Fréttatíminn - 10.04.2015, Page 46
46 bílar Helgin 10.-12. apríl 2015
Bílar NissaN leaf var mest seldi BílliNN hjá Bl í mars
Rafbíll á toppnum í fyrsta sinn
Viltu koma í sund með Fr
eyju og Fróða?
Þá færðu að bruna í rennib
rautinni og sulla í heita
pottinum en þú mátt alls
ekki fara í djúpu
laugina nema þú kunnir v
el að synda.
Freyja og Fróði í sundi er
falleg og fjörug bók um
allt sem þarf að hafa í hu
ga þegar farið er í sund.
Fr
eyja
o
g
Fr
ó
ð
i í su
n
d
i
Kristjana Friðbjörnsdóttir
• Bergrún Íris Sævarsdótt
ir
Hvernig er að fara í fyrsta
skiptið til tannlæknis? Er það
vont? Eða er það kannski
bara skemmtilegt?
Hvað þarf maður
að vita áður
en maður fer í su
nd? Er renni-
brautin ægilega b
rött og fyrir
hvern er djúpa la
ugin?
w w w.forlagid. i s | Bókabúð Forlags in s | F i sk i s lóð 39
v ið sjáum nokkuð skemmti-lega dreifingu á Leaf því hún fer vaxandi í öllum
markhópum,“ segir Skúli K. Skúla-
son, framkvæmdastjóri sölusviðs
BL, en í marsmánuði var Nissan
Leaf mest selda bílgerðin hjá BL
og er það í fyrsta sinn sem rafbíll
vermir það sæti.
„Við sjáum að fjölskyldufólk horf-
ir í sífellt auknum mæli til Leaf sem
fjölskyldubíls, fleiri og fleiri fyrir-
tæki á höfuðborgarsvæðinu eru að
taka hann í sína þjónustu og bíla-
leigurnar eru einnig farnar að bjóða
Leaf á leigu. Bara í marsmánuði fóru
sex Leaf til bílaleiga og því markaði
síðasti mánuður einnig tímamót á
bílaleigumarkaði hvað Leaf varðar,“
segir Skúli. Söluhæsta merkið hjá
BL í mars var Nissan með 67 bíla,
þar af 25 Nissan Leaf.
BL er það bílaumboð sem hefur
mesta hlutdeild á einstaklings- og
fyrirtækjamarkaði, án bílaleiga, eða
25,1% í marsmánuði þegar 162 bílar
voru afhentir, auk 55 bílaleigubíla
en þar er BL með 12,7% hlutdeild
nýskráðra bíla í marsmánuði.
Flest bílaumboð landsins eru nú
byrjuð að afhenda bíla í stórum stíl
til bílaleiganna og nam sá hluti um
40% af heildarsölu marsmánaðar
þegar leigurnar fengu afhenta 432
bíla. - eh
Nissan Leaf var söluhæsti bíllinn hjá
BL í mars og er það í fyrsta skipti sem
rafbíll er söluhæsti bíllinn. Sex bílanna
sem þá voru seldir fóru á bílaleigur.
Mynd/Hari
reyNsluakstur toyota rav4
Auk þess að hafa fengið nýtt og sportlegra útlit er nýi Ravinn rýmri og lengri en forfaðirinn og
nú er hægt að fá framhjóladrifna útgáfu af þessum margfræga brautryðjanda. Líkt og forverinn
býður hann upp á öryggi og sparneytni sem hefur lengi verið lykillinn að velgengni þessa sívin-
sæla jepplings.
Þ egar Toyota RAV4 kom fyrst á markaðinn árið 1994 var hann fyrsti bíllinn til að
leggja saman í eina sæng eiginleika
fólksbíls og jeppa. Allt í einu var
hæð, rými og fjórhjóladrif komið
á fjölskyldubílinn og jepplingurinn
var fæddur. Draumur borgarbúans
sem fer reglulega í bústaðinn og
jafnvel stundum út fyrir malbikið.
Ravinn hefur verið einn vinsælasti
bíll Toyota allar götur síðan og jepp-
lingar hafa tekið yfir markaðinn.
Það er kannski þess vegna sem To-
yota ákvað fyrir 2 árum að breyta
útliti bílsins algjörlega, til að stand-
ast alla samkeppnina eftir hafa átt
markaðinn í mörg ár.
Nýi Ravinn er í raun líkari sport-
legum fólksbíl en jeppa. Útlitið
er óneitanlega framúrstefnulegt
miðað við afalegan stílinn á forver-
anum. Ég var því dálítið hissa að
upplifa innra rýmið sem hefur lítið
breyst frá forveranum. Jú, það er
kominn start-takki og bakkmynda-
vél og mælaborðið hefur fengið á
sig bogadregna sveigju, sem mér
persónulega fannst ekki vera breyt-
ing til batnaðar því hún skyggir á
allt sem er fyrir neðan hana. En
útlit er auðvitað smekksatriði og
Ravinn er léttur og þægilegur í
akstri sem er sennilega ástæða
þess hversu vinsæll hann er. Hann
er stöðugur og gefur öryggistilfinn-
ingu, hann er sparneytinn og býður
upp á meira rými en keppinautarn-
ir. Nýjasta útgáfan af RAV4 er fram-
hjóladrifin og er ódýrari kostur en
fjórhjóladrifinn forverinn, auk þess
að vera sparneytnari. Toyota-bílar
eru auk þess þekktir fyrir lága bil-
anatíðni svo það má segja að Rav-
inn sé nokkuð öruggt val fyrir þá
sem vilja þægilegan jeppling.
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
RAV er öruggt val
toyota
rav 4
Kostir
Bakkskynjarar
Gerður úr 95%
endurnýjanlegum
efnum
Lágt CO2 útstreymi
Stórt farangursrými
ISOFIX-festingar
fyrir barnastóla
Gallar
Snertiskjárinn í
minna lagi
Bogalínulaga mæla-
borð sem skyggir
á það sem undir
því er
Verð frá 4.890.000
kr. (Dísil, framhjóla-
drifinn, 124 hestöfl,
beinskiptur).
Toyota stendur sig vel þegar kemur
að því að bæta umhverfisvæna
eiginleika bíla sinna. Nýjasta út-
gáfan af RAV4 hefur til dæmis 12%
minna CO2 útstreymi en eldri gerðin
og frá árinu 2006 hefur fyrirtækið
dregið úr úrgangi um alls 95,5% á
hverja bifreið sem framleidd hefur
verið. Þar að auki er það stefna
fyrirtækisins að nota sem mest af
endurvinnanlegum efnum í bif-
reiðar sínar og heil 95% af efnunum
sem notuð eru í RAV4 eru endur-
vinnanleg. Þetta eru allt frábærir
kostir sem vert er að hafa í huga
þegar kemur að því að velja sér bíl.
Bílar í sama flokki:
Honda CR-V, Skoda Yeti, Volkswa-
gen Tiguan, Ford Kuga, Hyundai
Santa Fe, Nissan X-Trail og Mit-
subishi Outlander