Frjáls verslun - 01.08.2011, Page 81
FRJÁLS VERSLUN 8.- 9. TBL. 2011 81
verðum að losna við höftin
Þórður Sverrisson, forstjóri Nýherja:
gjaldeyrishöftin eins og fíkniefni
1. Hver verða forgangs verk
efni fyrirtækis þíns næstu
mánuði?
Forgangsverkefni Nýherja
er að halda áfram að styrkja
markaðsstöðuna og bæta
afkomu í rekstri inn lendrar
starfsemi. Einnig að ná betri
tökum á rekstri dóttur fé
l aga í Danmörku, því fyrir
tækjarekstur þar hefur verið
erfiður vegna slaks efnahags
ástands þar í landi.
2. Hvernig metur þú endur
reisn atvinnulífsins eftir
hrun?
Flest fyrirtæki eru yfirskuldsett
og því með lítið svigrúm til
þeirra athafna. Helst hefur tekist
að endurreisa fyrirtæki sem
hlut hafar misstu og er nú í eigu
bankanna eða annarra kröfuhafa
og keppa þessi fyrirtæki nú
skuldalétt á markaðnum. Það er
því langt í land að atvinnulífið á
Íslandi verði aftur eðlilegt.
3. Hversu mikið vantar upp á
að skuldavandi fyrirtækja sé
leystur?
Skuldsetning flestra venjulegra
fyrirtækja er allt of mikil og
fyrir sjáanlegt að þeirra vandi
verði áfram mikill.
4. Hvaða árangur ert þú
ánægðastur með hjá fyrir
tæki þínu á þessu ári?
Ánægðastur er ég með minn
öfluga hóp starfsmanna, sem
stöð ugt nær að auka sölu og sókn
á markaðnum og veita frábæra
þjónustu, þrátt fyrir fækk un
starf s manna og vanda á fyrir
tækja markaði.
5. Finnst þér gæta tortryggni
í garð atvinnulífs og stór
fyrir tækja eftir hrunið?
Fólkið í landinu myndar
atv innu lífið og fyrirtækin og því
ástæð u laust að óttast tortryggni
fólk sins við atvinnulífið. Sum
stærri fyrirtæki hafa hins vegar
ekki gætt þess að vera „fyrir
myndarborgari“ í sam félag inu
og því gætir tortryggni í garð
forystu þessara fyrirtækja.
6. Hversu skaðleg eru gjald
eyrishöftin að þínu mati?
Gjaldeyrishöftin eru afskaplega
notaleg og valda okkur vellíðan
í bili, líkt og þegar menn eru í
vímuefnaneyslu, en við munum
smám saman sjá alvarlegar af
leiðingar þeirra, líkt og fíkill inn
upplifir með tímanum.
7. Hvaða styrkleika sérð þú
í íslensku viðskiptalífi um
þessar mundir?
Styrkur viðskiptalífsins er í út
flutn ingsgreinunum og þar með
talinn ferðaiðnaður. Því er afar
mikilvægt að út flutn ings fyr ir
tæk in fái að starfa ótrufluð og
vaxa og styrkjast og njóti til þess
stuðnings opin berra aðila.
Þórður Sverrisson, forstjóri Nýherja.
„Fólkið í landinu myndar atvinnu-
lífið og fyrirtækin – og því er
ástæðu laust að óttast tortryggni
fólks ins við atvinnulífið.“