Frjáls verslun - 01.08.2011, Side 30
30 FRJÁLS VERSLUN 8.- 9. TBL. 2011
Frjáls verslun hefur fengið þekkta ein stakl inga til liðs við sig
til að segja í mjög stuttu máli álit sitt á ýmsu tengdu við
skiptum og efnahagslífi í hverju tölu blaði.
UmsjÓn: svava jÓnsdÓTTir
ERLENDI FORSTJÓRINN
Loftur Ólafsson,
sérfræðingur hjá Íslandssjóðum:
Fiorina, Wayman, Hurd,
Lesjak, Apotheker,
Whitman …
ÁlitSgjafar
frjÁlSrar verSlunar Aðgreining vöru -merk isins mikilvæg
Ásmundur Helgason segir að í markaðssetningu sé mikilvægt að koma til skila aðgreiningu vörumerkisins – vörunnar, þjónustunnar eða jafnvel fyrirtækisins – frá keppinautnum
ogbendirhannáaðfyrirtækihafimargarleiðirtilaðaðgreinasig
frá þeim.
„Það er hægt að nota liti og ýmiss konar tákn, það er hægt að
nota eiginleika vörunnar – svo sem ef hún endist betur eða er
ódýrari en önnur vara – og það má nota afhendingarmáta sem
aðgreiningu. Sum fyrirtæki nota starfsfólk til að aðgreina sig frá
keppinautum,önnurnotadreifileiðirogímyndinogþjónustaneru
enn aðrar leiðir.
Lykilatriðið er að aðgreiningin skapi sérstöðu. Hún þarf að vera
trúverðug, framkvæmanleg og það verður að vera hægt að koma
aðgreiningunni til skila til markaðarins; það verður að vera hægt að
segja frá henni.“
Ásmundur segir að þegar mælt er hvernig gangi sé ekki nóg að
mæla markaðshlutdeild heldur líka hvernig fyrirtækinu gangi að
ná til huga og hjarta neytenda. „Það þarf að mæla hversu ofarlega
fyrirtækið er í huga neytenda og hversu hjartfólgið það er þeim, ef
það má orða það þannig.“
AUGLÝSINGAR
Ásmundur Helgason, markaðsfræð-
ingur hjá Dynamo:
Ragnar Árnason segir að fjárlagafrumvarpið sem lagt hefur verið fram sýni að ríkisstjórnin sé enn við sama heygarðshornið í efnahagsmálum. „Hún hyggst ekki breyta stefnu sinni og
enn á að freista þess að minnka hallann á rekstri ríkissjóðs með niður
skurði og skattahækkunum. Þær eru að vísu í nokkrum dularklæðum
og fjármálaráðherra hreykir sér af því að ekki sé um almennar
skatta hækkanir að ræða í fyrsta skipti á fjármálaráðherraferli hans.
Skattahækkanirnar felast í laumulegum hækkunum hér og þar og
samanlagt eru þær hins vegar upp á marga milljarða króna.
Niðurskurðurinnerennaðmestuleytiflaturmeðþeirribreytinguþó
að helst er höggvið í þá útgjaldaliði þar sem hin pólitíska fyrirstaða er
talin minnst en þjóðhagsleg hagkvæmni látin lönd og leið.“
Ragnarsegiraðverðiþettafjárlagafrumvarpaðlögummegiganga
að því vísu að kreppan verði framlengd um að minnsta kosti ár.
„Hagvöxtur verður að vísu sennilega einhver á þessu og næsta ári en
hann verður of lítill til að þjóðin komist hratt og vel upp úr kreppunni.
Þetta fjárlagafrumvarp verður því til að festa landið enn frekar í slöku
meðallagi þjóðartekna á mann í hópi Evrópuríkja.“
EFNAHAGSMÁL
Ragnar Árnason, prófessor í hagfræði
við Háskóla Íslands:
Afleiðingar
fjármálafrumvarpsins
Allt frá því að bandaríska fyrirtækið Hewlett Packard var skráð á hlutabréfamarkað árið 1957 var „HPhátturinn“ (HPWay)mikilvægtleiðarljósístarfseminni.Stefnuyfir
lýsingin sem var samin af stofnendum fyrirtækisins, þeim William
Hewlett og David Packard, innihélt markmið sem þóttu óvenju
legáþeimtíma.Bragurþarsemvarlögðáherslaátraust,
heilindi, árangur, liðsvinnu, frumkvæði og þróun var ríkjandi hjá
fyrirtækinu. Þegar HP og Compaq runnu saman fyrir tæpum
áratug heyrðust raddir um að „HPhátturinn“ yrði ekki samur
og dagar hans væru jafnvel taldir. Hvað sem því líður þá hefur
a.m.k. einn háttur fyrirtækisins vakið athygli. Sjötti forstjórinn
tók til starfa hjá fyrirtækinu á síðastliðnum áratug sem ef til vill
má bæði telja til afreka og endema. Það er Meg Whitman, sem
gerðigarðinnfræganhjáeBay.Húnvarnánastmeðfrábyrjun
eBayævintýrisins,starfsmennfyrirtækisinsvoru30talsinsþegar
húnréðsttilþessárið1998envoru15.000áðurentíðhennar
lauk. Og hún hefur reynslu af því að taka því súra með því sæta
því síðasta verkefni hennar var að bjóða sig fram til ríkisstjóra í
Kaliforníu þar sem hún laut í lægra haldi. Eins og forveri hennar
er Whitman útherji, þ.e. hefur ekki starfað hjá HP áður. Joseph L.
Bower,prófessorviðHarvard,teluraðalmenntséfarsællafyrir
fyrirtæki að leita innanbúðar að nýjum forstjóra. Whitman, sem er
fyrrverandi nemandi við skólann, er í lófa lagið að sýna að ekki
sé allt á sömu bókina lært.“