Listin að lifa - 01.06.2005, Qupperneq 35
Fundaö um valkosti í
búsetumálum
almannatryggingar - og nýjar stefnur í málefnum aldraðra
Reykjavíkurfélagið hélt almennan félagsfund á Grand
Hótel 3. maí s.l. Fundinn sóttu á annað hundrað manns.
Jón Kristjánsson heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra
flutti ávarp. Margrét Margeirsdóttir formaður félagsins flutti
erindi um nýja steíhu í málefnum aldraðra og greindi m.a. firá
einu af nýmælum nýrrar stjórnar - að efna til almennra félags-
funda nokkrum sinnum á ári. Tilgangurinn er; annarsvegar að
gera grein fyrir helstu verkefnum sem stjórn og framkvæmda-
stjórn vinna að hverju sinni; hinsvegar að vekja umræðu um
afmörkuð mál sem snerta hag aldraðra og félagið hefur sett á
oddinn í baráttu sinni.
A þessum fýrsta fundi var fjallað um almannatryggingar og
valkosti í búsetumálum aldraðra. Margrét greindi frá kaupum á
nýju húsnæði að Stangarhyl 4, en þangað flytur allt starf félagsins
íjúní n.k.
Framkvæmdastjórnin hefur gengið á fund stjórnvalda ríkis
og borgar til að fylgja eftir fjölmörgum áskorunum sem félagið
samþykkti á síðasta aðalfundi, þar á meðal endurskoðun á lögum
um málefni aldraðra. Félagið leggur áherslu á að mörkuð verði
ný stefna í búsetumálum aldraðra með ýmsum valkostum sem
geri öldruðum kleift að halda sjálfstæði sínu og fjárræði, jafn-
framt verði stoð- og heimaþjónusta efld verulega.
A fundi með borgarstjóra var lögð fram áskorun frá aðalfundinum
þar sem m.a. var lögð sérstök áhersla á:
• Fjölgun þjónustuíbúða og dagvistarplássa.
• Eflingu heimaþjónustu.
• Örugga ferðaþjónustu aldraðra.
• Hækkun viðmiðunartekna vegna afsláttar á fasteigna
gjöldum.
Einnig var lögð fram umsókn um lóð undir fjölbýlishús fyrir
eldri borgara. I framhaldi af fundi með borgarstjóra hefur Lára
Björnsdóttir formaður velferðarsviðs boðað til fundar þann 8. júní
n.k. til að ræða frekar samþykktar áskoranir til borgarinnar.
Framkvæmdastjórn fór á fund Karls Steinars Guðnasonar for-
stjóra TR í apríl s.l. til að ræða m.a.:
• áhrif kerfisbreytinga íbúðalánasjóðs á lífeyrisgreiðslur frá
TR þegar húsbréfum var breytt í íbúðarbréf
• endurreikning - tekjuáætlun
• fyrirkomulag greiðslna á hjúkrunar- og dvalarheimilum,
þannig að einstaklingar haldi fjárræði sínu
* öryggishnappa
• afsláttarkort
Einnig fóru nokkrir fulltrúar stjórnar til Guðmundar Bjarna-
sonar formanns Ibúðalánasjóðs í apríl s.l. til að ræða um áhrif
kerfisbreytinga Ibúðalánasjóðs á lífeyrisgreiðslur TR þegar hús-
bréfum var breytt í íbúðarbréf. Ætlunin er einnig að fara á fund
ríkisskattstjóra til að ræða sama mál.
Á félagsfundinum flutti Jón Sæmundur Sigurjónsson, skrif-
stofustjóri í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti, erindi sem
hann nefndi Hugleiðing um aldraða og almannatryggingar. Hann
kom víða við í yfirgripsmiklu erindi og verður nánar fjallað um
það í haustblaðinu.
Þriðja mál fundarins var kynning á valkostum í búsetu-
málum, bæði í máli og myndum.
Lára Björnsdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkur-
borgar, fjallaði um þjónustu- og öryggisíbúðir sem henta vel
eldri borgurum, en eru því miður af skornum skammti og langur
biðlisti eftir slíkum búsetuúrræðum. Aðalsteinn Sigfússon, félags-
málastjóri í Kópavogi, gerði grein fyrir sambýlum í Kópavogi sem
rekin eru af sveitarfélaginu með fjárframlagi frá ríkinu. Sambýlin
eru góður valkostur og þyrfti að leggja áherslu á að fjölga þeim,
einkum virðast þau henta vel öldruðum sem þjást af heilabilun.
Anna Birna Jensdóttir, forstjóri hjúkrunarheimilisins Sóltúns,
greindi frá starfsemi heimilisins sem hófst 2002, með rými fyrir
92 íbúa. Allir hafa sitt einkarými með snyrtingu, en Anna Birna
lagði mikla áherslu á mikilvægi þess á hjúkrunarheimilum.
Stefanía Björnsdóttir framkvæmdastjóri félagsins fjallaði um
íbúðir í fjölbýlishúsum á vegum Reykjavíkurfélagsins, en um er
að ræða á fjórða hundrað eignaríbúðir í ýmsum hverfum borgar-
innar. Stefanía lagði áherslu á nauðsyn þess að borgin myndi efla
þjónustu við íbúana í þessum fjöbýlishúsum.
Að síðustu kynnti Sigríður Daníelsdóttir, sviðsstjóri á svæðis-
skrifstofu fatlaðra á Reykjanesi, búsetuúrræði fyrir fatlaða í
íbúða- og þjónustukjörnum. Þar er til staðar nauðsynleg þjónusta
allan sólarhringinn. Sigríður taldi slík búsetuúrræði gætu hentað
vel fyrir aldraða sem þyrftu mikla aðstoð og öryggi, þannig væri
hægt að draga úr vistun á hjúkrunarheimilum.
Kynningin á valkostum i búsetu var mjög vel sett fram og
ákaflega fróðleg. Öllum framsögumönnum eru færðar þakkir
íyrir þeirra framlag. í kaffihléi á fundinum söng karlakórinn
Eldri fóstbræður undir stjórn Jónasar Ingimundarsonar við
almennan fögnuð fundarmanna. Eru þeim einnig færðar bestu
þakkir. Fundarstjóri var Helgi Seljan varaformaður félagsins.
Helgi lífgaði fundarsetuna með snjöllum vísum á milli atriða sem
féllu í góðan jarðveg.
Næsti almenni félagsfundur er fyrirhugaður í október. Þá
verða tekin fyrir málefni sem tengjast kjaramálum aldraðra.
Margrét Margeirsdóttir tók saman