Fréttatíminn - 10.04.2015, Side 15
Ríflega 60% þeirra ofbeldismanna sem hafa fengið meðferð hjá Karlar til ábyrgðar voru sjálfir
beittir ofbeldi í æsku eða horfðu upp á ofbeldi. Einar Gylfi segir það alls enga afsökun en mögulega
skýringu sem þarf að vinna með. Ljósmynd/NordicPhotos/Getty
Mörgum finnst þetta mjög
erfitt því þeir sem telja
sig hafa gert rangt eiga
erfitt með að horfast í
augu við það og eiga til að
nota almenn og óljós orð
um það sem gerðist. Þetta
er síðan mikilvægt fyrir
næsta skref í meðferðinni
sem er ábyrgðin. Sá sem
beitir ofbeldi ber 100%
ábyrgð á þeirri hegðun. Í
byrjun vilja menn gjarnan
axla kannski 75% ábyrgð
og kenna jafnvel erfiðum
maka um ofbeldið. Við
segjum einfaldlega að það geti vel
verið að konan þín sé erfið en þú
þarf að finna aðra leið en að lemja
hana. Ábyrgð er lykillinn að lausn-
inni,“ segir hann.
Samfélagsvandi en ekki einka-
mál
Þriðji þáttur meðferðarinnar er
samhengið. „Samhengið getur
verið áfengisneysla, ágreiningur
um tengdafjölskyldu eða af-
brýðisemi. Samhengið getur líka
verið fyrri reynsla af ofbeldi en
ríflega 60% skjólstæðinga okkar
urðu sjálfir fyrir ofbeldi í æsku
eða horfðu upp á það. Þetta er
samt engin afsökun en möguleg
skýring sem þá þarf
að skoða. Þessir menn
eiga það sameigin-
legt að hafa orðið fyrir
áföllum eða vanrækslu
í æsku og eiga erfitt
með að tjá aðrar til-
finningar en reiði.
Afleiðingarnar eru
fjórði þátturinn; afleið-
ingar fyrir gerandann,
makann og börnin.
Það er merkilegt að í
fyrstu eru báðir aðilar
almennt sammála um
að börnin hafi ekki
tekið eftir neinu og þetta hafi
engin áhrif á þau. Þetta er fjarri
sanni og jafnvel þó börnin hafi
verið í pössun koma þau heim í
þögn og kulda. Við leggjum mikla
áherslu á að fræða foreldra um
þetta og að börnin þurfi að fá að
tala um sínar tilfinningar,“ segir
Einar Gylfi. „Heilt yfir þarf að taka
á heimilisofbeldi sem samfélags-
vanda en ekki einkamáli. Það er
ekki nóg að skrá málin heldur
þarf að taka á þeim og við getum
séð um gerendurna. Það er okkar
hlutverk,“ segir hann.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
95
GEREnduR fEnGu
aðstoð í fyRRa.
5,2
mEðalfjöldi
viðtala við GERanda.
43,2%
fjölGun GEREnda
fRá 2012 til 2013.
28
maKaR sEm
fEnGu viðtal.
60%
GERanda upplifðu
ofbEldi í æsKu.
Einar Gylfi jónsson
sálfræðingur sem
sér um verkefnið
Karlar til ábyrgðar.
fréttaúttekt 15 Helgin 10.-12. apríl 2015