Bæjarins besta - 22.12.2010, Blaðsíða 37
MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 2010 37
Mikilvægt að tryggja
réttindi fatlaðs fólks
Mikilvægt er að tryggja að í
löggjöf sem fjallar um málefni
fatlaðs fólks og réttindi þess sé
tekið mið af réttarbótum í löggjöf
nágrannaríkja, að mannréttindi
séu tryggð, að samráð sé haft við
fatlað fólk og að löggjöf sé til
samræmis við samning Samein-
uðu þjóðanna um réttindi fatlaðs
fólks. Þetta kemur fram í nefndar-
áliti félags- og tryggingamála-
nefndar með frumvarpi þar sem
lagðar eru til breytingar á lögum
um málefni fatlaðra til að tryggja
yfirfærslu á þjónustu við fatlað
fólk frá ríki til sveitarfélaga. Segir
nefndin að slíkt sé ekki að fullu
tryggt í gildandi lögum. Í frum-
varpinu er þó kveðið á um að við
framkvæmd laganna skuli tekið
mið af þeim alþjóðlegu skuld-
bindingum sem íslensk stjórn-
völd hafa gengist undir, einkum
fyrrgreindum samningi Samein-
uðu þjóðanna. Þá er kveðið á um
að stjórnvöld skuli tryggja heild-
arsamtökum fatlaðs fólks og að-
ildarfélögum þeirra áhrif á stefnu-
mörkun og ákvarðanir er varða
málefni fatlaðs fólks. Fagnar
nefndin þessu sem og því að til
standi að lögleiða samning Sam-
einuðu þjóðanna um réttindi fatl-
aðs fólks.
Þá áréttar nefndin að sú skylda
sem lögð er á stjórnvöld í 1. grein
frumvarpsins um að tryggja
heildarsamtökum fatlaðs fólks og
aðildarfélögum þeirra áhrif á
stefnumörkun og ákvarðanir er
varða málefni fatlaðs fólks á við
um alla þá þætti sem frumvarpið
og lög um málefni fatlaðs fólks
kveða á um. Til að brýna mikil-
vægi þessa samráðs leggur nefnd-
in til að samráðsákvæði verði
bætt við frumvarpið þar sem
kveðið er á um stefnumótun og
gerð þjónustu- og gæðaviðmiða.
Nefndin bendir þó jafnframt á að
samráðsskyldan er þar með ekki
tæmandi talin og á hún í samræmi
við 1. grein frumvarpsins ávallt við
þegar mótuð er stefna eða ákvarð-
anir teknar er varða málefni fatl-
aðs fólks.
Lagt er til að svæðisskrifstofur
og svæðisráð í málefnum fatlaðra
verði lögð niður. Jafnframt verði
trúnaðarmenn skipaðir af ráð-
herra en ekki svæðisráðum líkt
og gildandi lög kveða á um. Auk
þess er lagt til að Framkvæmda-
sjóður fatlaðra verði lagður niður
og fjármunir hans færist í sérstaka
deild hjá Jöfnunarsjóði sveitarfé-
laga sem sjái um að jafna fram-
lögum til sveitarfélaga í samræmi
við kostnað af þjónustu. Skýrt
verður kveðið á um bann við því
að ráða fólk til starfa sem hlotið
hefur refsidóma vegna brota á
kynferðisbrotakafla almennra
hegningarlaga. Þá er lagt til að
notendastýrð persónuleg aðstoð
verði lögfest sem samstarfsverk-
efni og hún verði eitt meginform
þjónustu við fatlað fólk 2014 en
þá skal fara fram sameiginlegt
endurmat ríkis og sveitarfélaga á
yfirfærslunni auk þess sem þá
skal ljúka heildarendurskoðun
laganna.
– thelma@bb.is
Frumvarpið byggist að mestu
leyti á vinnu verkefnisstjórnar
um yfirfærsluna og samkomulagi
ríkis og sveitarfélaga um tilfærslu
þjónusta við fatlaða sem undir-
ritað var 23. nóvember. Megin-
markmið yfirfærslunnar er að
stuðla að samþættingu félags-
legrar þjónustu við íbúa sveitarfé-
laganna og stuðla þannig að
heildstæðari og um leið bættri
þjónustu við einstaklingana sem
þurfa á þjónustunni að halda.
Helstu breytingar í frumvarpinu
eru þær að fatlaðir einstaklingar
sækja nú um þjónustu hjá því
sveitarfélagi þar sem þeir eiga
lögheimili. Þar munu fagteymi
meta með samræmdum hætti
þjónustuþörf einstaklinga sem
þurfa á þjónustu að halda. Sveit-
arfélög skulu starfrækja teymin
en lagt er til að þau sameinist um
þau. Landinu á að skipta upp í
þjónustusvæði þannig að á hverju
þeirra búi að lágmarki 8.000 íbú-
ar en undanþága er veitt vegna
landfræðilegrar legu einstakra
sveitarfélaga. Búið er að skipu-
leggja 14 þjónustusvæði.