Iðnaðarmál - 01.06.1958, Blaðsíða 31

Iðnaðarmál - 01.06.1958, Blaðsíða 31
Bandarísk smáíyrirtæki og rannsóknarstarísemi í september 1957 átti stjórnskipuð nefnd frumkvæði að því, að haldin var ráðstefna í Washington, er fjall- aði um rannsóknir á tækni og dreif- ingarstarfsemi í þágu smáfyrirtækja. Hversu mikilvæg Bandaríkjamenn telja smáiðnfyrirtæki (smallindustry) sín og vandamál þeirra, má m. a. marka af því, að Eisenhower forseti hélt sjálfur setningarræðuna á ráð- stefnu þessari. Þátttakendur voru um eitt þúsund, og voru þeir fulltrúar fyr- ir æðri menntastofnanir, fagsambönd, rannsóknarstofnanir, einkafyrirtæki og opinber yfirvöld. Verzlunarmála- ráðuneytið (Department of Comm- erce) og önnur stofnun, tiltölulega ung, Stjórnardeild smáfyrirtækja (Small Business Administration), tóku virkan þátt í undirbúningi ráð- stefnunnar. Ráðstefnunni var skipt í tvær höf- uðdeildir, og fjallaði önnur um tækni- legar rannsóknir, en hin um dreifing- arrannsóknir. Hvor deild um sig starf- aði að mestu leyti í umræðuflokkum, þar sem hver flokkur fékk ákveðið verkefni til úrlausnar. Svo virðist sem þannig hafi tekizt að örva þátttakend- ur til mjög virkrar starfsemi í þá þrjá daga, sem ráðstefnan stóð yfir. í báðum deildum var umræðuefnið valið á þann hátt,að Ijóst mætti verða, hvar smáfyrirtæki gætu helzt leitað aðstoðar. I tæknilegu deildinni voru t. d. haldnir stuttir fyrirlestrar, er fjölluðu um eftirfarandi upplýsinga- og fræðslulindir: Eigin starfsemi smáfyrirtækja Svæða- og sérframleiðslusamsteyp- ur smáfyrirtækja Stórfyrirtæki Sambandsstj órnina Opinberar stofnanir einstakra fylkja Háskóla og aðrar menntastofnanir Sérgreinasambönd í iðnaði Sjálfstæðar rannsóknarstofnanir Tæknibókmenntir, bókasöfn o. þ. u. 1. Höfuðniðurstöður leiða í ljós eft- irfarandi atriði: Smáfyrirtækin hafa hingað til yfir- leitt talið rannsóknarstarfsemi utan við sinn verkahring og þar af leiðandi gagnslitla fyrir starfsemi sína. Ráð- stefna þessi hefur mjög stuðlað að því að gjörbreyta þessari skoðun. Smáfyrirtækjunum er yfirleitt ókunn- ugt um þann fjölda af rannsóknar- niðurstöðum, sem hægt er að fá tafar- laust frá opinberum aðilum, mennta- stofnunum, sérsamböndum, fagtíma- ritum o. fl. Allir þessir aðilar hafa mikinn áhuga á að rétta smáfyrir- tækjunum hjálparhönd. Þessa starf- semi verður að örva enn meir, m. a. með því, að háskólar og aðrar mennta- stofnanir haldi námskeið, er sérstak- lega fjalli um stjórn smáfyrirtækja. Af höfuðniðurstöðunum dregur ráðstefnan ýmsar ályktanir, einkum varðandi það, hvað yfirvöldunum beri að gera til að örva smáfyrirtækin og fá þau til að taka meiri þátt í hag- nýtingu rannsóknarstarfseminnar á tæknilegum og viðskiptalegum svið- um. Heildarskýrsla ráðstefnunnar er mjög girnileg til fróðleiks, jafnvel þótt aðeins takmarkaðan hluta þeirra upplýsinga, sem þar er að finna, megi notfæra sér við aðstæður utan Banda- rikjanna. Heimild: Skýrsla EPA/ETH/1980. J. B. þýddi. V innulaunagreiðslur með tékkum Eins og kunnugt er, veldur það talsverðum erfiðleikum og fyrirhöfn, einkum í stærri fyrirtækjum, að greiða vinnulaun í seðlum og smá- mynt. í fyrirtækjum, þar sem samkomu- lag næst við starfsmenn um að greiða laun þeirra inn á ávísanareikninga í bönkum eða sparisjóðum, er þetta einfalt viðureignar. Hefur það ýmsa kosti í för með sér fyrir báða aðila, m. a. örvandi áhrif á sparnaðarvið- leitni. Iðnaðarmálum er kunnugt um, að um þetta vandamál hefur víða verið fjallað og að sjónarmið eru mörg, sem hafa þarf í huga, þegar um það er rætt. Kom þetta t. d. skýrt í ljós í skrifum, sem urðu um þetta mál í Lundúnarblaðinu „Times“ í sept. s.l., enda þótt fátt af því hafi átt við okk- ar aðstæður. Iðnaðarmálum væri ánægja að veita rúm stuttum álitsgerðum um málið hér í blaðinu, og væri æskilegt, að þar kæmu fram sjónarmið sem flestra launþega, bæði mánaðar- og vikukaupsmanna, atvinnurekenda, bankamanna og gjaldkera, sem telja sér málið skylt. Væri sömuleiðis gott að fá fram sjónarmið þeirra, senr telja sig hafa leyst vandamálið, og heyra um reynslu þeirra. S.B. IÐNAÐARMÁL 115

x

Iðnaðarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.