Fréttatíminn - 10.04.2015, Qupperneq 10
Þ
Það fór eins og spáð var og margir óttuðust
– hrina verkfalla er hafin. Opinberir starfs-
menn riðu á vaðið í vikubyrjun en hundruð
félagsmanna Bandalags háskólamanna sem
vinna hjá ríkinu hófu þá verkfallsaðgerðir.
Fleiri verkföll í hópi þeirra hafa verið boðuð
á næstu dögum og vikum og munu ná til þús-
unda starfsmanna með allri þeirri röskun
sem aðgerðunum fylgir. Þá stefnir í verkföll
félaga innan Starfsgreinasambandsins um
næstu mánaðamót. Gera má
ráð fyrir að ýmis önnur félög
fylgi í kjölfarið.
Miklu skiptir að giftusam-
lega takist til við samninga-
gerðina, hvort heldur horft
er til félagsmanna einstakra
stéttarfélaga, fyrirtækja eða
samfélagsins alls. Stöðugleiki
hefur ríkt í efnahagslífinu
undanfarin misseri, kaupmátt-
ur launa jókst eftir hófsama
kjarasamninga og verðbólga
hefur verið lítil, minni en við höfum átt að
venjast sem er óumdeilanleg kjarabót fyrir
alla. Kaupmáttur jókst um 5,8 prósent á
síðasta ári og hefur aldrei aukist jafn mikið
á einu ári. Verðbólgustigið lækkaði úr 4,3%
í desember 2013 í 0,8% í desember 2014. Á
sama tímabili lækkaði Seðlabankinn stýri-
vexti. Því hlýtur það að vera keppikefli allra
sem að koma að viðhalda stöðugleikanum,
að launahækkanir verði raunhæfar og byggi
á getu til að standa undir þeim, en jafnframt
sé litið sérstaklega til lægstu taxta.
Við samningaborðið er gjarna einblínt á
launatölur en fleira kemur til. Sigmundur
Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra vék
nýverið að hugsanlegum atbeina ríkisins
til að liðka fyrir gerð kjarasamninga. Þótt
samningagerðin sem slík sé á ábyrgð samn-
ingsaðila sýnir sagan að aðgerðir ríkisins
skipta miklu. Forsætisráðherra lítur til þess
sem hann kallar kaupmáttarsamninga og
gangi þeir eftir sé ríkisstjórnin tilbúin að
bæta við kaupmáttaraukninguna með því að
lækka skatta, gjaldtöku ríkisins og breyta
tollum á fatnaði. Ráðherrann telur hins
vegar tómt mál að tala um aðkomu ríkisins
að gerð kjarasamninga sem myndu leiða til
verðbólgu og óstöðugleika. Þá brynnu að-
gerðir ríkisins upp á verðbólgubáli. Þá hafa
bæði forsætisráðherra og Eygló Harðardótt-
ir félagsmálaráðherra talað um að húsnæðis-
frumvörp ríkisstjórnarinnar séu innlegg í
kjaraviðræðurnar. Á svipuðum nótum hefur
Gylfi Zoëga hagfræðiprófessor talað. Verka-
lýðsleiðtogar hafa brugðist við þessum hug-
myndum. Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ,
segir úrbætur í húsnæðismálum mikilvægar
en þær tengist þó ekki kjarasamningum.
Drífa Snæbjörnsdóttir, framkvæmdastjóri
Starfsgreinasambandsins, segir forsætisráð-
herra skilja eftir spurningar, meðal annars
hvað felist í því að gera kaupmáttarsamn-
inga. Það ætti þó að liggja nokkuð ljóst fyrir,
þ.e. að komandi kjarasamningar byggi á
raunverulegri getu til kjarabóta, að inni-
stæða sé fyrir þeim hækkunum sem samið
verður um og að þær leiði til aukins kaup-
máttar í stað óraunhæfrar hækkunar sem
fari beint út í verðlag og leiði til verðbólgu
sem allir tapa á. Slíkt þekkjum við af illri
raun og í leiðurum þessa blaðs hefur oftar
en einu sinni verið minnst á sólstöðusamn-
inganna alræmdu árið 1977. Þá var samið,
í kjölfar verkfalla, um verulegar en óraun-
hæfar launahækkanir. Samfélagið var mörg
ár að ná sér eftir þau ósköp. Það ástand má
ekki skapa á ný.
Samningamenn eru því hvattir til að hugsa
út fyrir boxið og má í því sambandi nefna
athyglisvert viðtal við Ragnheiði Eyjólfs-
dóttur, verkefnisstjóra símenntunar á Suður-
nesjum, í Fréttatímanum í dag. Þar bendir
hún á að vinnudagur hérlendis sé lengri
en í nágrannalöndunum en vitnar um leið í
McKinsley-skýrsluna frá árinu 2012 þar sem
fram kom að framleiðni vinnuafls hérlendis
sé 20% lægri en hjá helstu nágrannaþjóðum.
Samræming vinnu og fjölskyldu sé flóknari
af ýmsum ástæðum hér en annars staðar.
Rannsókn Ragnheiðar sýnir að Íslendingar
vilja stytta vinnutíma sinn og draga með því
úr árekstrum milli fjölskyldu og atvinnu.
Hún segir mikilvægt að hafa tímann í huga í
kjaraviðræðunum, því þótt mikilvægt sé að
hækka launin sé tíminn líka dýrmætur.
Hrina verkfalla hafin
Tíminn er dýrmætur
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
LóABORATORíUM LóA hjáLMTýsdóTTiR
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjóri: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Fréttastjóri: Höskuldur
Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Auglýsingastjóri og stjórnarformaður: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Framkvæmdastjóri: Teitur Jónasson teitur@
frettatiminn.is. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti. VÍKURHVARF 6 • 203 KÓPAVOGUR • SÍMI 557 7720 • WWW.VIKURVERK.IS
O-Grill 3500 kr. 32.950
O-Grill 1000 kr. 27.950
Borðstandur kr. 9.595
Taska kr. 2.995
O-GRILL
Skráning fyrir nýja nemendur
fyrir haustönn 2015 er hafin.
KLASSÍSKI LISTDANSSKÓLINN
Inntöku
próf
30. apr
íl
Vorhátíð skólans í Borgarleikhúsinu
27. apríl kl. 18:00
WWW.BALLET.IS
Grensásveg 14 & Álfabakka 14a s: 534 9030 mail: info@ballet.is
Inntökupróf fer fram á
Grensásveg 14 fimmtudag 30. apríl
nemendur 13 ára og eldri mæti kl. 18:00
10 viðhorf Helgin 10.-12. apríl 2015