Iðnaðarmál - 01.06.1958, Side 9

Iðnaðarmál - 01.06.1958, Side 9
Einn höfuðþátturinn í heildarskipu- lagi byggingarframkvæmda taldi arkitekt Hedlund, að væri náin sam- vinna arkitekta, verkfræðinga og verktaka í öllu undirbúningsstarfi framkvæmdanna. Sérstaklega er þetta orðin áberandi nauðsyn í sambandi við breytta byggingarhætti, ný bygg- ingarefni og fjöldaframleiðslu bygg- ingarhluta. „Bygg reis deg" Á öðrum degi ráðstefnunnar var opnuð hin veglega byggingarsýning „Bygg reis deg“. Tryggve Lie fylkis- stjóri, fyrrv. framkvæmdastjóri Sam- einuðu þjóðanna, opnaði sýninguna í viðurvist Olafs Noregskonungs. Sýning þessi var mjög yfirgrips- mikil með víðtækri þátttöku allra Norðurlandanna, nema Islands, en framleiðendur hér töldu tilgangslaust að taka þátt í sýningunni, þar eð eng- inn markaður væri fyrir framleiðslu- vörur þeirra á Norðurlöndum. Auk hinna ýmsu byggingarefna, sem þarna voru til sýnis, var svæði einbýlishúsa, sem unnin voru í verk- smiðjum, en sett saman á staðnum. Meirihluti einbýlishúsa í Noregi er gerður úr timbri, en seinni árin hafa hvers konar þilplötur rutt sér mjög til rúms, og voru sýnd þarna nokkur hús, þar sem meginuppistaðan voru vegg- einingar (element), bæði út- og inn- veggir gerðir úr þilplötum. HaWel-húsið M. a. var sýnt þarna svokallað HaWel-hús. Það var verkfræðingur- inn Hans Welde, sem hefur sett á lagg- irnar fjöldaframleiðslu á húsaeining- um, þar sem hver eining er 1.20 m á breidd (veggir og loft). Veggeining- arnar eru klæddar spónplötum og út- veggir einangraðir með steinull. Kóln- unartala útveggja er k = 0,3, sem telja verður mjög hagstætt. Þrefalt gler er í gluggum, en það er að verða mjög algengt í Noregi, enda fá hús- byggjendur aukalán til þeirra hluta. Hús það, er sýnt var, er 80 m2 „typu“-hús, teiknað af arkitekt Odd Brockmann. Slíkt hús kostar frá verk- smiðju nkr. 12.900:—, en uppsett og tilbúið með öllum innréttingum nkr. 30.000:—. Uppsetningin tekur einn dag. Við þetta verð leggst lóðarverð og grunnur. Enda þótt hús þetta og fyrirkomu- lag þess sé að ýmsu leyti athyglisvert, tel ég ekki, að þessi byggingarháttur óbreyttur henti íslenzkum aðstæðum, m. a. vegna þess að við erum algjör- lega háðir innflutningi hráefnanna, sem er timbur. Einnig er allur frá- gangur húsanna þannig, að mikil hug- arfarsbreyting þarf að eiga sér stað hjá okkur, áður en fólk almennt sættir sig við slík hús. Gjallsteypa Ein deild sýningarinnar var Leca- steypa, en það er gjallsteypa búin til úr „gervi“-gjalli, þar sem hráefnið er leir, sem brenndur er í ofnum (líkt og sementsgjall), og myndast gjallkúlur af ýmsum stærðum. Leca-steypan hef- ur rutt sér mjög til rúms á Norður- löndum og víðar og er notuð bæði í byggingarsteina, þak- og loftplötur, einangrunarplötur o. fl. Gjallsteypa þessi hefur ýmsa góða eiginleika byggingarefnis. T. d. hafa tilraunir sýnt, að gjallið tekur mjög lítið í sig af vatni. Veggur, sem var reyndur gegn slagregni í lengri tíma, sýndi, að vatnið náði aldrei lengra en 3 cm inn í steypuna. Leca-steypa virðist að ýmsu leyti vera sambærileg íslenzkri gjallsteypu, þó að eiginleikarnir séu að einhverju leyti frábrugðnir. Ef- laust á hið íslenzka gjall eftir að verða mjög snar þáttur í íslenzkri bygging- arstarfsemi í framtíðinni. Skriðmót Á sýningunni var byggður 23 m hár turn með skriðmótum, og var hann tákn sýningarinnar (sjá mynd). Þrjár súlur, 60 cm í þvermál, mynd- uðu turninn og voru steyptar sam- tímis. Steypuvinnan byrjaði við setn- ingu sýningarinnar, og tveimur dög- um síðar var verkinu lokið. í Noregi eru skriðmót notuð í mjög ríkum mæli til hvers konar mannvirkjagerð- ar. Tilgangur N.B.D. er að safna sam- an þeim árangri, sem náðst hefur á milli byggingardaganna, kynna nýj- ungar og safna hlutaðeigandi fólki saman til skrafs og ráðagerða. I jan- úarmánuði kemur út bók með fyrir- lestrum þeim, sem þarna voru haldn- ir, og þeim umræðum, sem áttu sér stað í sambandi við þá. Norðmenn báru veg og vanda af þessari ráðstefnu og undirbúningi byggingarsýningarinnar. Verður að teljast, að hvorttveggja hafi farið þeim prýðilega úr hendi og Norræni byggingardagurinn í Osló því náð til- ætluðum árangri. Arkitekt: OdcL Brockmann. IÐNAÐARMAL 93

x

Iðnaðarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.