Listin að lifa - 01.06.2005, Síða 38

Listin að lifa - 01.06.2005, Síða 38
djassisti og málari var útnefndur bæjarlistamaður ísafjarðar árið 2001 Allir ísfirðingar þekkja Villa Valla rakara senn spilar á harnnoniku, saxófón og píanó - málar myndir af landslagi, fólki, húsum og fleiru sem fyrir augu hans ber. Þessi litríki beejarlistamaöur ber skírnarnafnið Vilberg Valdal Vilbergsson, er upphaflega Flateyringur, en flytur ungur til ísafjarðar. Rakarastofa Villa Valla er steinsnar út frá Silfur- torgi í gulu húsi með mikinn karakter, eins og ábúendur hússins, Villi Valli og eiginkona hans, Guðný Magnúsdóttir, sem ísfirðingar segja mikla listakonu. Ibúð þeirra er á efri hæðinni, en viðskiptavinir ganga beint inn á rakarastofuna á neðri hæð, láta fara vel um sig á meðan beðið er eftir klippingu. Afþreyingarritið á sófaborðinu er ekki Séð og heyrt, eins og á flestum rakarastofum í Reykja- vík, nei, hér liggja frammi sjö bindi af Hundrað og ein, ný vestfirsk þjóðsaga! Skrítlurnar í þeirri ágætu bók vekja hlátur hjá sönnum Vestfirðingum. Þú hlýtur að þekkja flesta ísfirðinga, búinn að klippa þá marga. „Já, margir hafa byrjað að sitja á fjölinni hjá mér sem eru nú orðnir eldri menn. Margir fastir kúnnar hafa verið hjá mér áratugum saman, menn eru vanafastir. Smám saman fór að draga úr því að menn kæmu í rakstur. Betri græjur komu og menn fóru að raka sig sjálfir. Ég er bara í klippingum, læt hár- greiðslustofurnar um litun, strípur, permanent og slíkt.“ Svo geta sannir djass-unn- endur hlustað á Villa Valla í útvarpinu. „Já, þar heyrist stundum í mér. Ég er búinn að gefa út einn hljómdisk. Hérna spila ég í lúðrasveitinni og harmonikufélaginu og spila stöku sinnum í veislum og undir borðhaldi á hótelinu. Ég lærði fyrst á saxófón hjá Guðmundi Nordal norður í Djúpuvík, þar vorum við báðir að vinna í verksmiðjunni. Ég var lengi að daðra við hin og þessi hljóðfæri, fannst erfitt að velja, en ég er að mestu sjálf- menntaður í tónlistinni, hef þó farið á nokkur námskeið." Hvernig fara klippingar og tónlist saman? „Einhvern tíma sagði Jón Múli að rakarinn, Billy Bolden, hafi verið fyrsti djassistinn í Bandaríkjunum.11 Villi Valli hlær, segir síðan: „Margir rakarar hafa verið hljómlistarmenn. Klippingar fara ekki illa með hendur. Öðru máli gegnir með þá sem stunda erfiðisvinnu eða vinnu sem reynir mikið á hendurnar.“ Vilberg Valdal Vilbergs- son er fæddur og uppalinn á Flateyri. „Pabbi minn fæddist og ólst upp í Valþjófsdal og seinna nafnið mitt, Valdal, er komið þaðan. Ég var krakki þegar byrjað var að kalla mig Villa Valla. Lítill strákur, nýbyrjaður að tala, betrum- bætti nafnið og kallaði mig 38

x

Listin að lifa

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.