Fréttatíminn


Fréttatíminn - 10.04.2015, Blaðsíða 30

Fréttatíminn - 10.04.2015, Blaðsíða 30
Þ egar Jörundur hundadagakonungur hélt til Viðeyjar, ásamt grasafræðingn-um William Hooker, sunnudaginn 27. júlí 1809, að bera Ólafi Stephensen kveðju veðgjörðarmanns þeirra tveggja og penna- vinar Ólafs, náttúrufræðingsins, Íslandsvinar- ins og barónsins Joseph Banks, laust saman ólíkum heimum yfir einni kostulegustu mál- tíð sem Íslandssagan geymir. Fyrir röð tilviljana og gráglettni örlaganna hafði Jörundur þá ritað undir sjálfstæðisyfir- lýsingu Íslendinga daginn áður. Þar var ekki aðeins tilgreint að allur danskur myndugleiki væri upphafinn á Íslandi heldur lofaði Jörund- ur landsmönnum umtalsverðri skuldaniður- fellingu og færði þeim ýmiss áður óþekkt mannréttindi; til dæmis ferðafrelsi. Allt var þetta í anda þess tíma og bar svip af banda- rísku og frönsku byltingunni þótt andi þeirra byltinga hafi ekki fyrr borist til Íslands. Það áttu eftir að líða nokkrir áratugir áður en Ís- lendingar fóru að orða viðlíka hugmyndir sjálfir og Jörundur rissaði upp á fyrsta degi byltingar sinnar. Á móti ferðafrelsi og öðrum réttindum Ólafur Stephensen gaf örugglega ekki mik- ið fyrir þessar hugmyndir Jörundar en því miður eru engar heimildir um að þær hafi verið ræddar undir borðum. Ólafur hafði látið af störfum sem stiftamtmaður þremur árum fyrr og sat á friðarstóli í Viðey eftir langa og atorkusama ævi. Hann hafði auðg- ast gríðarlega í mörgum feitustu embættum landsins, komið sonum sínum fyrir í helstu embættum og gift dætur sínar öðrum emb- ættismönnum. Segja má að fjölskylda Ólafs hafi átt Ísland, þótt formlega tilheyrði það Danakonungi. Magnús Stephensen, sonur Ólafs, var dóm- stjóri landsyfirdóms og sýndi Jörundi fullan samstarfsvilja en færði mótmæli sín til bók- ar ef vera kynni að byltingin yrði skammlíf. Hann vildi halda embætti sínu sama hvaða ríki Ísland tilheyrði eða hvort það var sjálf- stætt; það skipti innlendu embættismanna- stéttina svo sem ekki meginmáli. Þegar enska freigátan Talbot sigldi inn í Reykja- víkurhöfn og skipherrann, Alexander Jones, batt enda á byltinguna vildi Magnús fyrir alla muni halda Jörundi eftir á Íslandi svo dæma mætti hann fyrir landráð og hengja síðan. Jones féllst ekki á það og flutti Jörund utan til Englands. Magnús lýsti yfir fyrirlitningu sinni á þeim aukna rétti sem Jörundur vildi færa Íslending- um. Hann lýsti fjálglega fyrir Jones skipherra hvernig allri reglu hafði verið snúið á haus; ómenntaðir fylliraftar reistir upp á meðan vandað fólk og góðborgarar voru ofsóttir og réttmætur eigur danskra kaupmanna gerðar upptækar og skuldir viðskiptamanna þeirra gefnar eftir. Magnúsi fannst ferðafrelsi al- mennings þó fráleitast af öllu og taldi það klárt óráð að leyfa alþýðufólki að ferðast milli landshluta án ferðapassa, útgefnum af þartil- bærum valdsmönnum. Sá vorþeyr borgaralegra réttinda og mannvirðingar sem Jörundur vildi hleypa inn í íslenskt samfélag naut því ekki mik- ils skilnings meðal embættismannastéttar- innar. Hún hafði vanist því öldum saman að ráðgast með alþýðufólk að eigin geðþótta og fannst