Listin að lifa - 01.06.2005, Page 53

Listin að lifa - 01.06.2005, Page 53
Ambögumálfar egar olíukóngarnir urðu uppvísir að ólöglegu samráði á síðasta ári var málinu vísað til stofnunar sem ber nafnið Samkeppnisstofnun. Orðið hefur forskeyti og er samsett úr tveimur orðstofnum. Um samsett orð gilda reglurnar að fyrri hlutinn skal vera stofn orðsins, eignarfall eintölu eða eignarfall fleirtölu. Orðið keppni er óbeygjanlegt kvenkynsorð sem endar á i og er ekki til í fleirtölu nema hjá þeim allra hörðustu. Við höfum fullt af svona kvenkynsorðum sem enda á i og eru óbeygjanleg. Dæmi: gleði, heppni, samheldni, bjartsýni, leikfimi, elli, hlýðni, hnýsni, fyndni, reiði. Þegar þessi orð koma sem fyrri hluti sams- etts orðs, verður sá hluti óbreyttur. Dæmi: gleðisöngur, heppni- sigur, bjartsýnikast, leikfimihús, elliglöp, reiðikast. Samkeppnisstofnun á því að heita Samkeppnistofnun. Þér finnst orðin í upptalningunni hér á undan líklega mismunandi kunnugleg. Það stafar af því að þetta auka s hefur ekki enn náð að troða sér inn í samskeytin i öllum orðunum. Við erum vön essinu í sumum orðum en ekki í öðrum sem betur fer. Hendum essinu út þar sem það á ekki heima. Hvernig stendur á því að við höfum troðið essinu inn í sam- skeytin á nokkrum samsettum orðum þar sem það á ekki að vera? Astæðan er vafalítið að við eigum allmörg hvorugkynsorð sem bæta við sig s í eignarfalli eintölu og þar sem slíkt orð er fyrri hluti í samsettu orði og eignarfall orðsins notað kemur essið sjálfkrafa og á þarna heima með réttu. Við höfum gleymt að taka mið af þessum mun. Pössum okkur á óbeygjanlegu kvenkyns- orðunum í fyrri hluta samsetts orðs. Ekki setja s þar inn. I dag höfum við í málinu orðin ráðunautur og ráðuneyti. Ef við skoðum aftur reglurnar um samsett orð, kemur í ljós að ráðu á ekki rétt á sér. Stofninn er ráð, eignarfall eintölu ráðs og eignarfall fleirtölu ráða. í ritverki frá næstsíðustu aldamótum er talað um ráðanauta. Ráðaneyti hef ég ekki fundið en eins og allir geta séð passar ráðu ekki eftir reglunum. Hreinsum frekar en sóða út. Þorsteinn Pétursson Árbergi 3, 320 Reykbolt Minningarkort Minningar- og styrktarsjóðs hjartasjúklinga LANDSSAMTÖK HJARTASJÚKLINGA Sími 552 5744 Gíró- og kreditkortaþjónusta Skóverslunin ■ iljaskinn - 60 S Miðbæ Háaleitisbraut 58 - 60 Sími: 553 2300 www. iijaskinn. is ■ Sumarið 2005 er komið einstaklega fallegir sumarskór í Iljaskinni Góðir skór og stuðningssokkar

x

Listin að lifa

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.