Fréttatíminn - 10.04.2015, Blaðsíða 6
Aðeins 22.320 kr.
Afgreiðslutími
Mán. til fös. frá kl. 10–18
Laugardaga frá kl. 11–16
www.dorma.is
Holtagörðum
512 6800
Dalsbraut 1, Akureyri
558 1100
SQUERE
rúmgafl
Rúmgafl úr brúnu, hvítu
eða svörtu PU leðri.
Stærðir: 120, 140, 160, 180 cm.
Verð að neðan miðað við
rúmbreidd 120 cm.
Fullt verð: 27.900 kr.
Aðeins 31.920 kr.
OSLO
rúmgafl
Aðeins 31.920 kr.
HELSINKI
rúmgafl
20%
AFSLÁTTUR
20%
AFSLÁTTUR
20%
AFSLÁTTUR
Rúmgafl fæst í svörtu PU
leðri, hvítu og í gráu áklæði.
Stærðir: 120, 140, 160, 180 cm.
Verð að neðan miðað við
rúmbreidd 120 cm.
Fullt verð: 39.900 kr.
Rúmgafl fæst í svörtu PU
leðri, hvítu og í gráu áklæði.
Stærðir: 120, 140, 160, 180 cm.
Verð að neðan miðað við
rúmbreidd 120 cm.
Fullt verð: 39.900 kr.
Nú göngum við
af göflunum
MEIRA Á
dorma.is
Guðmundur Ingi Ásmundsson, forstjóri Landsnets.
Ljósmynd/Hreinn Magnússon
M enn eru farnir að horfa til þess að það fari að slá á veturinn,“ segir Einar
Sveinbjörnsson veðurfræðingur.
„Það snjóaði í Skaftafellssýslunum
í gær og spáð er vetrarveðráttu
fyrir norðan um helgina. Úrkoman
sem á að falla um helgina fellur
ekkert síður sem snjór en rigning.“
Einar segir kalt loft úr norð-vestri
valda ótíðinni. „Það hefur verið
kaldur kjarni í háloftunum meira
og minna í allan vetur fyrir vestan
Grænland og það hefur sullast
stanslaust úr honum loft yfir okk-
ur. En það er einmitt eðli svona
kuldahvirfla að þeir minnka smám
saman og hverfa á endanum eftir
því sem sólin hækkar á lofti. Og
það er einmitt það sem við sjáum í
kortunum eftir miðja næstu viku.“
Bara ein vetrarhrina eftir
„Langtímaspár eru samstiga um
það að eftir miðja næstu viku þá
verði loftið hlýrra og við sjáum
að kaldi kjarninn er þá farinn að
skreppa saman og mun því að
öllum líkindum láta okkur í friði
eftir það. Loftið verður hlýrra
og við munum finna það
að sólin iljar og úrkoma
sem fellur mun falla
sem rigning, ef við skilj-
um bara undan hæstu
fjöllin. Þá er von til að
snjór og klaki fari að
bráðna. Sólin gæti
farið að ylja okkur
eftir næstu helgi
en áður er að því
kemur eigum við
eftir upplifa eina
ansi leiðinlega
vetrarhrinu.“
Kuldaskeið að
hefjast?
Páll Bergþórsson,
veðurfræðingur
og fyrrverandi
veðurstofustjóri,
segir þennan
vetur hafa verið
þann kaldasta
frá aldamótum
og að sennilega
sé 30 ára hlýindaskeiði að ljúka.
