Bæjarins besta - 22.12.2010, Page 32
32 MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 2010
Handbolti: Ingvar Ákaso
Gunnar Guðbjartsson, H
Guðmundsson og Stefán Garc
Íþróttafélagið Ívar: Ragney Líf Stefánsdóttir, Elma Guðmundsdóttir,
Kristín Þorsteinsdóttir, Sveinbjörg Sveinbjörnsdóttir og Guðjón Hraunberg
Björnsson. Á myndina vantar Emilíu Arnþórsdóttur.
Feta brautina til afreka
Menntaskólinn á Ísafirði í sam-
starfi við HSV og íþróttafélög í Ísa-
fjarðarbæ býður þeim nemendum
sem iðka afreksíþróttir á vegum
íþróttafélaganna tvær til þrjár
morgunæfingar á viku, sem þjálf-
arar viðkomandi íþróttafélaga
stjórna. Þjálfunin er metin til
tveggja valeininga á önn til stúd-
entsprófs. Skólinn og íþróttafé-
lögin gera þá kröfu að nemendur
mæti á allar æfingarnar og leggi
sig fram um að bæta árangur sinn
í íþróttinni enda undirbúa þeir
sig fyrir keppi á Íslandsmótum
fyrir hönd sinna félaga. Þetta er
fimmti veturinn sem nemendum
MÍ gefst kostur á slíku námi.
Nokkrir nemendur á afreks-
braut æfa með unglingalandslið-
um eða úrtökuhópum fyrir lands-
lið. Það eru þau Elín Jónsdóttir í
alpagreinum skíða, Matthías
Króknes Jóhannsson í knatt-
spyrnu, Leó Sigurðsson í körfu-
bolta, Jóhann Gunnar Guðbjarts-
son og Axel Sveinsson í hand-
bolta og Birkir Örn Stefánsson
og Sigurður Óli Rúnarsson í
glímu.
Bæjarins besta fór á stúfana
og ræddi við Hermann Níelsson,
sviðsstjóra íþrótta við MÍ og
umsjónarmann afreksíþrótta-
brautar, og nokkra nemendur
hennar.
„Afreksíþróttafólk gerir sér
grein fyrir því að til að ná árangri
í íþróttum dugir góð ástundun
ekki til hámarksárangurs, það er
ekki síður mikilvægt að tileinka
sér heilbrigðan lífsstíl, borða
hollan og góðan mat, tryggja sér
nægjanlega hvíld og að neyta
ekki vímuefna. Iðkendur afreks-
íþrótta þurfa oft að fórna skemmt-
unum og veisluhöldum sem í
boði eru til að geta lagt sig alla
fram á æfingum og í keppni.
Nemendur í íþróttaakademíu MÍ
eru fyrirmyndir fyrir yngri iðk-
endur íþrótta sem líta upp til
þeirra og sýna með fordæmi sínu
að íþróttir og notkun vímuefna
geta aldrei farið saman,“ segir
Hermann. Hann bendir á að nem-
endur greiða engin æfingagjöld
fyrir morgunæfingarnar og íþrótta-
félögin standa straum af kostnaði
við þjálfunina.
„Sérfræðingar á hinum ýmsu
sviðum sem tengjast afreksíþrótt-
um eru fengnir í heimsókn til að
fræða nemendur um þjálffræði,
næringarfræði og fleiri þætti sem
skipta máli í lífi verðandi afreks-
íþróttafólks.“
Æfingin skapar
meistarann
Bæjarins besta spjallaði stutt-
lega við nemendur á afreksbraut
um hvað þeim finnst um náms-
framboðið og þann lífsstíl sem
fylgir því að vera virkur íþrótta-
maður.
Herdís Magnúsdóttir æfir
sund og hefur gert það frá fimm
ára aldri. Hún hefur verið á af-
reksbraut síðan hún byrjaði í
menntaskóla og er þetta annað
árið hennar.
