Bæjarins besta - 22.12.2010, Qupperneq 33
MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 2010 33
Glíman: Sigurður Óli Rúnarsson, Birkir Örn Stefánsson, Hákon Óli Sigurðsson,
Jóhann Friðriksson, Ísleifur Muggur Jónsson og Hermann Níelsson þjálfari.
Fótbolti: Ólafur Atli Einarsson, Tómas Helgi Svavarsson, Aron Guðmundssson,
Viðar Páll Júlíusson, Jón Hálfdán Pétursson þjálfari, Róbert Karl Boulter,
Hinrik Elís Jónsson, Matthías Króknes Jóhannsson og Axel Sveinsson. Á myndina
vantar Þorgeir Jónsson, Ásgeir Hinrik Gíslason og Kristján Andra Jónsson.
Körfubolti: Hermann Óskar Hermannsson, Jón Kristinn Sævarsson, Sævar Þór Vignisson,
Hákon Atli Vilhjálmsson, Gautur Guðjónsson, Andri Einarsson, Sigmundur Helgason, BJ
Aldrigde þjálfari. Marelle Maekaelle, Vera Óðinsdóttir, Guðlaug Sigurðardóttir og Sunna
Sturludóttir. Á myndina vantar Guðna Pál Guðnason og Leó Sigurðsson.
n, Salmar Már Salmarsson Hagalín, Vagn Smelt, Jóhann
ákon Elí Ólafsson, Baldur Geir Gunnarsson, Einar Bragi
cia Diego. Á myndina vantar Hallberg Brynjar Guðmundsson.
„Það þýðir ekkert annað fyrst
maður er kominn þetta langt, þá
þýðir ekkert að hætta.“
Aðspurður um áhrif íþróttaiðk-
unar á það að krakkar haldist
fremur frá neyslu óhollra efna
tekur hann undir það.
„Ég stend keikur og læt ekki
bugast í nein áfengis- eða eitur-
lyfjamál.“
Birkir Örn Stefánsson er
glímukappi. Hann kann einnig
vel við sig á afreksbrautinni en
þar er hann á fyrsta ári. Hann
viðurkennir þó að stundum sé
svolítið erfitt að vakna á morgn-
ana. Hann segist ekki vera viss
hver framtíð sín sé í íþróttinni.
„Ég ætla bara að sjá til hvert
það leiðir mig.“
Eflir mann í íþróttinni
Elín Jónsdóttir æfir alpagreinar
í skíðum.
„Þetta er þriðja árið sem ég er
á afreksbraut en ég hef æft skíði
síðan ég var sex ára. Það skilaði
sínum árangri að vera á afreks-
brautinni síðasta vetur en hann
gekk mjög vel hjá mér. Það er
gott að fá aukaæfingu til að efla
mann í íþróttinni.“
Elín er komin í æfingahóp hjá
landsliðinu og fór út til Noregs í
tveggja vikna æfingaferð í haust.
Hún fór svo til Austurríkis í októ-
ber og er nú með landsliðinu í
Noregi við æfingar.
„Markmiðið er að vinna sér
fast sæti í landsliðshópi.“
Eins og félagar hennar segist
hún hafa orðið vör við að þeir
sem eru í íþróttum neyti minna
af áfengi og annarri óhollustu.
„Það fer reyndar mikið eftir
því hvert maður stefnir. Sumum
finnst það ekki skipta svo miklu
máli hvað maður geri í lífinu
fyrir utan æfingarnar en mér per-
sónulega finnst það skipta miklu
máli og held að það skili þeim
árangri sem ég hef verið að ná
upp á síðkastið.“
Elma Guðmundsdóttir æfir
sund og þetta er þriðja árið hennar
á afreksbraut. Hún segist líka það
afar vel að vera á brautinni. Hún
er sammála samnemendum sín-
um að íþróttaiðkun leiði til þess
að ungmenni hugsi frekar um
heilsuna.
Aðspurð hver markmið hennar
eru í íþróttinni segir hún ekki
vera með nein stór plön.
„Markmið mín eru að halda
áfram að bæta tímann minn og
persónuleg met.“
Elma hefur æft sund í áratug.
– thelma@bb.is
Skíði: Kristján Gunnar Flosason þjálfari, Ebba Kristín
Guðmundsdóttir, Gauti Geirsson og Elín Jónsdóttir.