Bæjarins besta - 22.12.2010, Page 35
MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 2010 35
Útgjöld hækka í Bolungarvík
Útgjöld vegna félagsþjónustu
hækka talsvert á komandi ári í
Bolungarvík eða í 33 milljónir
króna úr 27 milljónum ef miðað
er við áætlun ársins 2010. Hækk-
unin stafar m.a. af aukinni fé-
lagslegri aðstoð og liðveislu.
„Styrkur að upphæð tvær millj-
ónir króna vegna sérverkefnis
sem er að ljúka og átti að vera til
greiðslu á árinu 2010 hefur ekki
verið greiddur ennþá, en vænta
má að hann verði greiddur á árinu
2011. Ekki hefur verið gert ráð
fyrir styrknum í fjárhagsáætlun,“
segir í stefnuræðu Elíasar Jóna-
tanssonar bæjarstjóra Bolungar-
víkur í stefnuræðu með frum-
varpi að fjárhagsáætlun sem lögð
var fram til fyrri umræðu á dög-
unum.
Eins og kunnugt er fer yfir-
færsla á þjónustu við fatlaða frá
ríki til sveitarfélaga fram um
næstu áramót og verður eitt
byggðasamlag fyrir Vestfirði.
Verkefni Svæðisskrifstofu mál-
efna fatlaðra á Vestfjörðum mun
flytjast til fjögurra félagsþjón-
ustusvæða samkvæmt þjónustu-
samningi við Byggðasamlag Vest-
fjarða.
Samkvæmt samningnum mun
Ísafjarðarbær sinna sumum verk-
efnanna fyrir öll svæðin, en önnur
verkefni mun hvert og eitt félags-
þjónustusvæði sjá um fyrir sína
íbúa. Ísafjarðarbær tekur þannig
við verkefnum Svæðisskrifstofu
hvað varðar:Skammtímavistun
(tímabundin – en oftast regluleg
– dvöl fyrir börn/fullorðna sem
eru mikið fötluð, ætluð sem hvíld
fyrir fjölskyldur og þá sem eru
fatlaðir). Hæfingarstöðina Hvestu,
geðræktarmiðstöðina og starfs-
endurhæfinguna Vesturafl.
Eitt þjónustusvæðanna er Fé-
lagsþjónustan við Djúp, sem er
samvinnuvettvangur Bolungar-
víkurkaupstaðar og Súðavíkur-
hrepps. Þau verkefni sem Félags-
þjónustan við Djúp tekur við eru:
Frekari liðveisla, sem er marg-
háttuð persónuleg aðstoð í dag-
legu lífi fyrir 18 ára og eldri, og
stuðningsfjölskyldur, sem taka
fatlað barn í umsjá sína í skamm-
an tíma til að létta álagi af fjöl-
skyldu barnsins.
Ráðgjöf (til fatlaðra og að-
standenda, bæði vegna barna og
fullorðinna, ráðgjöf um fatlanir,
ráðgjöf um réttindi, aðstoð við
samskipti við aðrar stofnanir, mat
á þörf á þjónustu ofl.) Félags-
málastjóri verður í „Verkefna-
hópi um málefni fatlaðra“, en í
honum sitja félagsmálastjórar fé-
lagsþjónustusvæðanna ásamt
verkefnastjóra Byggðasamlags-
ins. Bolungarvíkurkaupstaður
hefur á að skipa góðu starfsfólki
sem hefur bæði þekkingu og
reynslu til að takast á við þau
verkefni sem fylgja tilflutningi á
þjónustu við fatlaða til sveitarfé-
lagsins. Fólk sem einnig er fullt
af áhuga að takast á við ný verk-
efni.
– thelma@bb.is
Bolungarvík.