Listin að lifa - 01.06.2005, Blaðsíða 20
Hraun stendur í miðjum engjateig undir fjallinu Hraunshorni.
Uppruni Hrauns-
Móra og...
Við eigum líka draug, segir Guðmundur.
„Einn forfaðir minn, Eiríkur Tómasson
(f.1800) var mikill athafnamaður, rak gott
bú á Hrauni og stundaði sjóinn af kappi.
Hraunsbúð, sjóbúð hans við Sæbólssjó,
stóð fram til 1910. Eitt sinn er Eiríkur
reri frá Sæbólssjó, þurfti hann að hleypa
skipi sínu undan norðanáhlaupi, náði
landi í Dufansdal í Arnarfirði og dvaldi
þar næturlangt. Alnafna og systir hús-
móðurinnar, Kristín Nikulásdóttir, var
þar í vist. Daginn eftir á leið til skips, skar
Eiríkur brókarþveng sinn í sundur, gekk
aftur til bæjar og bað Kristínu vinnukonu
að gera við hann. Svo vel leist honum á
handbragðið að hann bað hennar sér til
handa, en hún hafnaði bónorðinu þar sem
hún var heitbundin manni úr Arnarfirði.
Nokkru seinna fór Eiríkur til frænda
sinna að Arnarnesi i Dýrafirði, mannaði
bát þaðan og sótti Kristínu. Arnfirski
vonbiðillinn var ekki hrifinn - og til að
hefna harma sinna vakti hann upp draug
sem átti að koma Eiríki til feðra sinna.
Til að verjast draugsa, sem fékk nafnið
Hrauns-Móri, bar Eiríkur Karla-Magn-
úsar-bæn á brjósti sér. Eitt sinn er Eiríkur
hélt til sjávar, gleymdi hann bæninni.
Kristín sendi þá vinnumann sinn á eftir
honum með bænina, en Eiríkur var þá
róinn. Þá átti Kristín að segja: „Nú kemur
Eiríkur minn ekki heim í kvöld.“ Báturinn
fórst í brimlendingu um kvöldið, 7. sept.
1849. Þá urðu 19 börn föðurlaus, á Hrauni
og Hálsi, en Kristín var ófrísk að 13. barni
þeirra Eiríks. Hún bjó áfram í Hrauni í
sex ár, en flutti síðan til systur sinnar í
Dufansdal."
„Hrauns-Móri fylgir enn ættinni,"
segir Birkir Þór, en draugsi vitjaði hans
úti í Noregi. „Þar var ég gestkomandi og
bað um simanúmer hjá einstaklingi, sagð-
ist hafa týnt mínum síma á Ingjaldssandi
um daginn - segi síðan hlæjandi: „Ætli
karlrassgatið hann Hrauns-Móri hafi
15 HÓTEL ALLAN HRINGINN
•X V
Góð þjónusta á sanngjörnu verði
Hótel Edda býóur upp á gistingu jafnt í uppbúnum rúmum
sem svefnpokaplássi, allt eftir þörfum hvers og eins.
O ML Laugarvatn
o ÍKÍ Laugarvatn
O Skógar
O Vík i Mýrdal
0 Nesjaskóli
0 Neskaupstaóur
o Egilsstaðir
0 Eiðar
0 Stórutjarnir
© Akureyri
Húnavellir
© Laugarbakki
ísafjörður
© Laugar
© HeLlissandur
www.hoteledda.is Sími 444 4000