Frjáls verslun - 01.08.2011, Blaðsíða 62
62 FRJÁLS VERSLUN 8.- 9. TBL. 2011
Höskuldur Ólafsson, bankastjóri Arion banka:
Staðan er brothætt
1. Hver verða forgangs verk
efni fyrirtækis þíns næstu
mánuði?
Við munum áfram leggja
mikla áherslu á úrlausnarmál
fyrirtækja og einstaklinga, en
við gerum ráð fyrir að klára
þau mál að mestu á þessu ári.
Að undanförnu höfum við
einnig beint kröftum okkar að
nýj ungum á íbúðalánamarkaði
og komið fram með fjölbreytta
kosti og þá jafnt óverðtryggða
sem verðtryggða. Við munum
halda áfram á þeirri braut.
2. Hvernig metur þú endur
reisn atvinnulífsins eftir hrun?
Við erum á réttri leið. Það skipt
ir mestu. En vissulega hefðu
ákveðnir þættir mátt ganga hrað
ar fyrir sig. Eitt helsta verk efnið
núna er að koma fjár festingum í
gang. Fjár fest ing argetan er fyrir
hendi og hana þarf að virkja. Ein
for senda aukinna fjárfestinga er
að óvissu þáttum í ytra umhverfi
hér á landi fækki.
3. Hversu mikið vantar upp á
að skuldavandi fyrirtækja sé
leystur?
Hjá Arion banka eru um eitt
þúsund fyrirtæki sem hafa
þurft á fjárhagslegri endur
skipu lagningu að halda. Við
erum vel á veg komin með
þá vinnu og gerum ráð fyrir
að klára fjárhagslega endur
skipulagningu viðskipta vina
okkar að mestu fyrir lok þessa
árs. Þetta er mikið átaks
verk efni. Það er grunn ur inn
að endur reisn atvinnulífs að
at vinnu fyrir tæk in séu vel
rekstrar hæf og geti tekist á við
krefj andi verkefni til framtíðar.
Arion banki vinnur með sínum
viðskipta vinum að því að svo
megi verða.
4. Hvaða árangur ert þú
ánægðastur með hjá fyrir
tæki þínu á þessu ári?
Í upphafi árs settum við okkur
það markmið að þetta yrði
síðasta árið þar sem kraftar
okkar myndu að mestu fara í
mál sem tengjast annars vegar
for tíð inni, eins og úrlausnarmál
fyrirtækja og einstaklinga, og
hins vegar innri mál bank ans
eins og skipulag og stefnu mót
un. Þetta er að takast.
5. Finnst þér gæta tortryggni
í garð atvinnulífs og stórfyrir
tækja eftir hrunið?
Jú, vissulega verður maður var
við það og ekki síst þegar kem ur
að bönkunum. En það er okkar
hlutverk, okkar sem stýrum
þessum fyrirtækjum, að vinna
aftur traust. Það gerist ekki á
einni nóttu, heldur tekur það
tíma, langan tíma, og þolinmæði.
6. Hversu skaðleg eru gjald
eyrishöftin að þínu mati?
Við verðum að hafa það í huga
að gjaldeyrishöft eru nær
óþekkt í vestrænum heimi.
Þau draga úr vilja erlendra
fjár festa til að fjárfesta hér
á landi og þau draga einnig
úr vilja innlendra aðila til að
skipta gjaldeyri í þeirra eigu
í íslenskar krónur þar sem
óvíst er hvernig þeir geta á
nýjan leik skipt yfir í erl end an
gjaldeyri kjósi þeir það. Þetta
er óæskilegt ástand en nauð
synlegt eins og sakir standa.
7. Hvaða styrkleika sérð þú
í íslensku viðskiptalífi um
þessar mundir?
Almennt held ég að staða Ís
lands sé um þessar mundir
betri en marga grunar. Ekki
síst þegar horft er til annarra
landa í Evrópu þar sem víða eru
blikur á lofti. Okkar styrkur felst
kannski fyrst og fremst í því
að við erum komin vel áleiðis
í að vinna okkur út úr þeim
efnahagslegu hremmingum
sem við lentum í. Það þarf
þó að halda vel á spöðunum
í framhaldinu, þetta er allt
brothætt.
„Almennt held ég að staða Íslands
sé um þessar mundir betri en
marga grunar. Ekki síst þegar horft
er til annarra landa í Evrópu.“
Höskuldur Ólafsson, bankastjóri Arion banka.