Frjáls verslun - 01.08.2011, Blaðsíða 36
36 FRJÁLS VERSLUN 8.- 9. TBL. 2011
bækur
Spegill, spegill herm þú mér …
„Framúrskarandi forysta snýst ekki um að hafa svörin á reiðum höndum – miklu fremur
snýst hún um að hafa hugrekki til að spyrja erfiðra spurninga.“ – Robert S. Kaplan
Bókin What To Ask the Person In the Mirror:
F
ramúrskarandi forysta
snýst ekki um að hafa
svörin á reiðum hönd
um – miklu fremur
snýst hún um að hafa
hugrekkitilaðspyrjaerfiðra
spurninga.“ Á þessum orðum
hefurRobertS.Kaplanbókina
WhatToAskthePersonInthe
Mirror og gefur um leið tóninn
fyrir bókina og inntak hennar.
Bókinnierekkiætlaðaðsvara
spurningum heldur fyrst og
síð ast að varpa fram krefjandi
spurningum sem leiðtogar leyfa
sér ekki, þora ekki og/eða hafa
ekki tíma til að spyrja sig og
starfsmenn sína.
Þær kröfur, sem gerðar eru
til stjórnenda fyrirtækja núna,
eru meiri en áður. Oft á tíðum
er gerð sú krafa að stjórnend
ur nái meiri árangri í dag en
ígærjafnvelþóttþeirhafiúr
færri auðlindum að moða.
Óhjákvæmilega kallar slíkt á
aukið álag, stjórnandinn vinnur
fleirivinnustundiroghamastvið
að halda hlutunum gangandi.
Það gerir það að verkum að
hann hefur ekki, eða gefur sér
ekki, tíma til að staldra við,
lítayfirsviðiðogspyrjasigog
starfs menn sína krefjandi spurn
inga um reksturinn.
Slík þróun kann ekki góðri
lukku að stýra og getur orðið til
þessaðfyrirtækifljótisofandi
aðfeigðarósi.ÍbókinniWhatTo
Ask the Person In the Mirror sér
höfundurinnRobertS.Kaplan
stjórnendum fyrir hagnýtum
verkfærum í formi krefjandi
spurn inga sem hjálpa þeim að
spyrna við fótum og taka á ný
stjórn í sínum rekstri.
Einfalt og á mannamáli
Kostur bókarinnar er fyrst og
síðast hversu einföld og að
gengileg hún er. Hún er ekki
flókinhugmyndafræðilegaséð.
Hún er ekki ítarleg greining
áviðskiptaumhverfinu.Íraun
ekki það sem búast má við frá
virtum prófessor við Harvard
háskóla. Þvert á móti er bókin
sérlega einföld og aðgengileg.
Hún er uppfull af krefjandi
spurningum sem knýja stjórn
andann til að taka eitt skref aftur
á bak og skoða stóru mynd
ina. Hún leiðir stjórnandann í
gegnum einfalt ferli sem hjálpar
honum og starfsfólki hans að ná
enn meiri árangri.
Gríptu til aðgerða – og fáðu
fólkið þitt til að gera slíkt
hið sama
Ílokhverskaflaerstuttog
hnitmiðuðsamantektyfirefni
kaflansoglistiyfiraðgerðirsem
höfundur stingur upp á. Að gerð
irnar eru einfaldar og fela oftar
enekkiíséraðdragaþarffleiri
aðila að borðinu. Það, sem er
sérstaklega athyglisvert, er
aðsíðastaskrefiðergjarnan
útfærsla af setningunni: „Hvettu
undirmenn þína til að gera slíkt
hið sama.“ Höfundur er því að
hvetja stjórnandann til að rækja
skyldu sína sem leiðtogi við að
eflastarfsfólksittoghvetjaþað
til að spyrja krefjandi spurninga.
Slíkt getur aldrei leitt til annars
en aukins árangurs.
