Listin að lifa - 01.06.2005, Page 10
Landsfundurinn
opnar nýja sýn
segir Guðný Halldórsdóttir, kona
Snæbjarnar Péturssonar formanns
Félags eldri Mývetninga
„Eg hef ekki sett mig nægilega inn í þessi mál fyrr og finnst
umræðan mjög skemmtileg og fróðleg. Maður verður miklu
virkari eftir svona fund. Gaman að segja félagsmönnum heima
ffá fundinum, fá þá til að hugsa og ffamkvæma eitthvað í þágu
okkar allra.“
Guðný kom sem starfsstúlka á Hótel Reynihlíð fyrir 55
árum. Hún giftist inn í Reynihlíðarættina og segist vera sannur
Mývetningur í dag. „Ég hef alltaf unnið að því að elska ekki æsku-
stöðvarnar svo mikið að maður sé með heimþrá þangað allt sitt
líf. Rótfesta hlýtur að skapast á stað þar sem maður eyðir öllum
sínum starfskröftum."
Guðný og Snæbjörn eignuðust 5 börn og sonur þeirra Pétur
er nú hótelstjóri i Reynihlíð. „Ég vann alltaf við hótelið á meðan
ég starfaði," segir Guðný.
Hún segir um 33 skráða í félagið sem gæti verið miklu
fjölmennara. „Býsna margir vilja ekki láta líta á sig sem eldri
Mývetninga. Félagsaðstaðan okkar er í skólanum, en í athugun
er að kaupa lítið hús. Við hittumst vikulega, bíll nær í fólkið úr
sveitinni og við erum með tvær stúlkur sem sjá um kaffiveitingar
og föndur. Félagssamkomur haust og vor, vika á Hótel Örk og
óvissuferð daglangt innan héraðsins eru fastir liðir.“
O.Sv.B.
'm Húsavík
QA^OARSbólotr
Við bjóðum upp á
dýralífsskoðun og
ævintýraferðir á fjorum
íslenskum eikarbátum
sem breytt hefur verið
Whh til farþegaflutninga.
jlgP # Hvalaskoðun
# Fuglaskoðun j
& Sjóstangveiði J
í # Skútusigling
$ Flateyjarferðir Jgsl
# Landnámsferðir
^ Gamli Baukur c
M/B Náttfari á siglingu á Náttfaravíkum. Þriggja nafna fjallið í baksýn.
Garðar og Náttfari: í Landnámabók segir frá Garðari Svavarssyni og
Náttfara. Þeir sigldu umhverfis landið og sáu að það var eyja. Garðar
hafði vetursetu á Húsavík og nefndi landið Garðarshólma.
Bakrangi/Galti/Ófærufjali: í íslandsklukku er sagt frá fjalli einu
fyrir norðan sem ber þrjú nöfn, eftir því hvaðan á það er horft. Þetta
tók Laxness sem dæmi um hve sannleikurinn getur verið afstæður.
Upplýsingar í
síma 464 2350
eða tölvupósti
info@nordursigling.is
10