Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.04.2015, Page 7

Læknablaðið - 01.04.2015, Page 7
LÆKNAblaðið 2015/101 191 R I T S T J Ó R N A R G R E I N Starf lækna hefur löngum verið þríþætt: klínísk vinna, menntun heilbrigðisstétta og vísindastörf. Áhersla lækna á þessum svið- um hefur skiljanlega verið breytileg, sumir velja að helga sig mest klínískri vinnu en aðrir leggja meiri áherslu á kennslu eða vísindastörf. Það er enginn vafi á því að þessir þrír þættir læknisstarfsins fara vel saman þar sem þeir auka hæfni lækna til krítískrar hugsunar og að meta hlutlægt eigin störf og annarra. Svíar hafa lengi gert sér grein fyrir því að fjármagn sem varið er til vísindastarfa skilar sér margfalt til baka til þjóðarbúsins. Í Svíþjóð eru háskólarnir reknir af ríkinu en sýslurnar (landsþingin) reka sjúkra- húsin og aðra heilbrigðisþjónustu. Það má því segja að ríkið (menntamálaráðuneytið) beri ábyrgð á að fjármagna menntun heil- brigðisstétta og vísindastörf en sýslurnar bera ábyrgð á að fjármagna heilbrigðis- þjónustuna. Þrátt fyrir þetta ver landsþing Stokkhólms sömu upphæð og ríkið árlega, um það bil 750 milljónum sænskra króna, til rannsóknarstarfa. Heilbrigðiskerfið þar hefur því yfir að ráða um það bil 1,5 millj- arði sænskra króna til menntunar og vís- inda. Þetta eru ríflega 3% af því fjármagni sem landsþing Stokkhólms ver til heil- brigðismála. Landsþingið, háskólinn og sjúkrahúsin hafa með sér náið samstarf um það hvernig þessum fjármunum er varið. Mestur hluti þeirra fer í fasta innviði sem eru nauðsynlegir til reksturs vísindastarfa, svo sem kaup á tækjum, leigu á húsnæði og laun starfsfólks, bæði kennara, vísinda- manna og annarra starfsmanna. Skipting fjármagnsins fer eftir fyrirfram ákveðnum reglum sem byggjast að miklu leyti á því hvaða árangri viðkomandi starfsemi hefur skilað síðustu þrjú ár. Um það bil 90% af þessu fjármagni fer til Karolinska-háskóla- sjúkrahússins, en þó í samkeppni við aðrar heilbrigðisstofnanir í Stokkhólmi. Þetta er ekki óeðlilegt þar sem stærsti hluti vísinda- starfsins hefur þróast á háskólasjúkrahús- inu í samvinnu við háskólann. Karolinska fær því til umráða tæplega 10% af sinni heildarveltu til þess að verja til menntunar og vísindastarfa í náinni samvinnu við há- skólann. Auk þess fjármagns, sem kemur frá hinu opinbera, sækja einstakir vísinda- menn og hópar þeirra til annarra sjóða og stofnana sem veita styrk til vísindastarfs. Í Stokkhólmi nemur þetta fjármagn ríflega þeirri upphæð sem veitt er frá hinu opin- bera. Íslenskir læknar sækja sína sérmenntun til annarra landa og komast þá í kynni við aðstæður sem gera þeim kleift að sinna vísindastörfum jafnhliða klínísku námi eða starfi. Sífellt fleiri læknar ljúka doktorsnámi meðan á sérnámi stendur og margir halda áfram að reka sjálfstætt vísindastarf í hópi annarra vísindamanna að námi loknu. Þetta gerir það að verkum að íslenskir læknar ílendast erlendis eftir sérnám og líkurnar minnka á því að þeir snúi heim. Stjórnvöld hafa nýlega gert samkomulag við Læknafélag Íslands, þar sem stefnt er að því að færa fjármagn til heilbrigðiskerfisins til jafns við það sem gerist í nágrannalöndunum. Læknafélagið hefur lagt kapp á að hækka laun íslenskra lækna til jafns við það sem gerist á Norður- löndunum og það eykur eflaust líkurnar á því að fleiri læknar snúi heim. En læknar sem eru skólaðir á háskólasjúkrahúsum erlendis horfa ekki síður til starfsaðstöðu