„Það er mjög fínt að hafa af-
reksbraut svo maður geti sinnt
íþróttinni með náminu. Þetta er
aukaæfing og æfingin skapar
meistarann. Stundum er erfitt að
vakna svona snemma á morgn-
ana en maður lætur sig bara hafa
það.“
Aðspurð segist hún sammála
því að tengsl séu á milli íþrótta-
iðkunar og minni áfengis- og
vímuefnanotkun hjá jafnöldrum.
„Kannski hugsa þeir sem eru í
íþróttum meira um það sem þeir
setja ofan í sig.“
Herdís segist ætla að halda
áfram á þessari braut eins lengi
og hún getur.
„Svo kemur bara í ljós hvað
verður.“
Draumurinn að
verða atvinnumaður
Matthías Króknes Jóhanns-
son er efnilegur fótboltamaður.
„Þetta er fyrsta árið mitt í
Menntaskólanum en ég ætla
halda áfram á afreksbraut hvort
sem það verður hér eða í öðrum
skóla. Kannski fer ég suður eftir
áramót. Það er fínt að geta sam-
ræmt æfingar með náminu.“
Aðspurður segist hann stefna
á atvinnumennsku í knattspyrn-
unni.
„Ég held að það sé draumur
allra fótboltamanna, annars væri
maður ekkert í þessu.“
Hann segir að örugglega sé
minna um áfengis- og vímuefna-
neyslu meðal ungmenna sem æfa
íþróttir.
Sund: Ástrós Þór Valsdóttir, Aníta Björk Jóhannsdóttir,
Herdís Magnúsdóttir og Anna María Stefánsdóttir.
„Þannig er það allavega hjá
okkur á afreksbrautinni, ég veit
ekki til þess að neinn drekki,
hvað þá að taka einhver vímuefni.
Það fylgir líka félagsskapnum
sem maður er í. Ef félagar manns
drekka ekki eru mun minni líkur
að maður geri það sjálfur.“
Stefnir á 1. deildina
Sunna Sturludóttir hefur
verið að gera góða hluti í körfu-
bolta.
„Ég er á fyrsta ári í MÍ og líkar
mjög vel að vera á afreksbraut-
inni. Það styrkir mann pottþétt
og ég finn alveg mun á mér frá
því ég byrjaði. Ég stefni á að
vera fjögur ár á afreksbrautinni.“
Sunna sér kosti við það að
mæta eldsnemma á æfingar.
„ Það er stundum erfitt að
vakna en maður er hressari yfir
daginn, þetta vekur mann svo
vel.“
Hún segist stefna á atvinnu-
mennskuna þó hún setji sér bara
eitt markmið í einu.
„Ég er núna að spila með
meistaraflokk sem var verið að
stofna hjá KFÍ og við stefnum á
að komast í 1. deild.“
Hún tekur undir með félögum
sínum að íþróttalífið dragi úr
vímuefnanotkun.
„Á föstudagskvöldum erum
við flest að fara að spila eða á
æfingu daginn eftir og maður
hefur ekki tíma í að fara út og
skemmta sér. Maður vill frekar
fara snemma að sofa og spila
betur daginn eftir. Allavega tek
ég körfuboltann fram yfir það.“
Þýðir ekkert að hætta
Hákon Atli Vilhjálmsson er
líka í körfunni og er ánægður á
afreksbrautinni.
„Það er fínt að fá aukaæfingu
og ekki verra að fá einingar fyrir
það líka. Ég stefni á að halda
áfram á þessari braut.“
Hann segist ætla sjá til hvert
lífið leiði hann er kemur að íþrótt-
inni.
„Maður heldur áfram svo lengi
sem það gengur vel og maður er
að standa sig.“
Eins og félagar sínir tekur hann
undir með því að áfengis- og
önnur vímuefnanotkun sé óæski-
leg hjá íþróttamönnum.
„Það er almennt heilsuspill-
andi og þeir sem eru í íþróttum
hugsa út í það.“
Salmar Már Salmarsson
Hagalín er í handboltanum og
æfir þar markvörslu. Hann segir
að það sé gaman og fjölbreytilegt
að vera á afreksbraut MÍ. Að-
spurður hvert hann stefni í íþrótt-
inni segir hann eins og margir
félagar hans á brautinni að það
sé ekkert nema atvinnumennsk-
an.