Frjáls verslun - 01.08.2011, Page 163
FRJÁLS VERSLUN 8.- 9. TBL. 2011 163
myndin á fætur annarri sem hann leikstýrir
komið frá honum. Nýjasta kvikmynd hans er
J. Edgar þar sem hann kafar ofan í líf hins
umdeilda forstjóra FBI, J. Edgars Hoovers,
sem átti stóran þátt í að Federal Bureau
var stofnað 1924. Hann var fyrsti stjóri FBI
þegar sú stofnun var sett á laggirnar árið
1935 og stjórnaði henni með harðri hendi
til ársins 1972. Þótt Eastwood fari yfir allt líf
Hoovers einblínir hann ekki á hið opinbera
líf heldur tekur einnig einkalífið fyrir. En líf
Hoovers utan vinnunnar komst ekki upp á
yfirborðið fyrr en hann var látinn. Þar vakti
að sjálfsögðu mesta athygli að hann var
hommi og bjó alla tíð í skápnum hvað það
varðar. Einkaþjónn Hoovers, Clyde Tolson,
var einnig sambýlismaður hans til fjölda
ára. Einnig kemur mikið við sögu einkaritari
Hoovers, Helen Gandy, sem á víst margoft
að hafa bjargað honum fyrir horn þegar
sögusagnir fóru að ganga um að hann væri
hommi og klæðskiptingur.
Í upphafi myndarinnar er fjallað um
hvernig Hoover komst til valda, en hann
stóð sig mjög vel í að uppræta glæpaklíkur
þegar gangsterar léku lausum hala með
tilheyrandi manndrápum á þriðja áratugnum
í kjölfar vínbannsins. Meðal annarra atburða
sem gerð eru skil í myndinni er hatursfullt
samband hans við Robert Kennedy, þegar
Kennedy var dómsmálaráðherra og reyndi
víst árangurslaust að bola Hoover úr
embætti.
Leonardo DiCaprio leikur Hoover og er
þetta í fyrsta sinn sem hann leikur undir
stjórn Clints Eastwoods, Armin Hammer,
sem vakti athygli í hlutverki Winklevoss-
tvíburanna í Social Network, leikur Clyde
Tolson og Naomi Watts leikur ritarann Helen
Gandy. Aðrir leikarar eru Josh Lucas, sem
leikur Charles Lindbergh, en ránið á syni
hans átti þátt í að FBI var stofnað, Jeffrey
Donovan er í hlutverki Roberts Kennedys
og Judy Dench leikur móður Hoovers.
Handritið skrifaði Dustin Lance Black, sem
fékk óskarsverðlaunin 2008 fyrir handrit sitt
að Milk. Eastwood er sem fyrr frekar fáorður
þegar hann er spurður um mynd sína en
lét hafa eftir sér að J. Edgar væri um mann
sem að mörgu leyti hefði verið valdamesti
maður Bandaríkjanna þegar þau stóðu
undir nafni sem valdamesta þjóð heims.
Hættuleg aðferð
David Cronenberg hefur aldrei farið troðnar
slóðir og á að baki margar frábærar kvik-
myndir sem standa á eigin fótum. Í nýjustu
kvikmynd sinni, A Dangerous Method,
kafar hann ofan í líf tveggja af frægustu
sálfræðingum tuttugustu aldarinnar, Sig-
munds Freuds og Carls Jungs, en þeir voru
nánir samstarfsaðilar í byrjun aldarinnar.
Upp úr vinskapnum slitnaði og er opinbera
skýringin mismunandi túlkun þeirra á kenn-
ingum en aðrir segja að sökin hafi verið hjá
hinni ungu og fallegu Sabine Spielrein, sem
báðir heilluðust af, og að sjálfsögðu heldur
Cronenberg sig að mestu við þá kenningu.
Handritið skrifar eitt þekktasta leikritaskáld
Breta, Christopher Hampton, sem á að baki
mörg góð kvikmyndahandrit.
Það var Carl Jung sem fyrst tók Sabine
Spielrein, sem var rússnesk stúlka með
geðklofa, undir sinn verndarvæng og gerði
síðar að ástkonu sinni. Freud kynntist henni
einnig og sagan segir að hann hafi einnig
orðið ástfanginn af henni. Lítið var vitað um
Spielrein fyrr en 1977 þegar dagbók hennar
fannst og bréf sem Jung og Sigmund Freud
höfðu sent henni. Þess má geta að það
voru ekki síður gáfur Spielrein sem heilluðu
sálfræðingana. Hún varð síðar brautryðjandi
í barnageðlækningum og var myrt af þýsku
setuliði í Rússlandi árið 1942.
