fékk ég að
smakka kæsta skötu,“ bætti
Blumenthal við og hryllti sig.
„Ég gat það nú ekki alveg. Ég át
hana, en hún var rosalega sterk.
Ég var hins vegar hrifinn af þessu
sem þið kallið svartadauða,
brennivínið. Það kom mér á
óvart, kúmenbragðið var mjög
áhugavert,“ sagði Blumenthal.
Á leið sinni vestur stoppaði
ferðahópurinn á Galdrasýningu
á Ströndum, þar sem Blumenthal
fékk meðal annars að virða fyrir
sér nábrækurnar frægu. „Það var
frábært safn og við fengum líka
að heyra gamlar sögur þarna, sem
var mjög skemmtilegt. Um
kvöldið fengum við svo einfalda
máltíð, steinbít, ýsu, kartöflur og
einhverja einfalda sósu með smá
karríkeimi – þið eruð mjög hrifin
af því, er það ekki? Svo fékk ég
mér súrmjólk í morgunmat. Hún
var ljúffeng, ég var mjög hrifinn
af henni,“ sagði kokkurinn.
Vildi geta verið lengur
Blumenthal og förunautar hans
dvöldu ekki lengi á Íslandi, nokk-
uð sem matreiðslumeistarinn
segir leiðinlegan fylgikvilla vinn-
unnar. „Maður nær aldrei að
stoppa almennilega á stöðunum
sem maður fer á í tökum. Ég hef
aldrei komið hingað áður. Það er
mikið að gera hjá mér, en ég tel
mig samt vera mjög heppinn. Ég
fæ að gera þessa þætti og prófa
alls konar hluti. Það er frábært,“
sagði Blumenthal, sem fagnaði
því þó sömuleiðis að hafa fengið
flug til Reykjavíkur í stað þess
að aka sömu leið og hann kom.
„Við höfum þá mögulega tíma
til að fara í Bláa lónið áður en við
höldum svo aftur til Englands,“
sagði matreiðslumeistarinn, sem
var afar ánægður með dvölina á
Íslandi.
Nánari upplýsingar um Blum-
enthal, matseld hans og tilrauna-
starfsemi má til að mynda afla
sér á heimasíðu veitingastaðar-
ins, www.thefatduck.co.uk.
– Sunna Dís Másdóttir.
Vestfirsku
miðin heilluðu
Það er einmitt steinbíturinn
sem er ástæðan fyrir komu sjón-
varpsteymisins til Vestfjarða.
„Steinbítur var veiddur í Bret-
landi fyrir mörgum árum síðan,
en er það ekki lengur. Þessi teg-
und veiðist ekki hjá okkur. Við
ákváðum þess vegna að koma
hingað. Stærsti hluti þess fisks
sem við kaupum í Bretlandi og
veiddur er með sjálfbærum veið-
um kemur líklega héðan, af mið-
unum í kringum norðvesturhorn
Blumenthal og Sveinbjörn Hjálmarsson á víkingablótinu.