og möguleika á því að stunda vísindastörf. Ef við eigum að tryggja framtíðarmönnun lækna í heilbrigðiskerfinu er viturlegt að verja hluta þess fjármagns sem í fram- tíðinni mun fara til heilbrigðiskerfisins og menntunar heilbrigðisstétta til að byggja upp innviði sem gera læknum kleift að sinna vísindarannsóknum hér á landi. Það mun gera stúdentum í auknum mæli kleift að hefja rannsóknarvinnu strax í náminu, sem frjóvgar ekki bara námið heldur eykur líkurnar á því að heilbrigðiskerfið njóti starfskrafta þeirra lengur áður en haldið er til sérnáms og jafnframt að þeir snúi heim að sérnámi loknu. Mörg verkefni bíða úrlausnar í íslensku heilbrigðiskerfi og forgangsröðunar er þörf. Við þurfum ekki að setja markið við þá sem gera best í þessum efnum heldur byrja í smáum stíl og byggja markvisst upp þá innviði sem þörf er á. Gott starf hefur þrátt fyrir allt verið unnið á síðustu árum eins og velheppnaðir Læknadagar gáfu ný- lega vísbendingu um. En betur má ef duga skal. Ef rými er nú að skapast í íslensku efnahagslífi er mikilvægt að stjórnvöld geri sér grein fyrir því að fjármagn sem varið er til vísindastarfa bætir heilbrigðiskerfið og skilar sér, þegar til lengri tíma er litið, margfalt aftur til þjóðarbúsins. Við verðum einnig að átta okkur á því að möguleikar lækna og heilbrigðisstétta til að leggja stund á vísindavinnu verður æ mikilvæg- ari þáttur í því að fá hæft fólk til starfa. Research infrastructure increasingly important to recruit competence to healthcare Birgir jakobsson MD, PhD Directorate of Health Iceland Vísindin mikilvæg í samkeppni um hæft starfsfólk til heilbrigðiskerfisins Birgir Jakobsson barnalæknir landlæknir birgir@landlaeknir.is Relvar® Ellipta® innöndunarduft, afmældir skammtar. Hver stök innöndun gefur skammt (skammt sem fer í gegnum munnstykkið) sem er 22 míkróg af vílanteróli (sem trífenatat) og 92 eða 184 míkróg af flútíkasónfúróati. Þetta samsvarar afmældum skammti sem er 25 míkróg af vílanteróli (sem trífenatat) og 100 eða 200 míkróg af flútíkasónfúróati. Hjálparefni með þekkta verkun: Hver skammtur inniheldur u.þ.b. 25 mg af laktósa (sem einhýdrat). Ábendingar: Astmi: Relvar Ellipta er ætlað til notkunar við reglulega astmameðferð hjá fullorðnum og unglingum 12 ára og eldri þegar notkun samsetts lyfs (langverkandi beta2-örva og barkstera til innöndunar) á við: Þegar ekki næst viðunandi stjórn á sjúkdómnum með barksterum til innöndunar og skjótvirkum beta2-örvum til innöndunar „eftir þörfum“. Langvinn lungnateppa (aðeins Relvar Ellipta 92/22 míkróg): Relvar Ellipta er ætlað til meðferðar á einkennum langvinnrar lungnateppu hjá fullorðnum með FEV1 < 70% af áætluðu eðlilegu gildi (eftir gjöf berkjuvíkkandi lyfs) og sögu um endurtekna versnun, þrátt fyrir reglulega meðferð með berkjuvíkkandi lyfjum. Skammtar og lyfjagjöf: Astmi: Fullorðnir og unglingar 12 ára og eldri: Ein innöndun af Relvar Ellipta 92/22 míkróg einu sinni á dag. Sjúklingar finna yfirleitt fyrir bættri lungnastarfsemi innan 15 mínútna frá innöndun Relvar Ellipta. Hins vegar skal upplýsa sjúklinginn um að regluleg dagleg notkun sé nauðsynleg til að viðhalda stjórn á einkennum astma og að notkun skuli halda áfram, jafnvel þó einkenni hverfi. Ef einkenni koma fram á tímabilinu á milli skammta, skal nota skjótvirkan beta2-örva til að létta strax á einkennum. Íhuga skal 92/22 míkrógramma upphafsskammt af Relvar Ellipta hjá fullorðnum og unglingum 