fráleitt að leggja til annað fyrirkomu- lag. Reyndar fann Jörundur engan Íslend- ing sem skildi hvert hann var að fara. Hann hafði ætlað að færa Íslendingum sjálfstjórn en fann ekki nokkurn mann sem skildi hvað það ætti að fyrirstilla og gerði sig því sjálfan alls Íslands verndara og hæstráðandi til sjós og lands. Vatnsgrautur og siginn fiskur En áður en við förum til Viðeyjar og setj- umst til borðs með Jörundi, Hooker og Ólafi Stephensen skulum við athuga hvernig mat alþýðufólks var háttað á þessum tíma. Svona lýsti Klemens Jónsson löngu síðar mataræði alþýðunnar á nítjándu öld í yfirliti sínu í Skírni um bæjarbrag Reykjavíkur: „Aðalfæða alþýðunnar var þá grautur og fiskur. Það var vatnsgrautur, oftast óbættur, eða þá með súrmjólk út á, undanrenningu eða sírópi. Fiskur var alltaf borðaður, þegar hans var kostur, soðinn, aldrei steiktur, með floti og kartöplum, væri þetta til. Allt var notað, haus og lifur, kútmagar og hrogn. Oft var troðið mjöli í kútmagana, og hjetu þá mjölmagar. Hrogni var hnoðað saman við mjöldeig, og búnar úr kökur, er svo voru soðnar, soðkökur. Ef eigi var nýr fiskur til, þá var hann jetinn, siginn eða úldinn. Harður fiskur var sjaldgæf- ur rjettur á borði fátæklinganna. Á vorin var rauðmagi eðlilega aðalfæða efnamanna, en alþýðan varð að láta sjer nægja grásleppuna, einkum eptir að hún var orðin sigin. Venjulega var borðað þrímælt, morgunverður um kl. 10, blautfiskur eða brauð, og kaffi á eftir; mið- dagur kl. 3, það sem fyrir hendi var, þorsk- hausar, brauðbiti, og kl. 7 grauturinn eða kjöt- súpa, þar sem efni voru til, oftast einu sinni eða tvisvar á viku, meðan kjötið entist. Þetta var aðalmáltíðin, og brátt að henni lokinni var farið í rúmið að minnsta kosti á veturna. Brauðið var rúgbrauð úr Bernhöfts bakaríi. Franskbrauð var lítið haft um hönd og sízt hjá alþýðu, en súrbrauð á tyllidögum. Þá flutt- ist hingað mikið af skonroki (brauðkökum) og kringlum (hagldabrauði). Var mikið af því brauði keypt af alþýðu. Viðbitið var smjör, ef það var til, en annars tólg, flot, síróp og púður- sykur. Smjör var fremur torgætt, og um leið nálega óætt, súrt og myglað, fullt af hárum, því að almennt hreinlæti stóð þá enn á mjög lágu stigi, ekki sízt við sjávarsíðuna. Smjörlíki þekktist þá ekki. Algengasta brauðtegundin var þá kaka eða flatkaka úr rúgmjöli og vatni, er var hrært saman í trogi, og síðan hnoðað saman. Kökurnar voru flattar út með kefli, þangað til þær voru orðnar hæfilega þunnar og bakaðar við móglóð.“ Kjötið úldnaði fljótlega og var ekki lostæt fæða Og Klemens heldur áfram: „Þessi þjóðlega brauðtegund virðist nú vera að detta alveg úr sögunni. Nokkuð fluttist þá inn af rúgmjöli, en mest var flutt inn af ómöluðum rúgi; var hann fluttur laus í lestinni, og landsmönnum ætlað að mala hann sjálfum. Fyrir því var á öllum efnaðri heimilum hjer í bæ malarkvörn. Af öðrum korntegundum var þá ekki flutt ann- að inn en bankabygg og heilbaunir. Bankabyggið var líka malað og haft til grautargerðar, og þótti hann miklu betri en rúgmjölsgrautur. Haframjöl þekktist þá ekki. Baunir voru dýrar, og því Herramanns- matur og há- tíðamatur