Listin að lifa - 01.06.2005, Blaðsíða 33
en 604 manns yfir sextugt búa á ísafirði, svo að mikið starf er
framundan að ná sem flestum inn í félagið. Fyrsta skrefið var
að opna púttvöll, annað að koma af stað íþróttum. Nú stunda 20
konur og 1 karl leikfimi í gamla íþróttahúsinu, konurnar greini-
lega duglegri! Þriðja skrefið er að stofna kór eldri borgara. Kór-
stjórinn er fundinn, Olafur Kristjánsson, fyrrverandi bæjarstjóri
í Bolungarvík. I fyrravor heimsótti kór eldri borgara í Reykjavík
okkur. Þau sungu í Isafjarðarkirkju og Bolungarvík, og fóru út í
Vigur. Frábær heimsókn. Nú er sagan að endurtaka sig, en kór
eldri borgara á Akureyri ætlar að heimsækja okkur í næstu viku.
Efniviður framtíðar: Félagið fékk frábæra gjöf á síðasta ári.
Sólveig Eggerts listakona, sem málar á tré og rekavið, varð nýlega
áttræð. ffún hafði safnað að sér meiri efnivið en hún gæti unnið
úr. Hún gaf félaginu allar sínar dýrmætu spýtur - sem fýlltu 5
fiskikör. Sannarlega efniviður til framtíðar.
Vantar félagsheimili! Safnaðarheimili kirkjunnar fáum við
annan hvern þriðjudag, spilum þá bingó og félagsvist. Eins getum
við notað salinn í Hlíf, þar sem eru þjónustuíbúðir og hjúkrunar-
heimili, en reynslan sýnir að fólk fer ekki þangað. Félagið verður
aldrei öflugt nema við eignumst eigið hús, venjum félagana á að
ganga inn í eigið hús, fá sér kaffisopa - „dúppa inn“ í sitt eigið
félagslíf.
Allt annað mannlíf á Isafirði. í Reykjavík keyrir maður í
gegnum ótal rauð ljós og streitan byggist upp, nær maður þessu
ljósi? Hér er allt miklu mannlegra. Ef einhver bæjarbúi deyr þá er
flaggað um allan bæ. „Varð slys?“ spyr aðkomumaður. „Nei, bara
einn af okkur að deyja“ - og kirkjan fyllist. Mér þykir vænt um
þessa eiginleika.
Ekki er til heiðarlegra fólk en hér og kurteisari börn. Ég er
við afgreiðslu og skynja þetta vel. Maður heyrir alltaf: „Viltu
gjöra svo vel og þakka þér fýrir.“ Á ávísanatímabilinu kom aldrei
fýrir að ég fengi innistæðulausa ávísun. Hjá kunningja mínum,
sjoppueiganda í Reykjavík, var veggurinn betrekktur af þeim.
“Svo koma þau á kvöldin og hóta að drepa mig,“ sagði hann. Hér
þekkja allir alla, allt er miklu rólegra og meiri samhygð."
O.Sv.B
Þjóðsaga frá ísafirði
Um aldamótin nitján hundruð fluttust tveir bræður frá Akur-
eyri til Isafjarðar og gerðust þar miklir sjósóknarar og athafha-
menn. Annar bróðirinn hét Þorsteinn en hinn Jóhann. Báðir
gerðu þeir út frá Bolungarvík um skeið. Eftir því sem bátarnir
stækkuðu og þyngdust varð erfiðara að setja þá niður sem
kallað var, því að engin var höfhin eða bryggjan. Skipshafhir
hjálpuðust því að við að setja bátana ffam, þegar farið var á sjó.
Mikið kapp var að komast fyrstur á miðin til að geta valið bestu
staðina til að leggja Ióðirnar þar sem mest var aflavonin.
Svo er það eitt vorið að þeir bræður eru mættir til skipa sinna
snemma morguns eða síðla nætur, því oftast var farið snemma
á sjóinn. Engir aðrir voru mættir. Jóhann og skipshöfh hans
hjálpa fyrst Þorsteini að setja niður hans bát og væntir Jóhann
þess að skipshöfh Þorsteins komi svo og hjálpi honum á sama
hátt, en þess í stað tekur Þorsteinn stefhuna á miðin og skilur
bróður sinn eftir bjargarlausan í fjörunni. Að vonum fýkur í
Jóhann sem var skapmaður mikill og fljótfærinn. Hann steytir
hnefana á eftir Þorsteini og segir: „Farðu til andskotans Steini
bróðir, ég kem á eftir.“
Endursagt 4. maí2005, Jón Fanndal
•d*o SYNCRO
Heyrnartœki með gervigreind
• Afgreiðslutími innan þriggja vikna
• Bjóðum margar tegundir af sjólfvirkum, stafrœnum
heyrnartœkjum
• Verð fró 47.000 - 170.000 kr fyrir eiff tœki
Erum meO þjónustu á Akureyri - ísafiröi - EgilsstöOum
KjHeymartækni
www.heyrnartaekni.is
Glæsibær Álfheimum 74 104 Reykjavík sími: 568 6880
TVyggvabraut 22 600 Akureyri sími: 893 5960
and
strandhverfið í Garðabæ
Úrval fallegra íbúða í Sjálandshverfi, í fjölskylduvænu
og fallegu umhverfi við sjávarsíðuna.
FJÁRFESTING
FASTEIGNASALAem
Borgartúni 31
Sími 562 -4250
www.fjarfest.is
www.bygg.is
a
BYGG