Fréttatíminn - 10.04.2015, Page 60
Í takt við tÍmann Egill PlodEr ottósson
Er á leiðinni á One
Direction tónleika
í Gautaborg í sumar
Staðalbúnaður
Ég reyni eftir fremsta megni að vera fínn
og koma vel fyrir. Í fataskápnum er mikið
af Cheap Monday-buxum og ýmsum
skyrtum en svo er þetta bara blanda af
rosa mörgu. Ég missti mig í Samsøe &
Samsøe í Danmörku um jólin og svo eru
alltaf nokkrar flíkur úr H&M þarna líka.
Ég er annars ekki mikið að elta tísku-
strauma en ég ætti kannski að gera það.
Ég læt ekki sjá mig á opinberum vettvangi
án þess að vera með eitthvað í hárinu og nú
nota ég Hairbond vax sem ég kaupi á Reykja-
vík Hair. Félagarnir segja reyndar að það sé
farinn að þynnast á mér kollurinn en það er
djöfulsins rugl.
Lj
ós
m
yn
d/
H
ar
i
Egill Ploder Ottósson er tvítugur Seltirningur
sem er einn stjórnenda sjónvarpsþáttarins
Áttunnar sem fer í loftið á Mbl.is á sunnu-
dag. Egill er einn fjórði Austurríkismaður
og var meðlimur í hljómsveitinni F.U.N.K.
sem tók þátt í Eurovision í fyrra. Hann
horfir á Grey’s Anatomy og er stoltur
af því.
Hugbúnaður
Ég spila fótbolta með stórveldinu
Kríu á Seltjarnarnesi og við
verðum í fjórðu deildinni í
sumar. Ég vil halda mér
djúpum á miðjunni, eins
og Lucas Leiva hjá
Liverpool. Ég er einmitt
harður Púlari. Annars
finnst mér rosa gaman
að hanga með félög-
unum og fara kannski
á Brooklyn Bar
og fá okkur einn,
tvo kalda. Svo er
alltaf þægilegt að
liggja uppi í rúmi
og horfa á þætti
og bíómyndir. Við
kærastan erum
nýbyrjuð að horfa
á Grey’s Anatomy
og ég skammast mín
nákvæmlega ekkert
fyrir það. Svo horfi ég
líka á Walking Dead og
Suits. Það er hins vegar
erfiðasta spurning í heimi
að svara hverjar eru uppá-
halds myndirnar mínar, það
er síbreytilegt.
Vélbúnaður
Ég er ekkert sérstakur í tækjunum. Ég á
Lenovo-fartölvu sem er að detta í sundur, en
virkar þó. Svo er ég með iPhone 4s. Það er
auðvitað helvíti gömul týpa og það er í kort-
unum að fara að skipta henni út. Ég reyni að
vera virkur á samskiptamiðlunum; Facebo-
ok, Instagram, Snapchat og Twitter. Svo
hangi ég óþarflega mikið í Bloons TD Battle
í símanum og keppi við lið á netinu. Ef ein-
hver þorir í mig er ég egill2424 á Gamecen-
ter – ég er ennþá ósigraður þar.
Aukabúnaður
Ég er einn fjórði Austurríkismaður og
mamma gerir betra snitsel en nokkur annar.
Það og naut og bernaise er besti maturinn
sem ég fæ. Ég er í fjarþjálfun hjá Agli Einars-
syni svo ég borða mestmegnis hrökkbrauð
og kotasælu þessa dagana en ef ég fæ mér
skyndibita fer ég oftast á Hanann. Ég keyri
um á Toyota Yaris sem kærastan á en ég fæ
oftast að hafa, það er alveg nauðsynlegt að
vera á bíl þegar maður býr í Norðlingaholt-
inu. Ég hlusta mikið á tónlist og reyni að
syngja líka. Stefnan er að láta til mín taka í
tónlistinni í framtíðinni. Í sumar er stefnan
sett til Gautaborgar með nokkrum félögum.
Við ætlum að vera þar í viku og fara á One
Direction-tónleika. Við erum miklir aðdá-
endur.
60 dægurmál Helgin 10.-12. apríl 2015