Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.2011, Blaðsíða 10

Frjáls verslun - 01.08.2011, Blaðsíða 10
10 FRJÁLS VERSLUN 8.- 9. TBL. 2011 HOTEL SAGA, REYKJAVÍK Þegar þú heldur fund eða ráðstefnu á Hótel Sögu getur þú auðveldlega spunnið þann söguþráð sem hentar gestunum þínum best. Auk fjölbreyttra fundarsala, með öllum nýjasta tækjabúnaði, býður hótelið upp á veitingastaði og bar, heilsumeðferð og fyrsta flokks gistingu ef menn koma langt að. Stemningin bæði á undan og eftir getur skipt máli fyrir árangurinn af fundinum. Það er auðvelt að halda þræðinum á Hótel Sögu. Hótel Saga býður upp á margar fléttur Radisson Blu Saga Hotel Sími: 525 9900 hotelsaga@hotelsaga.is www.hotelsaga.is P IP A R • S ÍA • 9 1 7 3 6 Leiðari Sex ára trúlofun Alcoa og stjórnvalda var slitið þegar Alcoa gaf frá sér tilkynningu um að fyrirtækið væri hætt við að reisa álverksmiðju á Bakka við Húsavík vegna þess að ekki fengist nægileg orka til verksmiðjunnar. Viðbrögð stjórnvalda voru svolítið í ætt við það þegar fólk slítur trúlofun og sögðu m.a. að lítil alvara hefði verið í þessu sambandi af hálfu Alcoa og það væru fleiri fiskar í sjónum. Á Alþingi fögnuðu nokkrir stjórnarliðar þess ­ ari niðurstöðu og gefur það vísbendingu um raunverulegan vilja stjórnvalda til að semja við Alcoa, hvað þá þegar þau hafa verið að ræða við nokkur önnur fyrirtæki um að nota orkuna sem til stóð að færi í álverið á Bakka. Eftir yfirlýsingar forstjóra Landsvirkjunar spyr maður sig hins vegar um þá aðferða­ fræði sem beitt var í viðræðum Alcoa og stjórn valda. Einnig spyr maður sig um samn ingatækni almennt þegar kemur að stjórn völdum – en Íslendingar eiga t.d. í við ­ ræðum við Evrópusambandið um aðild að sambandinu og hefur lítið verið gefið upp um hvernig þær gangi, hver samningsmarkmið Íslendinga séu og hvað standi út af borðinu. Í tilviki Alcoa og stjórnvalda má skilja yfir ­ lýsingar forstjóra Landsvirkjunar, Harðar Arnarsonar, á þann veg að eftir sex ár hafi ekki verið byrjað að ræða aðalatriði málsins; verð á rafmagninu. Ég á raunar bágt með að trúa því. Hvers vegna var aldrei sest niður og þreifað á því stórmáli? Það sama virðist raunar vera upp á ten­ ing n um í samningaviðræðum Íslendinga og Evrópusambandsins. Ekki er enn farið að ræða stóru málin eins og skilyrði Íslend inga varðandi forræði þjóðarinnar yfir fiskveiði­ auð lindinni; um íslenskan landbúnað á grund velli fæðuöryggis og matvælaöryggis, eða forræði Íslendinga yfir vatns­ og orkuauð ­ lind um og ráðstöfun þeirra. Einhver segði sem svo að í viðræðum Alcoa og stjórnvalda sem og ESB­við ­ræðunum þyrfti fyrr en síðar að þreifa á aðalatriðunum og kanna hvort menn næðu lendingu. Hvers vegna er ekki byrjað fljótlega á að ræða það sem skiptir höfuðmáli? Ég minnist þess fyrir nokkrum árum þeg ­ ar fyrirtækin Austurbakki og Hans Petersen ætluðu að sameinast að þá hafði nánast allt verið rætt áður en komið var að aðalatriðinu; verði hlutabréfa hvors fyrirtækis um sig í viðskiptunum. Hver skiptihlutföllin ættu að vera. Þegar kom að því var mikill mun ur á sjónarmiðum og ekkert varð af sam ein­ ingunni. Þegar Austurbakki ætlaði síðar að sameinast Thorarensen­Lyfjum vildu menn ekki brenna sig aftur á þessu og byrjuðu að