Bæjarins besta - 22.12.2010, Blaðsíða 38
38 MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 2010
Krossgáta og Vestfirðinga.
Höfundur: Hafliði Magnússon frá Bíldudal.
Nafn sendanda:
Heimilisfang:
Póstnúmer og staður:
Sími:
Verðlauna-
krossgáta
Veitingahúsið Cafe Catalina að Hamraborg 11 í Kópavogi hefur
ákveðið að veita fimm verðlaun fyrir jólakrossgátuna í þessu blaði.
Verðlaunin eru gjafabréf sem gilda fyrir máltíð fyrir tvo að eigin
vali af hinum fjölbreytta matseðli Cafe Catalina.
Réttar lausnir krossgátunnar sendist fyrir 30. desember til
Bæjarins besta, Sólgötu 9, 400 Ísafjörður, merkt: krossgáta. Ath!
Senda þarf alla krossgátuna ásamt þeim upplýsingum sem beðið
er um fyrir neðan gátuna.
Nöfn vinningshafa verða birt fljótlega eftir áramót í BB. Líklegt
er að fleiri krossgátur Cafe Catalina á nýju ári, verði verðlauna-
krossgátur og verður það kynnt síðar. Góða skemmtun!
Samþykkja leng-
ingu grjótgarðs
Umhverfisnefnd Ísafjarðar-
bæjar hefur lagt til að erindi sigl-
ingaklúbbsins Sæfara, þar sem
óskað er eftir leyfi til að lengja
núverandi grjótgarð að Suður-
tanga 2 á Ísafirði um ca. 5 metra,
verði samþykkt. Nefndin hafði
áður sent hafnarstjórn erindið til
umsagnar sem gerði ekki athuga-
semdir við að garðurinn verði
lengdur, að því gefnu að lenging-
in nái ekki út fyrir línu dregna
samsíða stefnu Ásgeirsbakka
miðað við innra horn þekju.
Sömuleiðis taldi stjórnin mik-
ilvægt að framkvæmdin nái ekki
þannig að dráttarbraut, að að-
koma að henni skerðist. Hafnar-
stjórn óskaði jafnframt eftir því
að samráð verði haft við stjórn-
endur Byggðasafns Vestfjarða,
er varðar aðgæslu við dráttar-
braut. Umhverfisnefnd lagði til
að erindið yrði samþykkt með
fyrirvörum hafnarstjórnar, enda
skapist Sæfara engin eignarréttur
af framkvæmdinni.
– thelma@bb.is
Bolvíkingar eru orðnir lang-
eygðir eftir að fá að fylla félags-
heimilið Víkurbæ lífi á ný en end-
urbætur hafa staðið yfir á húsinu
undanfarin tvö ár. „Bolvíski
draumurinn er að sjá húsið iða af
menningu árið um kring,“ segir
á Bolungarvíkurvefnum. Sumir
Bolvíkingar eru þó óþolinmóðari
en aðrir eftir því að komast í
húsið. Hjónin Linda Harðar og
Finnbjörn Birgisson tóku sig því
til og byggðu sitt félagsheimili frá
grunni og tók það aðeins eina helgi.
„Þetta er fjölnota hús, ekki nóg
með að það sé augnayndi heldur
er það líka gott undir tönn. Það
stendur því líklega heima að
þegar komin er tími til að leggja
sér það til munns þá geta Bolvík-
ingar fengið að líta Félagsheim-
ilið við Aðalstræti augum fullbú-
ið,“ segir á bolungarvik.is. Tekið
skal fram að hús Lindu og Finn-
björns er í réttum hlutföllum og
líkan að Félagsheimilinu eins og
það var í upphafi.
– thelma@bb.is
Félagsheimilið endur-
gert úr piparkökum
Félagsheimili Bolvíkinga fullbakað. Mynd: bolungarvik.