Frjáls verslun - 01.08.2011, Blaðsíða 166
166 FRJÁLS VERSLUN 8.- 9. TBL. 2011
M
enningarhúsið
Hof var formlega
vígt hinn 29.
ágúst 2010 og
hefur því nýverið
lokið sínu fyrsta starfsári. Í starfi
mínu sem framkvæmdastjóri
felst umsjón með daglegum
rekstri og utanumhald um
starfsemina. Það er óhætt að
segja að allt frá opnunardegi
hafi húsið verið fullt af lífi þar
sem hver stórviðburðurinn hefur
rekið annan auk þess sem fjöldi
gesta hefur sótt ráðstefnur og
fundi, veislur, sjónlistasýningar
og aðra viðburði.
Að fá að taka þátt í undirbún
ingsvinnunni í aðdraganda
opnunar og svo að sjá húsið
fyllast af lífi hefur verið algjört
ævintýri. Þó að húsið sé stórt er
starfsmannahópurinn fremur lítill
en hann er þeim mun öflugri.
Við höfum oft hlegið að því að
á fyrsta starfsárinu borðaði ég
oftar með starfsmönnum Hofs
um helgar en fjölskyldunni
og það fór lítið fyrir félagslífi
utan vinnunnar þannig að ég
er sérstaklega þakklát fyrir að
samstarfsmenn mínir eru ekki
bara góðir fagmenn heldur líka
einstaklega skemmtilegir.
Það sem fylgir því að vinna í
lítilli einingu er fjölbreytileikinn
og í mínu daglega starfi fæ ég
að fást við stefnumótun, starfs
mannastjórnun og áætlanagerð,
fjármálastjórnun og markaðsmál
og svo að taka á móti gestum
og notendum, sópa sviðið, raða
stólum og jafnvel gera upp
snúr ur en það er það eina sem
strákarnir í tæknideildinni hafa
hleypt mér í að gera hingað
til. Framundan er þétt dagskrá
og spennandi viðburðir á borð
við Fjölskylduferð á Skódanum
þar sem Ingimars Eydal verður
minnst og svo heimsækja bæði
Sinfóníuhljómsveit Íslands og
Íslenska óperan Hof síðar í
haust. Víkingur Heiðar Ólafs
son og Kristinn Sigmundsson
koma í desemberbyrjun og
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
verður með spennandi jólatón
leika þetta árið þar sem Sigríður
Thorlacius og Kristján Jóhanns
son koma fram með hljómsveit
inni. Fyrir þá sem vilja eitthvað
léttara eða jafnvel meira rokk
má nefna tónleika Dúndurfrétta,
Árstíða, jólatónleika Baggalúts
eða Þorláksmessutónleika Bubba
sem verða reyndar daginn fyrir
Þorláksmessu á Akureyri enda
erum við gjarnan skrefi á undan
hérna fyrir norðan.“
Ingibjörg Ösp býr ásamt fjöl
skyldu sinni í Reykárhverfi í Eyja
fjarðarsveit. „Kann alltaf best
við mig í sveitinni enda eru það
algjör forréttindi að alast upp og
búa í slíku umhverfi. Vinnudag
urinn verður oft ansi langur og í
vinnunni er mikið áreiti og álag
þannig að það er virkilega ljúft
að geta eftir slíka daga notið
kyrrðarinnar í sveitinni.“
Ingibjörg Ösp stundaði nám
við Háskólann á Akureyri og lauk
þaðan BScgráðu í við skiptafræði
árið 2001 og meist aranámi vorið
2009. Áður hafði hún meðal
ann ars unnið hjá Leikfélagi
Akur eyrar og KEA. „Ég hef oft
hugs að um það síðustu árin
hvað það er heppilegt að geta
sam einað áhugamál og vinnu á
einum vettvangi þar sem með
því að sinna barnauppeldi og
sækja sér menntun rúmast ekki
tímafrek áhugamál. Ferðalög
með fjölskyldunni eru efst á
lista og í sumar fórum við í fimm
vikna skemmtilegt ferðalag um
Evrópu þar sem við keyrðum
frá Danmörku niður Evrópu og
skoðuðum, slöppuðum af og
skemmtum okkur. Fjölbreytileik
inn er mjög mikill og einn dag inn
gengum við í snjókomu í kring
um Arnarhreiðrið og næsta dag
flúðum við inn úr hitanum við
Gardavatn. Þau voru ófá söfnin
og byggingarnar sem þurfti
að skoða svo ekki sé minnst á
sundlaugar og skemmtigarða. Í
svona fríi er öruggt að allir finna
eitthvað við sitt hæfi þannig að
ég mæli með þessu.“
Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir
– framkvæmdastjóri Hofs, menningarhúss
Einn daginn gengum við í snjókomu í kringum Arnarhreiðrið og næsta dag flúðum við inn úr
hitanum við Gardavatn.
Nafn: Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir
Fæðingarstaður: Akureyri 10.
apríl 1976
Foreldrar: Stefán Jóhann Árnason
og Vaka Jónsdóttir
Maki: Karel Rafnsson
Börn: Arna Ýr, 14 ára, Andrea Björk,
12 ára, og Stefán Daði, 8 ára
Menntun: BSc í viðskiptafræði árið
2001 og MS í alþjóðaviðskiptum
árið 2009
FÓLK