Frjáls verslun - 01.08.2011, Page 69
FRJÁLS VERSLUN 8.- 9. TBL. 2011 69
Skuldavandinn óleystur
Katrín S. Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Hagvangs:
Sóknarfæri víða
1. Hver verða forgangs verk
efni fyrirtækis þíns næstu
mánuði?
Gæta aðhalds í rekstri og
tryggja áframhaldandi upp
bygg ingu þjónustuþátta til
ávinn ings bæði fyrir fyrirtækið
og viðskiptavini þess.
2. Hvernig metur þú endur
reisn atvinnulífsins eftir
hrun?
Atvinnulífið hefur ekki notið
forgangs hjá stjórnvöldum,
uppbyggingin hefur gengið
allt of hægt. Of mikið er talað
og lítið framkvæmt. Óvissan,
röng forgangsröðun, ósætti
og ákvarðanaleysi stjórnvalda
hefur verið óviðunandi.
3. Hversu mikið vantar upp á
að skuldavandi fyrirtækja sé
leystur?
Ef miðað er við eftirspurn
eftir mannafla er ekki að sjá
að fyrirtækin séu komin út úr
vand anum. En heldur heyrist
mér að þetta þokist í rétta átt.
4. Hvaða árangur ert þú
ánægðastur með hjá fyrir
tæki þínu á þessu ári?
Viðskiptavinir okkar hafa
lagt aukna áherslu á notkun
prófa við ráðningar og aukið
þar með réttmæti ráðninga
sinna að okkar mati. Traustir
viðskiptavinir hafa átt þátt
í okkar velgengi og það er
ómetanlegt.
5. Finnst þér gæta tortryggni
í garð atvinnulífs og stór
fyrir tækja eftir hrunið?
Mér finnst kominn tími til að
horfa fram á veginn. Öll höfum
við lært okkar lexíu sem var
flestum dýrkeypt og það hefur
tekið sinn tíma að byggja upp
traust á ný.
6. Hversu skaðleg eru gjald
eyrishöftin að þínu mati?
Þau eru jafnskaðleg og þau
kunna að vera nauðsynleg.
Nauðsynlegt er að losa sem
fyrst um þau til að koma eðli
legum fjárfestingum í fram
kvæmd og öðlast tiltrú annarra
þjóða á efnahagsbata hér á
landi.
7. Hvaða styrkleika sérð þú
í íslensku viðskiptalífi um
þessar mundir?
Ég sé ótal tækifæri felast í þeim
verðmætum sem við höfum
úr að spila, s.s. í sjávarútvegi,
ferðaþjónustu, orku, nýsköpun
o.fl. Sóknarfærin eru víða og
samtakamátt og djarfa hugs un
þarf til að efla íslenskt við
skipta líf á ný.
„Atvinnulífið hefur ekki notið for
gangs hjá stjórnvöldum, upp bygg
ingin hefur gengið allt of hægt. Of
mikið er talað og lítið fram kvæmt.“
Katrín S. Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Hagvangs..