Nálin í heystakknum
Á hverjum einasta degi kemur
út fjöldi stjórnunar og leiðtoga
bóka sem ætlað er að hjálpa
stjórnendum að ná enn meiri
árangri.Þaðaðfinnaómissandi
bókíþessubókahafiereinsog
aðfinnanálíheystakki.Fyrir
þá leiðtoga, sem eru að leita
að bókinni sem enginn, sem
vill ná meiri árangri, má láta
framhjá sér fara, þarf ekki að
leita lengra. Þessi bók er nálin í
heystakknum, bókin sem stjórn
endur, reyndir sem óreyndir,
verða að lesa. Hún opnar augu
stjórnandans, setur hluti í áður
óþekkt samhengi og þeir stjórn
endur sem tileinka sér þær
aðferðir sem höfundur setur
fram í bókinni munu án nokkurs
vafa ná auknum árangri. Unnur Valborg Hilmarsdóttir
Bókin What To ask the Person in the mirror.
„Þessi bók er nálin í
heystakknum, bókin
sem stjórnendur,
reyndir sem óreyndir,
verða að lesa.“
1. Sýn og forgangsverkefni.
Markaðu skýra sýn og þau
forgangsatriði sem þarf að vinna til
að ná henni. Gakktu úr skugga um
að ALLIR starfsmenn viti hver sýnin
og forgangsatriðin eru.
2. tímastjórnun. Með skýrri sýn og
forgangsverkefnum er auðveldara
að einbeita sér að því sem mestu
máli skiptir og þannig stýra tíma
sínum betur.
3. veita og taka við endurgjöf.
Endurgjöf og stöðug markþjálfun
starfsmanna og stjórnenda
er nauðsynleg til að tryggja
framúrskarandi árangur.
4. Eftirmannaáætlanir og
valddreifing. Til að tryggja viðgang
fyrirtækisins þarf stöðugt að huga
að mannauðnum og kortleggja
í hvaða störf fólk getur þróast.
Stjórnandinn þarf einnig að dreifa
verkefnum með markvissum hætti
svo hann geti einbeitt sér að
aðalatriðunum.
5. Mat og samhljómur. Nauðsynlegt
er að meta reglulega hvort enn sé
samhljómur milli þarfa fyrirtækisins
og núverandi uppbyggingar.
Erum við að vinna hlutina á besta
mögulega máta eða vinnum við
hlutina „eins og þeir hafa alltaf
verið unnir“?
6. leiðtoginn sem fyrirmynd. Hvað
þú gerir er áhrifameira en orð þín.
Segir þú eitt og gerir annað? Það
sem meira er; gerir fólkið þitt það?
7. náðu þeim árangri sem efni
standa til. Ekki er hægt að ná
hámarksárangri nema með því að
þekkja styrkleika sína, veikleika og
ástríður.
Í bókinni setur höfundur fram sjö meginsvið sem stjórnendur ættu að ein beita sér
að og reglulega spyrja sig krefjandi spurninga um. Hverju þeirra fylgja krefjandi
spurningar sem fá stjórnandann til að horfast í augu við raun veruleikann og átta
sig á hvar úrbóta er þörf. Sviðin byggjast hvert á öðru. Þau eru:
Sviðin Sjö
Hver er Robert S. Kaplan?
Dr. Robert S. Kaplan er Baker Foundation-prófessor við Harvard Business
School í Bandaríkjunum. Hann er einn hugmyndasmiða hinnar útbreiddu
Balanced Scorecard-hugmyndafræði (ísl. stefnumiðað árangursmat) sem
víða er notuð til að meta árangur og frammistöðu með tilliti til stefnu og
langtímamarkmiða fyrirtækja. Hann hefur í félagi við samstarfsmann sinn
Dr. David Norton skrifað bækur um Balanced Scorecard og sjálfur hefur
hann skrifað fjölda greina, fræðirita og bóka um vítt svið stjórnunar.
Hann er án efa einn fremsti hugsuður á sviði stjórnunarvísinda í dag.
Nýjasta bók hans er What to ask the person in the mirror og hefur hún
fengið afbragðsgóða dóma sem leiðarvísir fyrir leiðtoga sem vilja með
einföldum hætti auka árangur sinn og fyrirtækja sinna.Róbert S. Kaplan