Í upphafi vildi Cronenberg fá þýska leik
arann Christoph Waltz til að leika Sigmund
Freud, en þegar bindandi samni ngur Waltz
um að leika í annarri kvikmynd kom í veg fyrir
að hann gæti tekið að sér hlutverkið leitaði
Cronenberg á náðir uppáhaldsleikarans
síns, Viggos Mortens ens, sem stóð sig
með glæsibrag í History of Violence og
Eastern Promises, og er þetta þriðja
kvikmyndin í röð sem Cronenberg leik -
stýrir Mortensen. Í hlutverki Carls Jungs
er Michael Fassbinder, sem dvaldi hér á
landi um skeið í sumar við tökur á Prome-
theus, og í hlutverki Sabine Spielrein er
Keira Knightley. Samkvæmt þeim við-
tök um sem leikur þeirra hefur fengið á
kvikmyndahátíðum er þeim öllum spáð til-
nefningu til óskarsverðlauna. Það veltur þó
dálítið á hvernig myndinni verður tekið, en
kvikmyndir Davids Cronenbergs hafa ekki
allar átt upp á pallborðið hjá hinum almenna
kvikmyndahúsgesti.
Mín vika með Marilyn
Simon Curtis er sjálfsagt þekktastur fyrir
að hafa framleitt margar af vinsælustu
sjónvarpsseríum Breta síðustu árin, en
hefur einnig leikstýrt og hann stendur
vaktina á bak við kvikmyndavélina í
My Week with Marilyn, sem byggð er á
endurminningum Colins Clarks, sem var
aðstoðarmaður breska stórleikarans Laur-
ence Oliviers. Bók hans, sem ber sama
heiti og myndin, segir frá upptökum á kvik-
myndinni The Prince and The Showgirl
frá árinu 1957. Þar léku þessir frægu en
ólíku leikarar aðalhlutverkin og kom víst
ekki vel saman, gekk á ýmsu meðan á
tökum stóð. Meginþema myndarinnar er ein
vika, þegar þáverandi eiginmaður Marilyn,
leikritaskáldið Arthur Miller, þurfti að bregða
sér til Parísar og Colin Clark fékk það
hlutverk að sjá um gyðjuna meðan hún var
ekki við tökur á myndinni. Colin er ungur og
óreyndur og er varaður við henni. Honum
er sagt að Monroe eigi það til að daðra
opinskátt og karlmenn falli fljótt fyrir henni.
Þrátt fyrir aðvaranir fellur Colin fyrir Marilyn,
ekki síst vegna þess hversu opin hún er
og hrifnæm. Þess á milli fylgjumst við með
tökum á myndinni þar sem m.a. þarf að
endurtaka mörgum sinnum atriði vegna
mistaka Monroe, stórleikaranum Olivier til
mikils ama.
Hlutverk Colins Clarks er í höndum ungs
og óþekkts leikara, Eddies Redmaynes,
en augun beinast ekki að honum heldur
Monroe og Olivier. Hin vaxandi leikkona
Michelle Williams fær það erfiða hlutverk
að túlka Marilyn Monroe og af myndum að
dæma virðist hún ná útlitinu nokkuð vel,
svo spurningin er um túlkun á persónunni.
Margar leikkonur hafa brugðið sér í hlutverk
gyðjunnar með misjöfnum árangri. Kenneth
Branagh leikur Laurence Olivier og er
merkilegt hversu líkur hann er honum þegar
búið er að koma honum í gervið. Olivier
hlýtur að vera óskahlutverk Branaghs,
sem margoft hefur lýst aðdáun sinni á
leik aranum og brugðið sér í fótspor hans.
Með al annarra leikara eru Judy Dench, sem
í J. Edgar leikur móður Hoovers en í My
Week with Marilyn leikur hún eina þekktustu
sviðsleikkonu Breta á síðustu öld, Sybil
Thorndyke, og Julia Ormond, sem leikur
Vivien Leigh.
kvikmyndir
„David Cronenberg hefur
aldrei farið troðnar slóðir og
á að baki margar frábærar
kvik myndir sem standa á
eigin fótum.“
A Dangerous Method. Viggo Mortensen, sem leikur Sigmund Freud, er að leika í sinni þriðju kvikmynd í
leikstjórn Davids Cronenbergs.