Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.04.2015, Side 13

Læknablaðið - 01.04.2015, Side 13
LÆKNAblaðið 2015/101 197 samanburð. Kí-kvaðrat (chi-square) var notað til að meta hvort hlutfallslegur munur væri á starfsstéttum eða kyni á lyfjainntöku, reykingasögu, fjölskyldusögu kransæðasjúkdóma, ráðlagðri dag- legri hreyfingu og flokkun þátttakenda á holdafari, blóðþrýstingi og blóðbreytum miðað við áður birt alþjóðleg viðmiðunargildi.24 Þátttakendur tóku blóðþrýstings-, blóðfitu- eða blóðsykurslyf voru flokkaðir utan viðmiðunargilda fyrir viðkomandi áhættu- þætti. Tvíbreytudreifigreining (Two-Way ANOVA) með aðlöguðu Bonferroni-leiðréttingarprófi var notuð til að bera saman starfs- stéttir og kyn og til að meta víxlverkun (interaction) á milli þessara breyta. Þegar um víxlverkun var að ræða var gögnunum skipt eftir kyni og einbreytudreifigreining (one-way ANOVA) með aðlöguðu Bonferroni-leiðréttingarprófi notuð til að greina muninn á milli stétta innan kynja. Þegar áhættuþættir efnaskipta-, hjarta- og æða- sjúkdóma í blóði og blóðþrýstingur voru skoðaðir, var leiðrétt fyrir fjölskyldusögu kransæðasjúkdóma vegna mismunandi dreifingar fjölskyldusögunnar á milli starfsstétta og þekktra áhrifa slíkrar sögu og erfða á þessa áhættuþætti og hjarta- og æðasjúkdóma. Cohen ś d (Cd) var notað til að meta áhrifsstærðir (effect size) á mun milli starfsstétta. Pearson-fylgni var notuð til að meta tengslin milli heildarhreyfingar og tíma sem varið var í meðalerfiða hreyfingu. Hlutfylgni (partial correlation), leiðrétt fyrir kyni og fjölskyldusögu kransæðasjúkdóma, var notuð til að kanna tengslin á milli heildar- hreyfingar og tíma sem var varið í meðalerfiða hreyfingu annars vegar og áhættuþátta efnaskipta-, hjarta- og æðasjúkdóma hins vegar. Gögnin eru birt sem meðaltöl og staðalfrávik og tölfræðileg marktækni var sett við p<0,05. Niðurstöður Líkamlegir eiginleikar þátttakenda eru birtir í töflu I. Karlarnir voru aðeins eldri en konurnar (p =0,03) og þeir voru einnig hærri, þyngri, með meira mittismál og meiri fitulausa líkamsþyngd (FFM) (allt p<0,01). Verkafólk var lágvaxnara en skrifstofufólk (p<0,01) og bændur (p =0,02) en þeir síðastnefndu voru með meiri FFM heldur en verkafólk (p<0,01, Cd = 0,9) og skrifstofufólk (p=0,02, Cd = 0,8). Víxlverkun (p<0,01) á milli kyns og starfsstétta var á hlut- falli líkamsfitu. Þar reyndust verkakonur með lægra hlutfall lík- amsfitu heldur en skrifstofukonur og kvenbændur (hvoru tveggja p =0,02, Cd = 0,6), en karlbændur með lægra hlutfall líkamsfitu heldur en verkakarlar (p =0,01, Cd = 0,8) og með tilhneigingu fyrir lægra hlutfalli líkamsfitu heldur en skrifstofukarlar, þó sá munur reyndist ekki tölfræðilega marktækur (p =0,06, Cd = 0,6). Tæplega þriðjungur (31,8%) þátttakenda var í kjörþyngd (BMI<25 kg/m2), 