Listin að lifa - 01.06.2005, Blaðsíða 44

Listin að lifa - 01.06.2005, Blaðsíða 44
Langi Mangi menningarlegt kaffihús við Silfurtorg Hjónin Elfar Logi Hannesson og Marsibil Kristjánsdóttir komu hvorki tómhent né hugmyndasnauð til ísafjarðar fyrir þremur árum. „Ég sá að hér vantaði kaffi- hús,“ segir Elfar sem var vanur að setjast inn á Mokka í Reykjavík. „Mig vantaði líka eitthvað með listinni, kaffihúsið og Kómedíuleikhúsið fléttast vel saman.“ Elfar Logi gaf sér tíma til að staldra framan við krítarmyndirnar af Muggi og Steini Steinarr - á milli þess sem hann dansaði með kaffibolla á milli gestanna. Pétur Guðmundsson teiknari er höfundur myndanna. Já, Elfar flutti heilt leikhús með sér - og nýir einleikir spretta árlega úr smiðju hans. Marsibil smíðaði allar innréttingar í kaffihúsið, fékk góða skólun hjá föður sínum, Kristjáni Gunnarsssyni, sem rekur sögufræga smiðju á Þingeyri. Langi Mangi passar líka vel inn í gamla húsið á Silfurtorgi, eins og það hafi verið sniðið fyrir hann, en kaffihúsið var fyrst opnað 2003, „14. mars, klukkan 14.14,“ segir Elfar Logi. Hvernig tóku ísfirðingar nýju kaffihúsi? „Upphafið var erfitt og fyrsta árið, en nú mæta fastir kaffihúsavinir bæði í hádeginu og um kaffileytið." Af hverju Langi Mangi? „Okkur krökk- unum á Bíldudal var kennd visan um pabba Langa Manga í barnaskóla til að viðhalda vestfirskunni „langur gangur fyrir svanga Manga... “ nafnið er tilvalið á vestfirskt kaffihús.“ Þú ert frá Bíldudal. „Já, þar bjó ég fyrstu 25 æviárin og ólst upp við hálfgerða kaffi- húsastemmningu. Foreldrar mínir reka Vegamót í Bíldudal sem sameinar eigin- lega allt, eins og gamla krambúðin." Hvað á gott kaffihús að gefa? „Heim- ilislegt andrúmsloft! Starfsfólkið á líka að finna sig þar heima og taka á móti gestunum með bros á vör. Kaffihúsið er staður til að tala saman, svo að tónlistin má ekki vera of uppáþrengjandi." Listir eiga vel heima á kaffihúsi þar sem fólk nemur staðar í erli dagsins. Þú hefur flutt hughrif þinna einleikja inn í kaffi- húsið. „Já, ég byrjaði með Mugg. Þá var auðvelt að skreyta veggina með málverkum úr Dimmalimm." Sagt er að Muggur hafi skrifað bókina fyrir litla frænku sína sem langaði svo mikið til að verða prinsessa. Hann lét sér ekki nægja að skrifa söguna, en myndskreytti hana líka og gaf frænku Karfa með frumskógardýrum vekur athygli. Marsibil hefur skorið út dýrin og málað skemmtilega, svo að bæði börn og fullorðnir hafa gaman af. Marsibil færði okkur kaffi og sýndi Oddnýju Þorbergsdóttur dýrin. sinni bókina í jólagjöf. „Muggur er sonur Péturs Thorsteins- son, svonefnds Bíldudalskonungs, en Bílddælingar segja hann hafa byggt upp Bíldudal. í framhaldinu er Muggur kallaður Bíldudalsprinsinn," segir Élfar Logi. „Ég hef sett upp einleiki um þekkta vestfirska listamenn eins og Mugg og Stein Steinarr sem er ættaður frá Nauteyri í Djúpinu. Þegar Steinn Steinarr var á sviðinu, þá settum við steina á hvert borð í kaffihúsinu með litlu broti af ljóði eftir Stein. í vetur hef ég sett upp gervi Gisla Súrssonar. Hann hefur verið svo vinsæll að ég lét þýða textann til að geta leikið fyrir ferðamenn í sumar.“ Elfar Logi er nú að láta teikna mynd af Sigríði Hagalín listakonu, dóttur Guð- mundar Hagalín, sem hann ætlar að setja á minjagripi. Hann lætur sér ekki nægja að setja persónurnar á svið og minna á þær í kaffihúsinu - hann er líka kominn út í minjagripagerð. Og jólabækurnar fá greiðan aðgang í Langa Manga, Elfar Logi efnir til upplestrarkvölda um jólaleytið. Kaffihúsið Langi Mangi sameinar mörg menningarsvið. O.Sv.B HERRAFATAVERSLUN BIRGIS FÁKAFENI 11 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 553 1170 1H ICELANDAIRHOTELS 44 ■ ■
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Listin að lifa

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.