Frjáls verslun - 01.08.2011, Qupperneq 42
42 FRJÁLS VERSLUN 8.- 9. TBL. 2011
varðar. Þá var ákveðið að stefna að
mönnuðum geimferðum til Mars
með því að fara fyrst til tunglsins.
Þannig að frá því að vera að horfa
á ómannaðar Marsferðir fór ég í að
stýra verkefni sem í tóku þátt hátt
á fimmta tug manna þar sem verið
var að þróa nýja tækni fyrir mann
aðar geimferðir framtíðarinnar þar
sem sjálfvirkni og gervigreind væru
hluti af pakkanum. Þetta var allt frá
því að hjálpa geimförum að fara í
gegnum tékklistana sína yfir í það
að stýra sjálfvirkum verksmiðjum á
tunglinu eða Mars þar sem fram
leitt yrði súrefni, eldsneyti og fleira
fyrir geimfara og þau tæki sem
yrðu þar. Þetta var gríðarlega stórt
og spenn andi verkefni og út úr því
komu reyndar líka smærri verkefni
eins og að við fórum að vinna með
alþjóðleg u geimstöðinni og enduðum
á því að vinna að þróun hugbúnaðar
sem hjálpar í dag stjórnendum al
þjóð legu geimstöðvarinnar að stýra
sólar orkusöfnurum. Aftur fengum
við gervigreindina til að hjálpa fólki
að taka ákvarðanir til að dýrum
tækj um yrði ekki stefnt í voða. Ég
fékk þannig að taka þátt í verkefnum
í Houston í Texas þar sem mönn
uð um geimferðum er stýrt og það
var gríðarlega áhugaverð viðbót við
þessa reynslu.“
Líf á öðrum hnöttum
Ari segist hafa lesið sér mikið til um
alheiminn og lengi haft áhuga á þess
um málum. „Þegar maður vinnur hjá
NASA sér maður hvernig þessarar
þekkingar, sem við höfum um sól
kerfið, er aflað, hvaða spurningum
er ósvarað og hvernig fólk vinn
ur við að reyna að svara þessum
spurningum. Þessar spurningar eru
svo spennandi. Ein snýst um það
hvort finna megi líf annars staðar
en það er eitt af því sem könnunin
á Mars snýst um. Það er öruggt út
frá þeim gögnum sem hefur verið
safnað að þar hafi runnið vatn áður
fyrr fyrir utan að það er töluvert
mikið af frosnu vatni ennþá bundið
í jarðveginum. Það er líklegt að þar
hafi verið aðstæður til þess að líf hafi
getað þróast. Mér finnst líklegt að líf
þar hafi verið einfrumungar og mjög
litlar lífverur. Líf á jörðinni byggist
á prótínsamböndum og erfðaefn
um eins og RNA og DNA; það er
spurning hvort líf annars staðar sé
allt öðruvísi. Ef það er næstum því
eins er það þá af því að það þróaðist
á sama stað og dreifðist? Eða er það
af því að líf þróast alltaf þannig?
Ég held að það sé fullvíst að það sé
fullt af lífi þegar horft er á alheiminn
í heild sinni. Má nefna að í dag er
vitað um hundruð pláneta fyrir utan
okkar sólkerfi og líklega hlaupa þær
á milljónum bara í vetrarbrautinni
okkar. “
Fljúgandi furðuhlutir
Alls konar pælingar tengjast öðrum
hnöttum sem og fljúgandi furðuhlut
um. Hvað segir fyrrverandi starfs
maður NASA um slíkt? „Það er mjög
skýrt hvernig vísindaheimurinn
nálgast almennt svona spurningar.
Það eru í raun og veru ekki til nein
haldgóð gögn ennþá sem segja til
um tilvist þeirra en það er auðvitað
engin leið til að afsanna tilvist þeirra.
Sú regla er yfirleitt notuð að á meðan
ekki eru til gögn og staðreyndir sem
hægt er að byggja á er litið svo á að
þetta sé ekki viðfangsefni sem hægt
sé að skoða frekar. Ég held sjálfur að
vitsmunaverur hafi ekki heimsótt
okkur. Maður kemst að ýmsu þegar
maður vinnur hjá NASA og má
nefna að til eru tæki sem geta numið
hluti í geimnum sem eru á stærð við
handbolta. Stór fljúgandi furðuhlut
ur fullur af grænum verum færi
ekkert fram hjá því.“
Hvað með akurhringi? „Mig
grunar að það sé prakkaraskapur.“
Hvað varðar kenninguna um að
Bandaríkjamenn hafi ekki gengið
á tunglinu á sínum tíma segir Ari:
„Magnið af hlutum sem eru til hjá
NASA sýnir að menn hafi farið til
tunglsins. Þegar við vorum að vinna
að þessu nýja verkefni, að farnar
yrðu mannaðar ferðir til Mars og að
stoppað yrði á tunglinu á leiðinni
og búin til bækistöð þar, var byggt
á reynslu. Ég get nefnt hluti eins og
hvernig skrúfgangur í geimbúningi
skemmist af sandinum á tunglinu.“
Hvað varðar fánann sem blakti
segir Ari: „Það er bara tregðulögmál
Newtons sem gerði það að verkum
að hann blakti.“
Ari viðurkennir að sig hafi langað
út í geiminn. „Ég komst snemma að
því að þetta var útilokað fyrir mig
þar sem ég er of hár. Miðað er við að
geimfarar séu í mesta lagi 1,80 m og
ég er vel yfir það. Ég ákvað að taka
þátt í þessu á annan hátt. Ég leiddi
bæði þróun tækninnar og síðan gerð
hugbúnaðarins sem er í raun að
breyta heiminum aðeins því þessi
þróun hefur haft áhrif á hvernig
NASA stýrir sínum geimferðum til
frambúðar. Svo var ég í þeim hópi
nokkur hundruð einstaklinga sem
var kjarninn á bak við ferðina til
Mars; það gefur manni líka þá til
finningu að maður hafi lagt eitthvað
af mörkum.“
„Líf á jörðinni byggist á pró tín-
samböndum og erfða efn um eins
og RNA og DNA; það er spurn-
ing hvort líf annars staðar sé
allt öðruvísi.“
Ari Kristinn Jónsson, rektor HR, vann
í áratug hjá NASA; bandarísku
geim ferðastofnuninni.
ENN MEIRI m.mbl.is
- V I L T U V I T A M E I R A ?
Fleiri efnisflokkar, vefsjónvarp mbl, Smartland og margt fleira
er meðal nýjunga sem þú getur nálgast í símanum þínum.
Nú tekurðu vinsælasta vef landsins með þér hvert sem þú
ferð og ert alltaf með nýjustu fréttirnar í símanum.
Fáðu fréttirnar þegar þú vilt.
www.m.mbl.is
m.mbl.is var valinn farsímavefur ársins fyrir árið 2010.
NÚ ÆTLUM VIÐ AÐ GERA ENN BETUR 2011.
ENN EIRI . bl.is
- V I L T U V I T A M E I R A ?
Fleiri efnisflokkar, vefsjónvarp mbl, Smartland og argt fleira
er meðal nýjunga sem þú getur nálgast í símanum þínum.
Nú tekurðu vinsælasta vef landsins með þér hvert sem þú
ferð og ert alltaf með nýjustu fréttirnar í símanum.
Fáðu fréttirnar þegar þú vilt.
www.m.mbl.is
m.mbl.is var valinn farsímavefur ársins fyrir árið 2010.
NÚ ÆTLUM VIÐ AÐ GERA ENN BETUR 2011.