Listin að lifa - 01.06.2005, Page 47

Listin að lifa - 01.06.2005, Page 47
Fjölmennt heimili - eins og í gamla daga Skjólbraut la stendur innst í einbýlishúsagötu, eins og hvert annað fýölskylduhús. Fjöldi heimilismanna leiðir hugann að fyrri tímum þegar fjölskyldur voru fjölmennari. Hjónin sem byggðu húsið, Ingólfur og Sigríður, voru meðal frumbyggja Kópavogs. Ingólfur rak hænsnabú til fjölda ára í Kópavogi. Hann vildi gera vel við konu sína og byggði hús með níu svefnherbergjum þvi fjölskyldan var stór. Þeim hjónum varð fimmtán barna auðið. Þegar Félagsþjónusta Kópavogs keypti húsið voru gerð tvö herbergi úr bílskúrnum. Nú eru 11 manns heimilisfastir á Skjólbraut la á aldrinum 73-93 ára og búa allir í einbýli. Helga Steinarsdóttir forstöðukona tekur á móti gesti og leiðir til stofu. Stórir stofugluggar snúa út að beinvöxnum trjám í grónum görðum. Garðstofan inn úr stofunni gefur enn betri sýn yfir spegilflöt Kópavogsins og Kópavogslaugina. Umhverfið er hlýlegt og heimilið notalegt. Hér búa allir í sérherbergjum. Við leitum svara hjá Helgu, hvernig standi á þvi að fullorðið fólk gefur alla sína muni frá sér og flytur inn i eitt herbergi - deilir heimili með áður ókunnu fólki? „Skert geta til að sjá um sig sjálfur og nálgast aðdrætti er náttúrlega stór þáttur. Einnig held ég að einmanaleikinn sé miklu stærri þáttur en við gerum okkur almennt grein fyrir, erfitt að vakna einn í hljóðri íbúð, sitja einn í þögninni. Útvarp og sjónvarp nægja ekki til að rjúfa einmanaleikann. Sagt er að börn þroskist ekki eins vel í dag vegna endalausrar mötunar á afþreyingu, þar fer ekki saman hugur og hönd eins og þeir öldruðu segja gjarnan. Sama má segja um eldra fólkið, það getur lokast inni í einmanaleikanum." Helga segist hafa skilið þetta betur þegar hún heyrði eina heimiliskonuna lýsa þessu: „Auðvitað var erfitt að skilja allt dótið sitt eftir, en það var enn erfiðara að vakna ein upp í hljóðu húsi, nenna jafnvel ekki að klæða sig og vera næstum búin að einangra sig. Þetta var mitt eigið val.“ „Mannleg samskipti eru með mikilvægari atriðum mannlifs- ins,“ segir Helga. „Þótt heimaþjónustan sé mikilvæg, þá er ekki nægilegt að fá mat og þrif, meiri samveru vantar. Það veitir ekki sömu vellíðan að fá matinn sendan heim til sín í plastbakka, eins og að finna matarlyktina meðan eldað er og skynja heima- kenndina þar sem allt er eldað heima eins og hérna. Virknin er lífið sjálft og mikilvægt að vera þátttakandi í heim- ilislífinu. Heimilisfólkið hérna eru virkir þátttakendur. Þau geta t.d. komið með mér að versla til heimilisins. í fyrravor fórum við Heimilið er notalegt og heimilisfólkið unir sér vel saman í garðstofunni. nokkrar saman að kaupa sumarblóm og settum þau niður í ker hérna á svölunum okkur öllum til ánægju . Þau geta alltaf farið ein inn á sín herbergi, en sumir sækja mikið í að vera með okkur og sitja mest hér i stofunni. Sólstofan er líka vinsæll setkrókur. Þaðan geta þau fylgst með öllum sem koma og fara.“ Smiðir eru að vinna í húsinu og Helga segist hafa verið hrædd við ónæðið. „En þau eru svo spennt að fylgjast með - það er eitthvað að gerast!“ Helga vann áður á Sóltúni og segir hönnun hússins þar afar mikilvæga. „Sóltúni er skipt upp í litlar einingar, engir langir gangar sem eru svo stofnanalegir. Húsið hérna er eins og stórt heimili og andar þannig á móti manni.“ Helga tók við heimilinu fyrir ári síðan og segist hafa undrast gleðina innandyra. „Fólkið demetra Glæsilegur kristall og handunnið íslenskt gler Frábært verð - mikið úrval Verið velkomin

x

Listin að lifa

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.