„Ef maður skoðar breytingar á
hafís frá því árið 1600 þá hafa alltaf
verið hlý og köld skeið á víxl en
það er hafísinn hér á norðurslóðum
sem veldur því. Síðasti vetur hefur
verið heldur kaldur vetur saman-
borið við árin frá aldamótum sem
hafa verið afskaplega hlý. Ef maður
skoðar hvernig hitinn hefur hagað
sér á síðustu öld þá var mjög kalt í
kringum 1920 en svo hlýnaði mikið
og það var mjög hlýtt í kringum
1950. Svona hefur þetta gegnið í
sveiflum á um það bil þrjátíu ára
fresti. Allt frá árinu 1990 hafa ver-
ið mikil hlýindi sem hafa staðið
í stað síðan um aldamót. Og ég
býst við því að við séum að ná
hámarkinu á þessu hlýinda-
skeiði og förum svo aftur inn í
kuldaskeið,“ segir Páll en bendir
þó á að lofthiti fari þó alltaf
hækkandi vegna gróður-
húsaáhrifanna. „Vegna
þeirra verður hvert
hlýindaskeið hlýrra
en það fyrra og
kuldaskeiðin verða
líka sífellt hlýrri.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Landsnet Rafvædd fRaMtíð í takt við saMféLagið
Milljarðar tapast vegna annmarka á flutningskerfi
Þ að er vilji Landsnets að ná fram sem víðtækastri samfélagssátt um framtíð-
arfyrirkomulag raforkuflutninga
og uppbyggingu meginflutnings-
kerfisins þannig að allir, almenn-
ingur jafnt sem atvinnulíf, hafi
öruggan aðgang að tryggu raf-
magni sem er forsenda lífsgæða
í nútímasamfélagi. Til að stuðla
að þessu er Landsnet að taka upp
breytt verklag með skýrari sýn á
samfélagsábyrgð fyrirtækisins
sem felst m.a. í enn meira sam-
ráði á fyrstu stigum fyrirhugaðra
framkvæmda og stofnun þverfag-
legra samráðshópa. Samtímis
verður öll greiningarvinna efld
enn frekar með það að markmiði
að finna bestu framkvæmanlegu
lausnirnar á hverjum tíma, lausn-
ir sem tryggja rafvædda framtíð í
takt við samfélagið.
Þetta er meðal þess sem fram
kom á vorfundi Landsnets sem
fram fór í gær, fimmtudag, sam-
hliða aðalfundi félagsins. Á fund-
inum var fjallað um stöðu flutn-
ingskerfis raforku á Íslandi og
nýjar áherslur í rekstri félags-
ins, sem hafa m.a. að markmiði
að tryggja landsmönnum aðgang
að öruggu rafmagni til framtíðar
í sátt við samfélag og umhverfi.
„Raforka er ein af dýrmæt-
ustu auðlindum þjóðarinnar og
mikilvægt að ganga vel um hana,
landsmönnum öllum til hags-
bóta,“ segir í tilkynningu Lands-
nets. „Þeir miklu annmarkar
sem orðnir eru á meginflutnings-
kerfinu í dag, með tilheyrandi
f lutningstakmörkunum milli
landshluta samhliða auknu álagi
og rekstrartruf lunum, draga
hins vegar mjög úr sjálfbærni
raforkukerfisins. Þar má m.a.
nefna að of veikt flutningskerfi
takmarkar framleiðslu virkjana,
hlutfallslega mikil orka tapast í
kerfinu, skerða þarf notkun raf-
orku vegna flutningstakmarkana
og jafnvel nota olíu til raforku-
framleiðslu og skemmdir verða á
raftækjum notenda vegna lélegra
spennugæða. Er áætlað að fjár-
hagslegt tap þjóðarinnar hlaupi á
3-10 milljörðum á ári vegna ann-
marka á flutningskerfinu – og
fari vaxandi.“ -jh
veðuR LangtíMaveðuRspáR eRu saMstiga
Vorið kemur í næstu viku
Síðastliðinn mánuður hefur verið sá vindasamasti frá aldamótum með miklum foksköðum
og ófærð á vegum. Landann er farið að þyrsta í vorið og því eflaust margir sem örvænta yfir
vetrarspá helgarinnar. En örvæntið ekki. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir vorið koma í
næstu viku.
Páll Bergþórsson. Einar Sveinbjörnsson.
6 fréttir Helgin 10.-12. apríl 2015