12 ára og eldri sem þarfnast lítils til meðalstórs skammts af barksterum til innöndunar ásamt langverkandi beta2-örva. Ef ekki næst fullnægjandi stjórn á sjúkdómnum með Relvar Ellipta 92/22 míkróg, má auka skammtinn upp í 184/22 míkróg, sem getur gefið betri árangur við astmastjórnun. Heilbrigðisstarfsmaður skal endurmeta sjúklinga reglulega þannig að þeir haldi áfram að fá kjörstyrkleika af flútíkasónfúróati/vílanteróli og að honum sé aðeins breytt samkvæmt læknisráði. Skammtinn skal aðlaga þannig að alltaf sé notaður minnsti skammtur sem nær virkri stjórn á einkennum. Íhuga skal notkun Relvar Ellipta 184/22 míkróg hjá fullorðnum og unglingum 12 ára og eldri sem þurfa að fá hærri skammta af barksterum til innöndunar ásamt langverkandi beta2-örva. Langvinn lungnateppa: Fullorðnir 18 ára og eldri: Ein innöndun af Relvar Ellipta 92/22 míkróg einu sinni á dag. Relvar Ellipta 184/22 míkróg er ekki ætlað til notkunar hjá sjúklingum með langvinna lungnateppu. Enginn viðbótarávinningur er af notkun 184/22 míkrógramma skammts samanborið við 92/22 míkróg skammtinn og hætta á aukaverkunum svo sem lungnabólgu og altækum aukaverkunum tengdum barksterum er hugsanlega aukin. Það skal gefa á sama tíma dag hvern. Frábendingar: Ofnæmi fyrir virku efnunum eða einhverju hjálparefnanna. Aukaverkanir: Mjög algengar: Höfuðverkur og nefkoksbólga. Algengar: Lungnabólga, sýking ofarlega í öndunarvegi, berkjubólga, inflúensa, hvítsveppasýking í munni og koki, verkur í munnkoki, skútabólga, kokbólga, nefslímubólga, hósti, raddtruflun,kviðverkir, liðverkur, bakverkur, hiti. ATC R03AK10. Markaðsleyfishafi: Glaxo Group Limited, 980 Great West Road, Brentford, Middlesex TW8 9GS. Bretland. Fulltrúi markaðsleyfishafa: GlaxoSmithKline ehf. Þverholti 14, 105 Reykjavík, Ísland, Sími 530 3700. Dagsetning endurskoðunar textans: 22. maí 2014. Upplýsingar um aukaverkanir, milliverkanir, varnaðarorð og önnur mikilvæg atriði má nálgast í sérlyfjaskrá – www.serlyfjaskra.is Pakkningar og verð (Mars 2015) Relvar Ellipta 92 mcg/22 mcg, innöndun, 30 skammtar R, G Kr. 9.815 Relvar Ellipta 184 mcg/22 mcg, innöndun, 30 skammtar R, G Kr. 12.260 Aukaverkanir má tilkynna á vef Lyfjastofnunar: www.lyfjastofnun.is/Aukaverkanir/tilkynna eða til GlaxoSmithKline í síma 530 3700. Heimildir: 1. Relvar Samantekt um eiginleika lyfs. www.serlyfjaskra.is. 2. Boscia JA et al. Clin Ther. 2012; 34(8): 1655-66. 3. Svedsater H et al. BMC Pulmonary Medicine 2013; 13: 72. flútíkasónfúróat/vílanteról ® ® 24 klst. verkun. Mjög einfalt. * Barksteri og langvirkt berkjuvíkkandi lyf til innöndunar. Fyrsta ICS/LABA-meðferðin sem virkar í 24 klst.1,2 ... skömmtun einu sinni á dag1 ... í einföldu og handhægu innöndunartæki3 Relvar® Ellipta® er ætlað til notkunar við reglulega astmameðferð hjá fullorðnum og unglingum 12 ára og eldri þegar notkun samsetts lyfs á við: þegar ekki næst viðunandi stjórn á sjúkdómnum með barksterum til innöndunar og skjótvirkum beta2-örvum til innöndunar „eftir þörfum“. Relvar® Ellipta® er ætlað til meðferðar á einkennum langvinnrar lungnateppu hjá fullorðnum með FEV1 < 70% af áætluðu eðlilegu gildi (eftir gjöf berkjuvíkkandi lyfs) og sögu um endurtekna versnun, þrátt fyrir reglulega meðferð með berkjuvíkkandi lyfjum. 24 klst AstmiLLT IS /F FT /0 01 7/ 14 a M ar ch 2 01 4 IS_FFT_0017_14a_Relvar_adv_A4_Mars2015.indd 1 23.03.2015 15:16:58

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.