Fréttatíminn - 10.04.2015, Síða 40
heilsa Helgin 10.-12. apríl 201540
3 þeytingar
sem hreinsa
líkamann
Ein besta leiðin til að hreinsa líkamann er
í formi gómsæts þeytings. Einn detox djús
á dag er allt sem til þarf. Margir festast í
því að útbúa eins þeyting alla daga og hér
eru því þrjár hugmyndir af mismunandi
þeytingum sem eiga það þó allir sameigin-
legt að hreinsa líkamann á einhvern hátt.
Berjadraumur
Ber innihalda fjöldann allan af andoxunar-
efnum og trefjum og henta því vel til að
hreinsa burt eiturefni líkamans. Í þennan
berjadraum þarf eftirfarandi hráefni:
1 ½ bolli blönduð ber (bláber, hindber og
brómber innihalda mikið af andoxunar-
efnum)
½ bolli kókosmjólk
1 bolli kalt vatn
2 msk haframjöl
Grænkálsbomba
Samkvæmt nýjustu fréttum úr heilsuheim-
inum er grænkál nýja spínatið. Grænkál
inniheldur meira magn af járni og próteini en
spínat. Grænkál hefur hins vegar takmarkað
geymsluþol en það er í góðu lagi því frosið
grænkál er enn bragðbetra en ferskt því frostið
örvar niðurbrot á mjölva þannig að það verður
sætara. Í þessa grænkálsbombu þarf eftir-
farandi hráefni:
Handfylli grænkáls (skerið stilkana af)
Hálft epli
1 bolli kókosvatn
Kryddaður
engiferþeytingur
Engiferrót hefur afar hreinsandi áhrif og rífur
vel í bragðlaukana. Rótin hefur örvandi áhrif á
blóðrásina og er talin góð við hand- og fótkulda.
Engiferrót hefur einnig bólgueyðandi áhrif. Hér
er uppskrift að extra krydduðum þeytingi:
Ca. 3 cm engiferrót (vel saxað)
1 tsk kanill
Handfylli spínats
Hálft epli
1 bolli kalt vatn
Kísilsteinefni
unnið úr 100%
náttúrulegum
jarðhitakísil
GeoSilica Iceland | Grænásbraut 506 | 235 Ásbrú | Sími 571-3477 | Netfang: sala@geosilica.com | www.geosilica.is
K ísill er lífsnauðsynlegt steinefni og hefur oft verið kallað gleymda næringarefnið.
Kísill er eitt algengasta steinefni
jarðar og gegnir lykilhlutverki í
myndun og styrkingu bandvefs í lík
amanum. Beinvefur, sinar, liðbönd
og húð eru allt dæmi um bandvef.
Af hverju ættir þú að taka inn
kísilsteinefni?
Því við fáum ekki nægan kísil úr
fæðu: Rannsóknir hafa sýnt að auk
in dagleg inntaka á kísil er sterklega
tengd auknum beinþéttleika. Með
al kísilinntaka úr fæðu er almennt
ekki talin nægileg, og því er mælt
með aukinni inntöku af kísil með
fæðu. Rannsóknir hafa einnig sýnt
að hæfni líkamans, til að taka upp
kísil, minnkar með aldrinum.
Losar þungmálma úr líkamanum:
Sýnt hefur verið fram á að kísill
hjálpar líkamanum að losa sig við ál
og aðra þungmálma úr líkamanum.
Álsöfnun í líkamanum veldur ein
kennum sem svipa til einkenna Alz
heimer sjúkdóms og var lengi talið
að uppsöfnun áls væri orsök sjúk
dómsins. Það hefur verið að mestu
leyti hrakið en engu að síður er upp
söfnun áls í líkamanum alvarleg.
Fyrir meltingarveginn: Kís ill vinn
ur gegn því að sníkju dýr, myglu
og kandí da svepp ir geti þrif ist í
líkaman um. Kís ill hjálp ar til við að
afeitra líkamann og los ar hann við
eit ur efni sem safn ast hafa fyr ir í
melting ar fær um.
Engin eitrunaráhrif: Neysla kís
ils hefur engin þekkt eitrunaráhrif.
Kísill safnast ekki upp í líkaman
um heldur tekur líkaminn upp það
magn sem hann þarf úr fæðunni og
skilar umfram magni, ef eitthvað
er, út með þvagi. Fólk með eðlilega
nýrnavirkni ætti því ekki að geta
orðið meint af hóflegri kísilsneyslu.
Vegna þessa hefur Matvælaöryggis
stofnun Evrópu (EFSA) enn ekki
gefið út nein efri þolmörk fyrir kísil
neyslu.
Fyrir stinnari og sterkari húð: Kís
ilsteinefni styrkir húðina og gerir
hana stinnari. Rannsóknir hafa sýnt
að kísill örvar myndun kollagens í
líkamanum og getur því grynnkað
hrukkur og lagað skemmdir á húð
vegna of mikils sólarljóss.
Fyrir sterkara hár og neglur:
Rannsóknir hafa sýnt að kísilstein
efni styrkir hár og neglur. Einnig
getur kísill komið í veg fyrir eða
minnkað hárlos og klofna enda.
Gjöf frá móður jörð
GeoSilica Iceland ehf. framleiðir
kísilinn beint úr iðrum jarðar og er
því eins náttúrulegur og kostur er á.
Fyrirtækið hefur þróað aðferð til að
vinna kísilinn beint úr jarðhitavatni
Hellisheiðarvirkjunar. Kísillinn er
styrktur og hreinsaður svo að eft
ir stendur náttúrulegur og hreinn
kísill í vatnslausn. Kísilsteinefnið
inniheldur agnarsmá kísilkorn sem
líkaminn á auðvelt með að vinna úr
og nýta til styrkingar líkamans.
Ráðlagður dagskammtur er ein
matskeið (1015 ml). Kísilsteinefni
Geosilica fæst í öllum helstu apó
tekum og heilsuhúsum um land allt.
Unnið í samstarfi við
GeoSilica
Fida Abu Libdeh, framkvæmdarstýra GeoSilica Iceland ehf. Fyrirtækið spratt upp úr lokaverkefni hennar og Burkna Pálssonar í
orku- og umhverfistæknifræði við Háskóla Íslands.