hjá alþýðunni. Það hefur l ít ið verið minnz t á k jöt hjer að framan og ekkert á s lá t ur. Haustið og fram undir jól var auð- vitað bezta tíð fátækling- anna, því að enginn var svo aumur, að hann gæti ekki fengið innan úr nokkrum kindum og 2—3 ærskrokka. Slátrið var jetið jafnharðan, meðan það entist, en kjöt- ið var geymt í súpur, en sá var gallinn á, að salt var þá almennt of mikið sparað, svo að kjötið úldn- aði fljótlega og var því eiginlega ekki lostæt fæða. Hangikjöt var lítið haft um hönd nema á jólun- um. Fyrir jólin og sumardaginn fyrsta, þennan gamla, þjóðlega hátíðisdag Íslendinga, var víðast bakað eitt- hvað til hátíðabrigðis. Hjá fátæklingum voru það aðallega lummur, sem voru borðaðar með kaffinu, sykraðar eða með sírópi. Þá þekktust ekki jólatrje, en þó kunna þau að hafa verið hjá einstökum dönskum fjölskyldum, en þau fóru að tíðkast úr því þessu tímabili lýkur, og nú er svo komið, að varla er svo fátækt heimili til í bænum, að ekki sje haft lítið jólatrje eða grenisveigur. Það hefir nú verið minnzt á matinn, og er þá eftir að tala um drykkinn. Kaffi var þá orðinn aðaldrykkurinn, eins og er enn. Með kaffinu var gefinn kandísmoli. Te var líka nokkuð almennt, oft úr blóðbergi, sem þá óx mikið á Melunum.“ Matarhlé í byltingunni Sarah Blackwell lýsir máltíðinni í Viðey í ágætri ævisögu sinni um Jörund og styðst þar við frásögn Willi- am Hooker úr ferðabók sinni úr Íslandsferðinni. Þannig skrifar Sarah Blackwell í þýðingu Bjarna Jónssonar og hefst frásögn- in að morgni 27. júlí 1809: „Meðan Reykvík- ingar voru að átta sig á þessari nýju stöðu mála og gaum- gæfa aug- lýsingar og meðan þessi kyn- legu tíðindi voru færð á hestbak og send út um land fóru Jor- genson og fé- lagar hans hús úr húsi þennan dag í úrhellisrigningu og söfnuðu vopnum heimamanna. Það var nú ekki mikið til að safna. Þegar þeir höfðu lokið blautri ferð sinni um Reykjavík var fengurinn aðeins milli tuttugu og þrjátíu litlar fuglabyssur og „nokkur ryðguð sverð“. Þetta vesæla herfang slævði vonir þeirra um að vopna varnarlið fyrir landið en dró þó að minnsta kosti úr líkum á gagn- byltingaruppreisn í bænum. Þeir hafa varla haft miklar áhyggjur af upp- reisn, því að 27. júní, annan heila dag bylting- arinnar, fóru Jorgenson, Phelps og Hooker frá Reykjavík í dagsferð til að sinna erindi sem áður hafði verið ákveðið og skildu Liston og skipshöfn hans eftir til að líta eftir bænum. Dagurinn leið í svipaðri friðsæld og kyrrð Veislan í Viðey Þegar Jörundur hundadagakonungur sigldi út í Viðey til fundar við Ólaf Stephensen má segja að evrópskar hugmyndir um aukin lýðréttindi alþýðunnar hafi hitt sótsvart íhald íslenskrar auð- og valdastéttar. Niðurstaða þessa fundar varð að hinn evrópski frelsisandi mátti sig varla hræra eftir ríkulegar veitingar í Viðey. Gunnar Smári Egilsson skrifar um mat og menningu frá Montmartre gunnarsmari@frettatiminn.is Jörundur hundadagakonung- ur vildi innleiða lýðfrelsi að evrópskri fyrirmynd á Íslandi en Íslendingar sýndu því lítinn áhuga. 30 matartíminn Helgin 10.-12. apríl 2015
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.