ræða verð og skiptihlutföll og náðu sam ­ komu lagi um það svo einhver tilgangur væri í því að halda áfram. Á lokaspretti viðræðn­ anna varð ósamkomulag um hverjir mönnuðu einstaka stöður í hinu sameinaða fyrirtæki og nokkur önnur teknísk mál. Þá slitnaði upp úr viðræðunum og ekkert varð úr neinu. Eftir að Alcoa gaf það út að fyrirtækið væri hætt við að reisa álverksmiðju á Bakka voru fyrstu viðbrögð þingmanna úr röðum Sam ­ fylkingar og Vinstri grænna að fagna þessari niðurstöðu. „Ég óska vinum mínum í Þing ­ eyjarsýslunni til hamingju með að slökkt hafi verið á þessu villuljósi,“ sagði Mörður Árna ­ son á Alþingi. Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra sagði á Alþingi að vísbendingar væru um að alvaran hjá Alcoa um byggingu álvers á Bakka hefði ekki verið jafnmikil og látið var í veðri vaka og að fyrirtækið hefði ekki einu sinni sótt um lóð á Bakka eða til ­ kynnt á heimasíðu sinni að það væri hætt við áform sín. Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, sagði að Alcoa hefði ekki fengist til að ræða orkuverð þrátt fyrir óskir Landsvirkjunar þar um – en hefði óskað eftir afhendingu orkunnar innan fimm ára, sem ekki hefði verið hægt að verða við. Hörður sagði að það að opna viðræður um orkuna fyrir fleiri aðilum hefði styrkt samningsstöðu Lands virkjunar til muna. Alcoa hefði beitt alþekktri samningatækni; að koma sér í sterka samn ingsstöðu, sitja eitt við borðið og skapa vænt ingar áður en farið væri að semja um verð. Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa, sagði að fyrirtækið hefði sett á annan milljarð króna í verkefnið og unnið að undirbúningi þess frá árinu 2006 en til stóð að álverið hefði 250 þúsund tonna framleiðslugetu á ári. Hann sagði að útséð væri að það tækist að útvegja nýju álveri Alcoa næga raforku. Til væri vilja­ yfirlýsing af hálfu Landsvirkjunar um að selja orkuna fyrir norðan til annarra verkefna og ekki hefði tekist að fá viljayfirlýsingu um orkusölu til Alcoa, hvorki af hálfu ríkis stjórn ­ arinnar né Landsvirkjunar. Alcoa rekur myndarlegt og stórt álver á Austurlandi og það er góð reynsla af fyrir ­ tæk inu. Það getur vel verið að Íslendingar séu búnir að fá nóg af álverum og telji of mikla áhættu fylgja því að hafa „of mörg egg í sömu körfu“ þegar kemur að raforkunni. En þá á líka að segja viðmælandanum það strax í upphafi, annars er hann dreginn á asnaeyrunum. Það sama gildir um fyrirtæki sem sækjast eftir samningum, þau verða að viðra það fljótlega hvað þau eru tilbúin til að greiða. Er líklegt að Alcoa hafi sett vel á annan milljarð króna í verkefnið á Bakka án þess að meina neitt með því og þetta hafi allt verið eins konar leiktjöld? Það var þá að minnsta kosti dýr leiksýning. Og ekki var það sannfærandi að stjórnarliðar fögnuðu þegar fyrirtækið sló verkefnið af. Það er ekki nóg að vera með pókersvip í samningaviðræðum til margra ára ­ það verður að þreifa fljótlega á aðalatriðunum og vita hvort það sé vit og vilji í viðræðum annars draga menn hver annan á asna eyr­ unum. Af pókersvip og samningatækni Jón G. Hauksson Það er ekki nóg að vera með pókersvip í samninga við - ræð um – það verð ur að byrja á aðal - atr ið un um.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.