40,9% of þungir (BMI 25-29,9 kg/m2) og 27,3% of feitir (BMI>30 kg/m2) en enginn munur reyndist á kynjum eða starfsstéttum á dreifingunni í BMI-flokka. Einungis 10,1% þátttak- enda reykti og þrátt fyrir að hlutfallið væri ívið hærra hjá bændum (17,1%) var það ekki marktækt. Að sama skapi var hlutfall þeirra sem hætti að reykja (28,3%) svipað á milli starfsstéttanna. Hlutfall bænda með fjölskyldusögu kransæðasjúkdóma (22,0%) var hins vegar nálægt því að vera marktækt lægra (p =0,06) en hjá verka- fólki (44,9%) og skrifstofufólki (40,6%). Hlutfall bænda á blóðþrýst- ingslyfjum var einnig aðeins lægra (9,8%, 26,9% verkafólk, 23,2% skrifstofufólk), þó ekki martækt lægra. Engin kvennanna var á sykursýkislyfjum (einn skrifstofukarl var á sykursýkislyfjum) eða blóðfitulyfjum en einn verkakarl, þrír skrifstofukarlar og þrír karl- bændur voru á blóðfitulyfjum. R A N N S Ó K N Tafla I. Líkamlegir eiginleikar þátttakenda. Verkafólk Skrifstofufólk Bændur Breytur Karlar (n=23) Konur (n=29) Karlar (n=28) Konur (n=41) Karlar (n=22) Konur (n=19) Aldur (ár) 51,2 ± 8,1 51,0 ± 8,0 53,2 ± ± 6,7 49,2 ± 6,7 52,4 ± 8,0 48,9 ± 7,4† Hæð (cm) 177,2 ± 5,4a 161,9 ± 6,5 179,9 ± 6,7 166,1 ± 5,5 177,4 ± 5,4 167,4 ± 4,8*† Þyngd (kg) 85,5 ± 13,4 71,0 ± 10,6 87,9 ± 13,2 75,0 ± 13,0 85,9 ± 12,9 82,3 ± 15,3† BMI (kg/m2) 27,2 ± 3,9 27,2 ± 4,5 27,1 ± 3,4 27,2 ± 4,4 27,3 ± 3,8 29,4 ± 5,0 Mittismál (cm) 98,1 ± 9,4 89,3 ± 10,5 99,3 ± 11,3 90,0 ± 10,4 98,6 ± 11,0 99,0 ± 14,4† Líkamsfita (%) 26,9 ± 7,5d 31,9 ± 5,8c 25,3 ± 5,9 35,3 ± 5,5 21,8 ± 5,5 36,0 ± 6,9†‡ FFM (kg) 61,8 ± 7,3 48,0 ± 5,6 65,0 ± 6,2 47,9 ± 5,1 66,7 ± 7,3b 52,0 ± 6,5*† BMI = líkamsþyngdarstuðull, FFM = fitulaus líkamsþyngd, * = meginhrif fyrir starfstétt p<0,05, † = meginhrif fyrir kyn p<0,05, ‡ = víxlverkun kynja starfsstétta p<0,05, a = verkafólk frábrugðið skrifstofufólki og bændum p<0,05, b = bændur frábrugðnir verkafólki og skrifstofufólki p<0,05, c = verkakonur frábrugðnar skrifstofukonum og kvenbændum p<0,05, d = verkakarlar frábrugðnir karlbændum p<0,05. Mynd 2. Heildarhreyfing (A) og tími í meðalerfiðri hreyfingu (B). Tölurnar í súlunum gefa til kynna fjölda þátttakenda. Hreyfing = heildarhreyfing, Tími >3MET = tími í meðalerfiðri hreyfingu, e = skrifstofukarlar frábrugðnir verkakörlum og karlbændum p<0,05, f = verkakarlar frábrugðnir skrifstofukörlum p<0,05, g = kvenbændur frá- brugðnir verkakonum og skrifstofukonum p<0,05. Karlar Konur Meginhrif starfsstétt: p<0,01 Meginhrif kyn: p =0,04 Víxlverkun: p<0,01 Meginhrif starfsstétt: p<0,08 Meginhrif kyn: p =0,37 Víxlverkun: p =0,03 Verkafólk Skrifstofufólk Bændur A 500 400 300 200 100 0 B 30 25 20 15 10 0 H re yf in ga r( K sl ög /m ín Tí m i > 3 M E T (m ín /d ag ) 20 22 20 22 20 29 20 29 e g 20 14 20 14

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.