Iðnaðarmál - 01.06.1958, Page 8
GUNNLAUGUR PÁLSSON arkitekt:
N. B. D. VII.
Norrænn byggingardagur (N.B.D.)
er samtök þeirra aðila á Noröurlönd-
um, sem við byggingarmál fást, en
þar eiga hlut að máli ráðuneyti, stétt-
arfélög, byggingarfélög, rannsóknar-
stofnanir og bæjarfélög.
Markmið samtakanna er að ræða
þróun og viðhorf í byggingarmálum
Norðurlandaþjóðanna og kynna
helztu nýjungar á hverjum tíma. Hafa
verið haldnar ráðstefnur í þessu
skyni til skiptis í höfuðborgum Norð-
urlanda, að jafnaði á fimm ára fresti,
en seinni árin á þriggja ára fresti. Ár-
ið 1955 var ráðstefnan haldin í Hels-
ingfors, en í septembermánuði í ár
var hún haldin í Osló; var það 7. ráð-
stefnan á vegum N.B.D.
Þátttakendur í ráðstefnunni voru
900 frá öllum Norðurlöndum, þar á
meðal 24 fslendingar.
Setning róðstefnunnar
Ráðstefnan var sett með viðhöfn í
Klingsberg Kino af forsætisráðherra
Norðmanna, Einari Gerhardsen.
Formenn Norðurlandadeildanna
fluttu ávörp, en stjórn íslandsdeildar-
innar skipa Hörður Bjarnason, húsa-
meistari ríkisins, formaður, Gunn-
laugur Pálsson arkitekt, ritari, Axcl
Kristjánsson forstjóri, gjaldkeri, auk
Tómasar Vigfússonar og Guðmundar
Halldórssonar byggingarmeistara.
Við setningu ráðstefnunnar flutti
danski arkitektinn H. E. Langkilde
mjög athyglisvert og skemmtilegt er-
indi, sem hann nefndi „Smáhuset —
Arkitekturens avantgarde og bag-
trop“.
Að þessu sinni voru það tvö verk-
efni, sem sérstaklega voru tekin til
meðferðar, þ. e. heildarskipulag bygg-
ingarframkvæmda (totalpro j ekter-
ing) og smáíbúðarhús, og í því til-
efni var gefin út sérstök bók um smá-
hús á Norðurlöndum. Bók þessi
(Nordiske smáhus) fæst nú hér í
bókabúðum.
Heildarskipulag byggingar-
framkvæmda
Verkefnið, heildarskipulag bygg-
ingarframkvæmda, var þannig undir-
búið, að skipaðar voru nefndir í
hverju landi, sem gerðu grein fyrir,
hvernig málum þessum er háttað á
hverjum stað, og gerðu tillögur til
endurbóta. Norski arkitektinn Odvar
Hedlund var formaður aðalnefndar-
innar. Taldi hann, að þessum málum
væri mjög ábótavant á öllum Norður-
löndum; þó munum við Islendingar
vera mestir eftirbátar í þessum efn-
um. Ymsir litu svo á, að „totalprojek-
tering“ næði eingöngu yfir teikni-
vinnu bygginganna, en Hedlund taldi,
þegar um heildarskipulag byggingar-
framkvæmda væri að ræða, að byrja
yrði á bæjarskipulaginu og fjárhags-
grundvelli þeim, sem byggingarfram-
kvæmdirnar hvíldu á. Yfirleitt væru
menn á einu máli um það, að sam-
ræma þyrfti frágang teikninga, að því
er varðar málsetningar og merkingar
(signatur).
92
IÐNAÐARMÁL